Fréttablaðið - 02.02.2023, Síða 22
Kasper og Jesper og Jónatan og
sí svanga ljónið þeirra, Bastían
bæjarfógeti og Soffía frænka og
aðrir íbúar Kardemommubæjar
birtast á hvíta tjaldinu nú í febrúar.
Lífið í indæla Kardemommu
bænum væri svo ljúft ef ekki væri
fyrir árans ólátabelgina Kasper,
Jesper og Jónatan sem eru alltaf
að brjótast inn hjá nágrönnum
sínum.
Hjá þeim er allt á rúi og stúi
og heimilið eins og óhreina taus
karfa. Þeir búa með ljóninu sem
er sí hungrað og þá bráðvantar
ráðskonu. Þeir kokka upp áætlun
um að ræna Soffíu frænku sem er
fræg fyrir að hafa alla hluti í röð og
reglu.
Þeir hrinda áætlun sinni í fram
kvæmd og ná í Soffíu frænku eina
nóttina. Þegar hún vaknar kemur
hins vegar í ljós að hæfileikar
hennar felast ekki síður í stjórnun
en þrifum. Hún stjórnar ræningj
unum með harðri hendi og lætur
þá sjá um þrifin.
Smám saman verður þeim ljóst
að þeir eru komnir í slæma klípu
og eina lausnin er að losa sig aftur
við Soffíu frænku með því að skila
henni.
Þar kemur að þeir eru staðnir að
verki við eitt innbrotið og hand
teknir og stungið í tukthúsið.
Útlitið er ekki vænlegt.
Steðjar þá allt í einu mikil vá að
bænum, eldur kemur upp og nú
þarf hetjudáð frá einhverjum til að
bjarga mannslífi. Kemur þá til kasta
Kaspers, Jespers og Jónatans sem fá
tækifæri til að sýna að þeir séu til
einhvers gagnlegs brúklegir. n
Laugarásbíó, Smárabíó
og Háskólabíó
Kardemommubærinn
Frumsýnd
3. febrúar 2023
Aðalhlutverk:
Hallgrímur Ólafsson, Sverrir
Þór Sverrisson, Oddur Júlíus
son, Örn Árnason, Stefanía
Svavarsdóttir og Þórhallur
Sigurðsson
Handrit:
Karsten Fullu
Leikstjórn: Tómas
Freyr Hjaltason
Frumsýnd
24. febrúar 2023
Aðalhlutverk:
Ray Liotta, Margot Martin
dale, Keri Russel, Alden
Ehrenreich, Matthew Rhys og
Kristofer Hivju
Handrit:
Jimmy Warden
Leikstjórn:
Elizabeth Banks
Frumsýnd
10. febrúar 2023
Aðalhlutverk:
Dave Bautista, Jonathan Groff,
Ben Aldridge og Abby Quinn
Handrit:
M. Night Shyamalan, Steve
Desmond og Michael Sherm
an, byggt á bók Paul Tremblay
Leikstjórn:
M. Night Shyamalan
Frumsýnd 17. febrúar 2023
Aðalhlutverk
Mikael Kaaber, Ylfa Marín Haraldsdóttir, Þór
hallur Sigurðsson (Laddi), Andrea Ösp Karls
dóttir, Bjarklind Björk Gunnarsdóttir, Stefanía
Svavarsdóttir, Karl Örvarsson, Stefán Benedikt
Vilhelmsson, Benedikt Óli Árnason, Ari Freyr
Ísfeld og Arnór Björnsson
Handrit:
Ranald Allan, David Green og Fin Edquist
Leikstjórn:
Sigurður Árni Ólason
Enginn
verður
svikinn af
Kasper og
Jesper og
Jónatan og
Soffíu
frænku!
Byggt á
atburðum
frá árinu
1985 þegar
björn
komst í
kókaín í
skóglendi.
Kvik-
mynda-
rétturinn
var seldur
áður en
bókin kom
út.
Freddi er af stoltu varúlfakyni
sem hefur verndað bæinn í
héraðinu svo lengi sem elstu úlfar
muna.
Sitthvað bendir þó til þess að
ekki eigi það fyrir Fredda að liggja
að feta í fótspor forfeðranna.
Hann virðist raunar vera hálf
gerður hrakfallabálkur. Hann
glatar meira að segja töfratungl
steini í hendur Foxwell Cripp.
Sjálfur hefur hann þó óbilandi
trú á sjálfum sér.
Loks kemur að því að Freddi
á að ganga í gegnum umbreyt
inguna í varúlf. Honum bregður
heldur betur í brún þegar hann
breytist ekki í ógnvekjandi varúlf
heldur fíngerðan púðluhund.
Hann er niðurlægður og verður
að sanna sig sem varúlfur þegar
tunglið kemur upp næsta dag eða
eiga á hættu að vera hrakinn á
brott frá flokknum.
