Fréttablaðið - 02.02.2023, Blaðsíða 16
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Dr. Ásthildur Jónsdóttir er sýn-
ingarstjóri sýningarinnar en hún
hefur sérmenntað sig í möguleik-
um lista í menntun til sjálfbærni.
Árið 2017 lauk hún doktorsgráðu
í myndlist frá Lapplandsháskóla
og doktorsgráðu í menntunar-
fræðum frá Menntavísindasviði
HÍ. Sýningarhönnuður Viðnáms er
Axel Hallkell Jóhannesson.
„Við skipulagningu sýningar-
innar Viðnáms nýtti ég niður-
stöður rannsókna minna. Í rann-
sóknunum studdist ég við þann
skilning að kjarni sjálfbærni felist
í jafnvægi á milli „hins góða lífs“
og virðingar fyrir þeim takmörk-
unum sem náttúran setur. Skil-
greiningin á hugtakinu sjálfbærni
ræður því vali á verkunum og þeim
miðlunarleiðum sem lagðar eru
fram í Safnahúsinu,“ segir Ást-
hildur.
„Ég hef aðhyllst aðferð sem kall-
ast gagnrýnið listrænt grenndar-
nám. Leiðarstef sýningarinnar
byggir á mikilvægi þess að leggja
áherslu á dyggðir og gildismat ann-
ars vegar og hins vegar á mikilvægi
þátttöku. Þátttaka er mikilvæg til
að þróa með nemendum getu til
aðgerða og að tengja markvisst
við reynslu sýningargesta með
ígrundun þegar mætt er í leiðsögn
eða safnfræðslu. Til að stuðla að
virkri þátttöku gesta eru gagn-
virkar þrautir á öllum hæðum sem
kallast á við verkin sem eru öll
í eigu Listasafns Íslands. Fram-
setning og umgjörð sýningarinnar
er öll með þeim hætti að bjóða
fólki upp á þátttöku, með það fyrir
augum að safnið sé griðastaður í
einu fallegasta húsi landsins,“ segir
Ásthildur.
„Verkin á sýningunni gefa okkur
tækifæri til að velta vöngum yfir
tilverunni, náttúrunni og öðru
fólki. Hvernig fólk kýs að lifa lífinu
og hvaða áhrif það vill hafa. Til að
skapa forsendur fyrir góðu lífi þarf
að hlúa að fjölmörgum þáttum
og ekki síður samspili þeirra. Að
lifa lífinu á þann hátt að maður
viðhaldi góðu lífi án þess að skerða
lífsgæði annarra eða ganga á nátt-
úruna er lykillinn að sjálfbærni,“
segir Ásthildur. Hún bætir við
að myndlist geti vakið áleitnar
spurningar og að listræn nálgun
geti breytt því hvernig fólk lítur á
heiminn.
Sýning á fimm hæðum
Sýningin Viðnám er á fimm
hæðum sem hver er með sitt
þema. Þemun eru loft, láð, lögur,
lögmál og leikur. Á hverri hæð eru
viðtöl við fjölbreytta fræðimenn
sem tengja markvisst við málefni
sýningarinnar.
„Á 4. hæð er ferðast um háloftin
og fjalllendi Íslands sem er í
stöðugri mótun sem virkt eld-
fjallasvæði. Eldgosum geta fylgt
miklar hamfarir og landslags-
breytingar. Í daglegu lífi gleymast
smám saman eldstöðvarnar sem
lifa undir jöklunum og lands-
lagið skipar aðalhlutverkið með
fjölbreyttum litbrigðum jökulsins
sem ólík birtuskilyrði kalla fram,“
segir Ásthildur.
Á hæðinni er heimur jöklanna
sýndur í samvinnu við Rannsókn-
arsetur Háskóla Íslands á Höfn. Þar
má einnig sjá verk og finna fróðleik
tengdan veðri og loftslagi með
tengingu við geiminn. Á þessari
hæð geta gestir meðal annars búið
til stop motion-mynd með skugga-
brúðum sem þeir skapa undir
áhrifum sýningarinnar. Þeir læra
með gagnvirkni um ólíkt skýjafar
og skapa sitt eigið himinhvolf með
hjálp tölvutækninnar.
