Fréttablaðið - 02.02.2023, Blaðsíða 30
Þetta byggist auðvitað á
því að þú þarft að hafa
undirbúið þig vel og lengi,
bæði hlaupalega og ekki
síður hugarfarið.
MERKISATBURÐIR |
ÞETTA GERÐIST | | 2. FEBRÚAR 1959
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
Margrét Jensdóttir Sigfússon
frá Akureyri,
lengi búsett í Washington DC,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir 21. janúar.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu. Hjúkrunarfólki 3N á Eir er þökkuð
umhyggja og alúð.
Fyrir hönd aðstandenda,
Viktor Arnar Ingólfsson Valgerður Geirsdóttir
Gerður Sigfúsdóttir
Elsku pabbi okkar, sonur,
bróðir, mágur og vinur,
Steingrímur Bjarni
Erlingsson
vélfræðingur,
lést á Landspítalanum 28. janúar.
Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 9. febrúar kl. 15.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hans er bent á SÁÁ.
Soffía Steingrímsdóttir Edda Steingrímsdóttir
Erlingur Steingrímsson
Vilborg St. Sigurjónsdóttir Richard Simm
Úlfar Erlingsson Charlotta Hauksdóttir
Ernir Erlingsson Berit Glanz
Kristín Salóme Erlingsdóttir Jökull Skarphéðinsson
Kristín Jónína Gísladóttir
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Kristinn Daníel Hafliðason
vélstjóri,
lést 24. janúar á Sóltúni.
Útförin verður auglýst síðar.
Innilegar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins
Sóltúns fyrir góða umönnun og hlýhug.
Halldóra Kristín M. Kristinsd. Guðmundur R. Þórisson
Hafliði Brands Kristinsson Natthanicha Catchama
Lárus Lárusson Anna Jóna Óskarsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn
Ástkær eiginkona, móðir okkar,
amma og langamma,
Guðríður Helgadóttir
kennari og leikskólafulltrúi,
Kirkjubraut 2, Reykjanesbæ,
lést í faðmi fjölskyldunnar á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja að morgni
21. janúar. Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju þann
3. febrúar klukkan 11.00.
Sigurður G. Sigurðsson
Hildur Sigurðardóttir Steinþór Jónsson
Helgi Kjartan Sigurðsson Birna Björk Þorbergsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Hlaupagarpurinn Sigmundur
Stefánsson hyggst hlaupa sjötíu
kílómetra á sjötugasta afmæli
sínu nú í dag. Hann segir áföll í
lífinu ekki endalok.
arnartomas@frettabladid.is
Selfyssingurinn Sigmundur Stefánsson
fagnar sjötugsafmæli í dag með ansi
óhefðbundnu móti. Í tilefni dagsins
hyggst hann hlaupa heila sjötíu kíló-
metra, eða eina sjö Simmalinga, og safna
áheitum til styrktar Hjartaheillum og
Krabbameinsfélagi Árnessýslu.
„Neinei, ég held að það sé nú ekki,“
svarar Sigmundur hvergi banginn
aðspurður hvort þetta sé nú ekki full-
mikið. „Þetta byggist auðvitað á því að
þú þarft að hafa undirbúið þig vel og
lengi, bæði hlaupalega og ekki síður hug-
arfarið – að hausinn sé rétt skrúfaður á!“
Sigmundi innan handar verða hlaupa-
félagar hans í Frískum Flóamönnum og
stefnt er á að hlaupið taki tíu tíma.
En hvernig undirbýr maður sig fyrir
svona þrekvirki á sjötugsafmælisdeg-
inum?
„Ég er búinn að vera að stefna að
þessu núna í ár og það er fyrst og fremst
að safna kílómetrum í lappirnar. Það er
mikilvægt að venja líkamann á áreitið
sem þetta er á líkamann. Síðustu dag-
arnir og vikurnar eru svo í sjálfu sér bara
hvíld. Maður er ekkert að bæta sig í getu
svo það þarf að trappa sig niður.“
Áföll eru ekki endalok
Sigmundur hefur nú verið á hlaupum í
rúmlega tuttugu og fimm ár en hann var
mikið í íþróttum í æsku.
„Þegar maður var að koma upp fjöl-
skyldu þá var ekki mikið um sportið, en
þegar börnin voru komin upp og maður
var búinn með veraldlega braskið þá
fór okkur hjónin að kitla aðeins í hreyf-
ingu,“ segir Sigmundur sem stundar
bæði hlaup, fjallgöngur, skíði og annað
fjör með eiginkonu sinni.