Á leið sinni um bæinn kynnist
hann flækingshundinum Batty,
sem er líka þekkt sem „Houndini“
vegna mikilla hæfileika sinna við
að losna úr klóm hundafangara.
Batty vísar honum til Cripp en
hundafangari klófestir þau bæði
og setur í hundageymslu.
Þeim mistekst að flýja og
Freddi er settur í holu með ein
hverjum sem er kallaður skrímsl
ið og er sagður éta hunda.
Freddi kemst að því að
skrímslið er pabbi hans sem lenti í
klóm hundafangara þegar Freddi
glataði tunglsteininum.
Ekki væri sanngjarnt að upplýsa
meira um söguþráðinn. Best bara
að fara í bíó og sjá myndina. n
Laugarásbíó, Smárabíó
og Háskólabíó
Margur er knár
Hugmyndin að myndinni er sótt í
raunverulega atburði sem áttu sér
stað árið 1985 þegar svartbjörn
komst í kókaín sem var varpað út
úr flugvél eiturlyfjasmyglara og át
stóran strigapoka fullan af eitur
lyfinu og dó.
Pokanum hafði verið kastað út
úr vélinni vegna þess að hún var
of þung. Flugmaðurinn var And
rew C. Thornton II, fyrrverandi
eiturlyfjalögga og dæmdur eitur
lyfjasmyglari. Thornton stökk
síðan út úr vélinni en fallhlífin
hans opnaðist ekki og beið hann
bana.
Björninn, sem var um 80 kíló,
fannst þremur mánuðum síðar
og hjá honum 40 opin plast
hylki með kókaíni. Björninn var
uppstoppaður og er til sýnis í
Kentucky for Kentucky Fun Mall í
Lexington í Kentuckyríki.
Björninn í þessari mynd er
hins vegar 240 kíló að þyngd og
í stað þess að geispa golunni við
kókaínátið tryllist hann og verður
morðóður.
Safnast þá saman furðulegur
hópur sem samanstendur af lög
reglumönnum, glæpamönnum,
ferðamönnum og táningum
og stefnir inn í skóg í Georgíu
ríki á höttunum eftir birninum
morðóða.
Kómedían er nokkuð dökk, en
þó hæfilega villt, og eltingaleikur
inn við uppkókaða skepnuna er
bæði spennandi og spaugilegur
og greinilegt að svartbjörninn vill
ólmur meira blóð og meira kók.
Þetta er síðasta myndin sem
Ray Liotta lék í, en hann lést
óvænt 26. maí í fyrra. n
Laugarásbíó, Sambíóin Álfabakka
og Smárabíó
Svartbjörn á kókaíni
Samkynhneigt par og ættleidd
dóttir þeirra eru í fríi í bústað.
Fjórir vopnaðir einstaklingar
ráðast inn í bústaðinn og taka
fjölskylduna í gíslingu og fyrir
skipa henni að fremja óhugsandi
verknað, annars verði endalok
heimsins. Eitthvert þeirra verður
að falla fyrir hendi hinna tveggja.
Í loftinu hangir spurningin hvort
þessir fjórir einstaklingar séu ein
faldlega sturlaðir og haldnir kvala
losta. Eða hafa þeir upplýsingar
um yfirvofandi heimsenda? Og, sé
svo, er rétt af þeim að neyða þessa
fjölskyldu til að færa hina endan
legu fórn?
Handritshöfundur og leikstjóri
er M. Night Shyamalan, sem meðal
annars er þekktur fyrir mynd
irnar The Sixth Sense (1999), Signs
(2002), The Village (2004) og Lady
in the Water (2006).
Yfirleitt eru handrit Shyamalan
ekki unnin upp úr verkum annarra
en Knock at the Cabin er byggð
á bókinni The Cabin at the End
of the World (2018) eftir Paul G.
Tremblay og er þetta í fyrsta sinn
sem kvikmynd er byggð á verki
eftir hann. Raunar var kvikmynda
rétturinn keyptur 2017, ári áður en
bókin kom út.
Meðal leikara í myndinni er
Dave Bautista, sem er þekktastur
fyrir leik sinn í Guardians of the
Galaxy. Hann leikur Leonard, hæg
látan foringja gíslatökumannanna
sem neyðir fjölskylduna til að taka
ákvörðunina hryllilegu.
Annar úr hópi gíslatökumann
anna er leikinn af Rupert Grint,
sem lék Ron Weasley í Harry Potter
myndunum. n
Háskólabíó, Laugarásbíó og
Smárabíó
Hin endanlega fórn
6 kynningarblað 2. febrúar 2023 FIMMTUDAGURKVIKMYNDIR MÁNAÐARINS