Fréttablaðið - 07.02.2023, Side 8

Fréttablaðið - 07.02.2023, Side 8
7,8 Jarðskjálfti sem mæld- ist 7,8 að stærð og eftir- skjálfti sem var 7,5. 3.000 Tala látinna í lönd- unum tveimur var sögð vera 2.300 manns síðdegis í gær. Það hefur einn maður haft samband við okkur sem er giftur íslenskri konu. Sélim Sariibra- himoglu, kjör- ræðismaður Íslands í Ankara Náttúruhamfarir Fjöldi látinna eftir harða jarð- skjálfta sem skóku Tyrkland og Sýrland í gær er enn ekki ljós. Eyðileggingin er gríðar- leg. Rústabjörgunarmaður lýsti vanmætti gagnvart verkefninu. gar@frettabladid.is Jarðskjálfti sem mældist 7,8 að stærð og eftirskjálfti upp á 7,5 olli miklu mannfalli í Tyrklandi og Sýr- landi í gær. Tala látinna í löndunum tveimur var sögð vera 3.000 manns síðdegis í gær, þar af voru um 1.500 dauðsföll í Tyrklandi og um 2.300 í Sýrlandi. Enn er leitað í rústum og búist er við að fjöldi látinna sé mun meiri. „Við erum ekki nálægt því að hafa nægan mannskap til að takast á við slíkar hamfarir,“ sagði björgunar- sveitarmaðurinn Ismail Alabdullah í símaviðtali við norska blaðið Ver- dens Gang. „Við heyrum fólk hrópa innan úr rústunum,“ sagði Alabdullah. Yasser Alhaji, sem starfar fyrir stjórnina á sjálfstjórnarsvæðinu í norðurhluta Aleppo í Sýrlandi, sagði við VG að þar vantaði tjöld, mat og tæki til að skera í gegn um stál og steypu. „Ástandið er skelfilegt. Fólk er í sárri þörf fyrir hjálp. Við þurfum alþjóðlegar björgunarsveitir, lækn- ingabúnað og færanlegar bráðamót- tökur. Við höfum lýst yfir neyðar- ástandi í norðvesturhluta Sýrlands öllum.“ n Neyðaróp fólksins bárust leitarfólki upp úr rústunum Við erum ekki nálægt því að hafa nægan mannskap til að takast á við slíkar hamfarir. Ismail Alabdullah, björgunar- sveitarmaður í Tyrklandi við Verdens Gang Ár Stærð Tala látinna Staður 2023 7,8 2.000+ Kahramanmaras 1999 7,6 17.000 Izmit 1999 7,2 845 Düzce 2011 7,0 604 Van 2020 7,0 117 Izmir 2020 6,8 41 Elazig 2003 6,4 167 Bingöl Stærstu jarðskjálftar í Tyrklandi frá 1999 Sautján þúsund létust í skjálfta 7,6 að stærð í Ismit 1999. FréTTaBlaðIð/EPa helgisteinar@frettabladid.is Sélim Sariibrahimoglu, kjörræðis- maður Íslands í Ankara, segir að það muni taka minnst tvo til þrjá daga áður en raunverulegt tjón af völdum jarðskjálftans verður ljóst. Sariibrahimoglu segir að engir Íslendingar hafi hingað til haft sam- band en skyldi það gerast er ræðis- skrifstofan tilbúin að veita aðstoð. „Það hefur einn maður haft samband við okkur sem er giftur íslenskri konu. En fyrir utan það erum við undirbúin skyldi einhver hringja.“ Þá segir hann jarðskjálftann koma á mjög erfiðum tíma. Vet- urinn hefur verið mjög harður og ofan á það hafa margir íbúar í landinu búið við mjög erfiðar efna- hagsaðstæður. Margir Tyrkir eru þrátt fyrir það að reyna að ferðast inn á svæðið í von um að bjarga ættingjum. Sariibrahimoglu segir að ríkis- stjórnin sé að gera sitt besta til að hjálpa og sérstaklega í ljósi þess að kosningar eru á næsta leiti og stjórnmálamenn reyni að vinna kjósendur á svæðinu á sitt band. „Þó svo að þetta sé hörmulegur atburður þá held ég að samstaðan sem ríkir milli fólksins á svæðinu og fólksins úti um allt Tyrkland sé það sterk að Tyrkir muni sigrast á þessum hörmungum,“ segir Sari- ibrahimoglu. n Kjörræðismaður segir Tyrki munu sigrast á hörmungum skjálftanna 8 fréTTir FRÉTTABLAÐIÐ 7. FeBRúAR 2023 ÞriÐJUDAGUr Aðstæður í Tyrklandi og Sýrlandi eru vægast sagt ömurlegar eftir skjálftana FréTTaBlaðIð/GETTy

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.