Gestir upplifa undur íshella í
tengslum við fróðleik frá Rann-
sóknarsetri Háskóla Íslands á
Höfn. Auk þess sem hægt er að
baða sig í RGB-ljósi, upplifa marg-
lita skuggana og leika sér með
ljósbrot prismaglers.
Líf á landi
„Þema þriðju hæðarinnar er láð,
en landið og náttúran hafa alla
tíð verið viðfangsefni listamanna.
Verkin á þriðju hæð tengjast jörð-
inni, líffræðilegum fjölbreytileika,
plöntum og dýrum. Jarðvegur er
mjög mikilvægur lífríkinu og ekki
síst mönnunum því hann er undir-
staða allrar matvælaframleiðslu
á þurrlendi. Fyrr á tímum bjó fólk
í húsum sem voru þannig að ekki
var alltaf ljóst hvar landinu sleppti
og húsið tók við, það má búast við
því að fólk sem bjó í slíkum húsa-
kosti hafi gert sér grein fyrir að það
var hluti af náttúrunni,“ útskýrir
Ásthildur.
„Íslenski torfbærinn er gott
dæmi um sjálfbæra hönnun þar
sem efni úr nærumhverfinu voru
nýtt. Líffræðileg fjölbreytni jarðar
á okkar tímum hefur orðið til
vegna milljarða ára þróunar allt
frá því að fyrstu einföldu bakteríu-
formin litu dagsins ljós. Á langri
vegferð hafa ný lífsform sífellt
verið að þróast en önnur að líða
undir lok. Í málverkinu Íslandslag
eftir Kjarval sjáum við nokkrar
tegundir af íslenskum lággróðri
og ýmsar verur sem er að finna
í náttúrunni. Tegundir tengjast
innbyrðis á margvíslegan hátt og
mynda samfélög. Því er mjög mik-
ilvægt að vanda sig vel í umgengni
við viðkvæman gróðurinn.“
Á hæðinni eru einnig ýmis verk
til sýnis sem tengjast fuglum auk
þess sem boðið er upp á gagnvirkni
þar sem gestir para saman fugla-
myndir við hljóð.
Undir áhrifum málverks
Verk Önnu Rúnar Tryggvadóttur Geymd og Ókerfisbundin kortlagning, á fyrstu hæð safnahússins.
Verk eftir Gunn-
laug Scheving
á annarri hæð
Safnahússins
þar sem þemað
er lögur.
Sumarnótt eftir Jón Stefánsson og Íslenskir fuglar eftir Bryndísi Snæbjörns-
dóttur og Mark Wilson. Verkin eru á þriðju hæð þar sem þemað er láð.
Til að stuðla að
virkri þátttöku
gesta eru gagnvirkar
þrautir á öllum hæðum
sem kallast á við verkin.
Ásthildur Jónsdóttir
Kristínar Jónsdóttur af konum að
þvo þvott í þvottalaugunum gefst
gestum tækifæri til að setja sig í
fótspor formæðra sinna er þeir
prófa að bera þvottaböggul frá
Lækjartorgi að þvottalaugunum í
Laugardal.
Önnur hæðin er innblásin af
hafinu, en þema hæðarinnar er
Lögur. Ásthildur segir að hafið veiti
mörgum listamönnum innblástur
til listsköpunar. Sumir fjalla um
fegurð þess meðan aðrir skoða
hvernig það ýmist gefur eða tekur.
„Fiskveiðar voru lengi helsti
atvinnuvegur Íslendinga. Sjó-
menn hafa í aldanna rás barist
við báruna þegar þeir draga inn
afla. Því fylgdu sjóskaðar með til-
heyrandi manntjóni. Fiskurinn var
unninn víðs vegar um landið og
mótaði menningu sjávarþorpanna.