Ástæðuna fyrir því að Sigmundur
ákvað að leggja í sjötíu kílómetrana segir
hann eiga rætur að rekja í veikindi sem
hann hefur gengið í gegnum á seinustu
misserum.
„Fyrir einu og hálfu áru síðan fór ég
í opna hjartaaðgerð og sex mánuðum
áður hafði ég farið í meðferð gegn
krabbameini í blöðruhálskirtli,“ útskýr-
ir hann. „Ég var í mjög góðu formi og
þegar ég var farinn í gegnum þetta ferli
þá langaði mig að benda á það að lífið
sé ekki búið þótt maður lendi í svona
áföllum. Þú getur haldið áfram og jafn-
vel bætt í.“
Heimalningur á Selfossi
Simmalingur, sjö kílómetra hringurinn
sem Sigmundur hleypur, dregur heiti sitt
af orðinu heimalningur.
„Ég er fæddur Selfyssingur og vann við
forstöðu sundlaugarinnar og hjá bænum
helming ævi minnar eða um þrjátíu og
fimm ár. Fæðingarheimili mitt er þarna
við hliðina á, þannig að ég er eiginlega
heimalningur á þessu svæði þarna á Sel-
fossi. Þess vegna köllum við hringinn
Simmaling.“
Á ég þá að bjalla í þig þegar þú verður
sjötíu og sjö ára og tekur þá væntanlega
ellefu Simmalinga?
„Það er spurningin,“ svarar Sigmundur
og hlær. „Ég sagði nú við einhvern að
þegar ég verð áttræður þá fer ég kannski
ekki áttatíu kílómetra heldur tíu, fyrst ég
verð nú búinn með þessa sjötíu!“
Sigmundur hleypur af stað frá sund-
lauginni klukkan 7 í dag. Á Facebook-
síðu Frískra Flóamanna má finna hlekk
til að nálgast áheitasöfnun en einnig er
hægt að hafa beint samband við Hjarta-
heill og Krabbameinsfélag Árnessýslu í
gegnum síma. n
Simmi hleypur sjötíu kílómetra
til að fagna jafnmörgum árum
Sigmundur, eða Simmi eins og hann er iðulega kallaður, segir sjötíu kílómetra alls ekki of mikið. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNAR
1933 Adolf Hitler leysir þýska þingið upp.
1935 Lygamælirinn er prófaður í fyrsta skipti af Leonard
Keeler.
1942 Roosevelt Bandaríkjaforseti undirritar fyrirskipun
um að allir Bandaríkjamenn af japönskum uppruna
skuli fluttir í fangabúðir og eigur þeirra kyrrsettar.
1943 Síðustu hersveitir nasista gefast upp fyrir Sovét-
mönnum í orustunni um Stalíngrad.
1978 Listahátíð í Reykjavík er sett. Kvikmyndahátíð í
Reykjavík er í fyrsta sinn hluti af hátíðinni.
1978 Dyrhólaey er friðlýst.
1983 Samþykkt er á Alþingi að mótmæla ekki hvalveiði-
banni Alþjóðahvalveiðiráðsins.
1990 Þjóðarsátt um kaup og kjör gengur í gildi með það
að markmiði að ná niður verðbólgu og tryggja at-
vinnuöryggi.
Það var á milli 1. og 2. febrúar 1959
sem níu fjallamenn frá Sovétríkjunum
létust við óútskýrðar aðstæður í
Úralfjöllunum. Hópurinn, sem leiddur
var af Igor Dyatlov, hafði komið sér
fyrir í tjaldbúðum. Um nóttina gerðist
eitthvað sem fékk fólkið til að skera
sig út úr tjöldum sínum og flýja tjald-
búðirnar án þess að vera nægilega vel
búið fyrir vetrarhörkurnar.
Eftir að líkin fundust ákvörðuðu
sovésk yfirvöld að sex þeirra hefðu
látist úr kulda en eitt líkið var með
mikla áverka á höfði og tvö með mikla
áverka á brjóstkassa. Líkin voru mörg
hver illa farin og vantaði til að mynda
augu og tungu í nokkur þeirra.
Árið 2019 létu Rússar rannsaka
málið á ný og niðurstöðurnar voru að
hópurinn hefði látist í snjóflóði sem
hefði neytt þau til að yfirgefa búðirnar
við slæmar aðstæður. Margar mis-
sennilegar kenningar hafa sprottið
upp um atvikið sem hefur verið eldi-
viður í ýmsar hrollvekjur á borð við
kvikmyndina Devil's Pass frá 2013. n
Dularfull dauðsföll í Dyatlov-skarði
Sovétmenn rannsaka búðirnar.
18 TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 2. FEBRÚAR 2023
FIMMTUDAGUR