Fréttablaðið - 02.02.2023, Side 28
Nýtt met í ensku
úrvalsdeildinni var
sett vegna eyðslu í
nýja leikmenn á einu
tímabili: 2,8 milljarðar
punda.
Chelsea eyddi meiri
fjármunum í nýja leik-
menn heldur en lið
helstu deilda Evrópu
utan Englands.
Félagsskiptaglugganum í
öllum helstu knattspyrnu-
deildum Evrópu hefur nú
verið lokað og óhætt að segja
að tölulegar upplýsingar um
hann og eyðslu félaganna á
yfirstandandi tímabili veki
athygli. Enska úrvalsdeildin
sker sig úr í þessum efnum sem
og Lundúnafélagið Chelsea.
aron@frettabladid.is
helgifannar@frettabladid.is
FÓTBOLTI Það er skýrsla Deloitte
Sports Group sem varpar ljósi á fjár-
munina sem fóru í umferð í nýaf-
stöðnum félagsskiptaglugga sem
og hvað eyðslan þýðir í stóra sam-
henginu.
Alls eyddu félögin í ensku úrvals-
deildinni 275 milljónum punda,
því sem jafngildir rétt tæpum 48
milljónum íslenskra króna, á loka-
degi félagsskiptagluggans, þann 31.
janúar síðastliðinn, einum og sér.
Um er að ræða met á lokadegi félags-
skiptaglugga í janúar í deildinni og
aukningu um 83 prósent á eyðslu
félaga deildarinnar frá fyrra meti
sem sett var árið 2018 og stóð í 150
milljónum punda.
Þá kolféll met félaganna í ensku
úrvalsdeildinni í eyðslu vegna kaupa
á nýjum leikmönnum yfir eitt tíma-
bil, en á hverju tímabili opnast félags-
skiptaglugginn tvisvar sinnum. Á
yfirstandandi tímabili hafa félög
ensku úrvalsdeildarinnar eytt 2,8
milljörðum punda, því sem nemur
rétt rúmum 488 milljörðum íslenskra
króna, í nýja leikmenn. Með því var
fyrra metið, sem stóð í 1,4 millj-
örðum punda og var sett tímabilið
2016/2017, slegið rækilega af stalli.
Í félagsskiptaglugganum nú í
janúar má sjá mikinn mun á eyðslu
félaganna í ensku úrvalsdeildinni
milli ára. Alls eyddu félögin 295
milljónum punda í nýja leikmenn
í janúar árið 2022. Í ár rauk eyðslan
hins vegar upp úr öllu valdi og náði
815 milljónum punda, eða því sem
nemur rétt tæpum 142 milljörðum
íslenskra króna. Aukning milli ára
í eyðslu félaganna í janúar einum
og sér stendur því í 520 milljónum
punda.
Það var enska félagið Chelsea sem
fór fremst meðal jafningja og eyddi
meiri fjármunum í nýja leikmenn í
janúar (288 milljónum punda) en öll
félagslið efstu deilda í Evrópu, utan
Englands, til samans. n
Í flokk með dýrustu leikmönnum sögunnar
Enzo Fernandez gekk í raðir Chelsea skömmu
fyrir lok félagsskiptagluggans. Hann kemur frá
Benfica og kostar tæpar 107 milljónir punda.
Argentíski miðjumaðurinn varð jafnframt dýr-
asti leikmaður í sögu ensku úr-
valsdeildarinnar. Fyrir var það
Jack Grealish, sem keyptur var
til Manchester City frá Aston
Villa á 100 milljónir punda.
Þá er Fernandez sá sjötti
dýrasti í sögu fótboltans.
Deilir hann því sæti með
Antoine Griezmann. Sá fór frá
Atletico Madrid
til Barcelona
árið 2019
og kostaði
það sama og
Fernandez nú.
Þó kostuðu
þeir tveir
næstum helm-
ingi minna en
dýrasti leikmaður
sögunnar, Neymar.
Fimm dýrustu leikmenn sögunnar
1. Neymar – Frá Barcelona til Paris St-Germain á
200 milljónir punda (2017)
2. Kylian Mbappe – Frá Monaco til Paris St-
Germain á 166 milljónir punda (2017)
3. Philippe Cout-
inho – Frá Liverpool
til Barcelona á 142
milljónir punda
(2018)
4. Ousmane
Dembele – Frá Bo-
russia Dortmund
til Barcelona á 135
milljónir punda
(2017)
5. Joao Felix – Frá Ben-
fica til Atletico Madrid
á 113 milljónir punda
(2019)
Fordæmalaus janúar
Eins og fyrr sagði settu félögin í ensku úrvalsdeildinni nýtt met
með því að eyða 815 milljónum punda, því sem nemur tæpum 142
milljörðum íslenskra króna, í nýja leikmenn í félagsskiptaglugga
janúar þessa árs. Fyrra metið stóð í 430 milljónum punda og var sett
í janúar árið 2018.
Ef litið er til baka á sögu ensku úrvalsdeildar-
innar er hægt að sjá að frá árinu 2003 hefur
eyðsla félaga til kaups á nýjum leikmönnum
aðeins fimm sinnum verið yfir 200 millj-
ónum punda í janúar.
Hvað kaup á leikmönnum varðar í nýafstöðn-
um janúar er auðvelt að benda á hlut Chelsea í
þeirri hækkun sem orðið hefur milli ára á þeim fjár-
munum sem eytt er. Heildareyðsla félagsins í
nýja leikmenn nam rúmum 288 milljónum
punda, um 37 prósentum af heildareyðslu
félaga ensku úrvalsdeildarinnar í janúar.
Mesta eyðsla í janúar frá 2003
(milljónir punda):
2011: 225 milljónir
2017: 215 milljónir
2018: 430 milljónir
2020: 230 milljónir
2022: 815 milljónir
Dagurinn sem metin féllu
Eyðsla félaga ensku úrvals-
deildarinnar í nýja leikmenn:
n Janúar 2022: 295 milljónir
punda
n Janúar 2023: 815 milljónir
punda
nMismunur milli ára: 520
milljónir punda
16 ÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 2. FEBRÚAR 2023
FIMMTUDAGUR