Fréttablaðið - 02.02.2023, Side 38
Spánn er endalaus
uppspretta nýrra
ævintýra og mig langar
alltaf að miðla því sem
ég læri og upplifi.
Snæfríður Ingadóttir og fjöl
skylda hennar heilluðust svo
mjög af Spáni og kanarísku
eyjunum fyrir tíu árum að
þar verja þau nú hluta úr
hverju ári með þeim auka
verkunum að hún er búin að
gefa út þrjár ferðahandbækur
en í þeirri síðustu rekur hún
ýmsar leiðir til þess að njóta
lífsins á Costa Blanca.
toti@frettabladid.is
„Spánn er endalaus uppspretta
nýrra ævintýra og mig langar alltaf
að miðla því sem ég læri og upplifi,“
segir Snæfríður Ingadóttir sem ver
hluta hvers árs á Spáni eftir að hún
og fjölskylda hennar heilluðust ger
samlega af landinu og kanarísku
eyjunum.
Hún segir þau hafa reynt að halda
ferðakostnaðinum í lágmarki með
því að nýta sér íbúðaskipti sem
einnig hafa reynst henni drjúg fróð
leiksnáma og efniviður í þriggja
bóka ferðahandbókaf lokk en í
þeirri nýjustu og síðustu leiðir hún
lesendur um Costa Blanca.
Spánarhringnum lokað
„Íslendingar hafa í fjöldamörg ár
flykkst til Spánar á svæðið í kring
um Torrevieja og Alicante og margir
keypt sér þar fasteign og sest að og
í þessari bók er bent á ýmsa áhuga
verða hluti sem gaman er að skoða
og prófa á þessu svæði sem kennt er
við Costa Blanca,“ segir Svanfríður
um ferðahandbókina Costa Blanca
– Lifa og njóta.
„Þetta er þriðja handbókin sem
ég skrifa um vinsælustu sólar
áfangastaði Íslendinga og
hér með loka ég hringnum
eftir að hafa áður gefið út
sambærilegar handbækur
um Tenerife og Gran Can
aria,“ segir Snæfríður og
bætir aðspurð við að hún
sé þó hvergi nærri hætt að
ferðast til Spánar og skrifa
um landið.
Hugurinn alltaf á Tene
„Þessi ferðabókarskrif byrj
uðu eiginlega út frá íbúða
skiptunum en heimafólk
sem ég kynntist í gegnum þau var
alltaf að benda mér á hitt og þetta
áhugavert í nágrenninu. Mig lang
aði til þess að miðla upplýsingunum
áfram enda snýst Spánarlífið um
svo margt fleira en sól og sangríu.
Markaðurinn er mikill fyrir þetta
svæði enda ferðamennskan rót
gróin. Þjónustustigið er hátt og því
mjög þægilegt að vera ferðamaður
þarna.“
Snæfríður bendir á að það sé
áhugavert að þrjú íslensk flugfélög
bjóði upp á beint f lug til Alicante;
Play og Icelandair auk þess sem
Niceair frá Akureyri sé að bætast í
hópinn. Sem er ekki verra þar sem
Snæfríður býr á Akureyri, með
eiginmanni og þremur dætrum, en
er þó alltaf með hugann á Tenerife.
Þrjú hundruð daga sólskin
Snæfríður bætir við að þegar hún fór
að ferðast um svæðið hafi þó komið
henni mest á óvart hversu fjölbreytt
það er. „Flestir sækja jú í strendurn
ar, hið góða veðurfar, golfvellina og
líflegt skemmtanalíf Benidorm, en
það eru líka margir skemmtilegir
spænskir strandbæir og fjallaþorp á
þessu svæði byggð á gömlum grunni
sem gaman er að heimsækja.“
Snæfríður segir ferðafólk elska
Costa Blancasvæðið sem hún
tekur fyrir í nýjustu bókinni enda
skíni sólin þar í yfir 300 daga á ári.
„Costa Blanca hefur allt sem fólk
sækist eftir. Hvort sem það eru líf
legir barir, falleg náttúra, sælkera
matur, skemmtigarðar eða túrkis
blátt hafið. Alicante, Benidorm,
Calpe, Altea, Torrevieja, Orihuela
Costa, allir þessir staðir eru ólíkir en
hafa sinn sjarma og eru fullkomnir
til þess að lifa og njóta.“ n
Ekki bara sól og sangría
Heilluð af Spáni rekur Snæfríður ýmsar leiðir til að njóta lífsins á Costa Blanca í þriðju ferðahandbók sinni.
MYND/AÐSEND
Salurinn Kópavogi
14. apríl
Hof Akureyri
15. apríl
Grétar Örvarsson · Ragnheiður Gröndal
Karl Örvarsson · Ásta Soffía Þorgeirsdóttir
Eiður Arnarsson · Sigfús Óttarsson
Þórir Úlfarsson · Haukur Gröndal
Pétur Valgarð Pétursson
Sunnanvindur
Eftirlætislög Íslendinga
Miðasala á
Tix.is og Salurinn.is
Sigurður
Þórðarson
ginseng-
innflytjandi
Nýr bleikur Ópal
G+ er kominn í
hillur verslana
en auk þess að
vera sykurlaus og
með saltlakkrísbragði er honum
á umbúðunum talið til tekna að
innihalda heilsuefnin guarana,
ginseng og grænt te.
„Ginseng er orðið svolítið
safnheiti og segir mér ekki mikið
eitt og sér og það eru til margar
tegundir af því,“ segir Sigurður
Þórðarson, hjá Eðalvörum,
ókrýndur ginsengkóngur Íslands.
„Ginseng er komið saman
við allt mögulegt, hárnæringu,
sjampó og nammi,“
heldur Sigurður, sem
hefur um langt árabil
flutt inn Rautt eðal
ginseng frá Kóreu, þegar
hann er spurður hvort
ginseng þyki heppilegur
bragðbætir í sælgæti.
„Mér finnst alvöru
ginsengbragð gott en það er nú
yfirleitt ekki verið að selja þetta
út á bragðið heldur áhrifin vegna
þess að ginseng er ekkert ofsa-
lega bragðgott,“ segir Sigurður og
segist telja að fólk hafi yfirleitt
jákvæða tilfinningu gagnvart gin-
sengi.
„Ég yrði manna glaðastur ef
það er eitthvert almennilegt
ginseng í þessu en þá
ætti maður að finna
bragðið. Það er dálítið
beiskt heybragð af
ginsenginu,“ segir
Sigurður sem hafði ekki
smakkað Ópal G+ þegar
Fréttablaðið ræddi við
hann og komist að raun
um að lakkrísbragðið ríkir
yfir g-bætiefnunum þremur. n
Ginseng meira fyrir áhrif en bragð
SÉRFRÆÐINGURINN |
26 LÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 2. FEBRÚAR 2023
FIMMTUDAGUR