Sum verkin sýna ólíka afstöðu til
hafsins, þar sem mennirnir ýmist
tilheyra náttúrunni eða drottna
yfir henni. Það er líka hægt að
merkja hvernig samband manna
við hafið hefur breyst. Á þessari
hæð er skemmtileg gagnvirkni þar
sem gestir geta sett sig í spor þeirra
sem réru á opnum bátum eða
hreinsað plastrusl úr hafinu.“
Lögmál og leikur
Þema fyrstu hæðarinnar er lögmál.
Ásthildur segir að þar sé tekist á
við málefni sem tengjast lög-
málum heimsins á sviði eðlis- og
efnafræði. Allt frá hugmyndum
eðlisfræðinnar um titrandi strengi,
óreiðukenninguna og bylgjufræði
til staðreynda um segulsvið jarðar-
innar.
„Skapandi og greinandi hugsun
einkennir vinnu bæði lista- og
vísindamanna. Á sama hátt og
vísindin eru innblástur fyrir lista-
menn þá getur listaverk dregið
fram einstök og oft ófyrirsjáanleg
sjónarhorn sem ögra vísindalegum
hugmyndum og forsendum,“ segir
hún.
Á fyrstu hæðinni gefst gestum
einnig tækifæri til að sauma
út undir áhrifum óreiðukenn-
ingarinnar og velta fyrir sér hring-
rásum náttúrunnar með spír ala-
teikningum. Með gagnvirkum
þrautum fræðast gestir um bæði
staðbylgjur og hljóðbylgjur og
uppgötva hvernig viðnám virkar.
Þá erum við komin að kjallara
listasafnsins en þar er þemað
leikur.
„Hér er sýndur myndheimur
íslenskra þjóðsagna og ævintýra
eftir Ásgrím Jónsson sem skapar
sannkallaðan töfraheim. Álfar,
tröll og draugar, sem lifað hafa
með óljósum hætti í hugskoti
þjóðarinnar í rökkri baðstof-
unnar eru sýnd í samtali við frjálsa
sköpun sýningargesta,“ útskýrir
Ásthildur.
„Við leggjum áherslu á að virkja
ímyndunarafl gesta og gefa þeim
kost á að njóta þessara listaverka
sem í bland eru samtímaverk og
eldri menningararfur sem getur
varpað ljósi á ótta, drauma og þrár
genginna kynslóða og sambúð
þeirra við stórbrotna náttúru
landsins.“
Fjölskyldustundir á safninu
Ragnheiður Vignisdóttir, fræðslu-
og útgáfustjóri Listasafns Íslands,
segir að sýningin sé mjög aðgengi-
leg fyrir almenning. Við vonumst
til að ungir sem aldnir heimsæki
safnið í frítíma sínum og að Safna-
húsið verði sjálfsagður áfanga-
staður í huga fólks.
„Það er svo mikið af nýjungum
á sýningunni, til dæmis ratleikur
og gagnvirkni þar sem gestir eru
hvattir til að taka virkan þátt. Það
á líka að vera skemmtun að heim-
sækja safnið því þar er hægt að
ferðast um og uppgötva eitthvað
nýtt í hverri heimsókn,“ segir hún.
„Við bjóðum einnig upp á
skólaheimsóknir um sýninguna
en henni verður einnig fylgt eftir
með Krakkaklúbbnum Krumma.
Krakkaklúbburinn stendur fyrir
fjölbreyttri og skemmtilegri
dagskrá þar sem fjölskyldum er
boðið að fræðast um listaverkin í
safneign Listasafns Íslands, skapa
listaverk og leika sér í nærandi
umhverfi. Klúbburinn hefur
hingað til eingöngu verið starf-
ræktur á Listasafninu við Frí-
kirkjuveg en við ætlum að stækka
hann svo hann verður líka í Safna-
húsinu. Þar verða listasmiðjur um
helgar fyrir almenning sem eru
ókeypis fyrir alla og ég hvet fólk
til þess að kynna sér viðburða-
dagskrá safnsins á heimasíðunni
listasafn. is.
Í sýningarnefnd er auk Ásthildar
og Ragnheiðar, Dagný Heiðdal,
Harpa Þórsdóttir og Guðrún Jóna
Halldórsdóttir. n
2 kynningarblað A L LT 2. febrúar 2023 FIMMTUDAGUR