Fréttablaðið - 07.02.2023, Blaðsíða 13
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
ÞRIÐJUDAGUR 7. febrúar 2023
Helga Soffía Guðjónsdóttir er framkvæmdastjóri Rekstrarumsjónar þar sem öll húsfélög geta fundið rekstrarleiðir við hæfi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Húsfélagsreksturinn einfaldaður
með faglegri þjónustu
Rekstarumsjón er hafnfirskt fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í rekstri og þjónustu við
húsfélög. Framkvæmdastjórinn Helga Soffía Guðjónsdóttir segir mörgum létta við að losna
við áhyggjur af rekstri húsfélaga enda geti það verið flókin vinna og tímafrek. 2
Finnst þér hrátt kökudeig gott?
FRÉTTABLAÐIÐ/GeTTy
jme@frettabladid.is
Ert þú ein/nn/tt af þeim sem eiga
erfitt með að stoppa sig af þegar
kemur að hráu kökudeigi? Þarftu
alltaf að sleikja sleifina, hreinsa
skálina með tungunni og borða
endakökurnar áður en þær fara
inn í ofninn, þrátt fyrir að þekkja
áhættuna sem fylgir neyslu hrárra
eggja og óbakaðs hveitis?
Þá er þetta hrákökudeig himna-
sending fyrir þig, og ekki er verra
að aðalinnihaldið er próteinríkar
kjúklingabaunir. Að öllu gamni
slepptu þá er þetta auðvitað ekki
hollmeti og kemur ekki í stað mál-
tíðar. En sértu í stuði fyrir hrátt
smákökudeig er þessi uppskrift
ekki vitlaus lending. n
Kjúklingabaunakökudeig
1 dós skolaðar kjúklingabaunir
2 tsk. salt
2 tsk. vanilluextrakt
½ dl hnetusmjör að eigin vali
(möndlu-, jarðhnetu-, kasjú-)
Allt að ½ dl mjólk að eigin vali
1,5 dl púðursykur
1 dl suðusúkkulaði skorið í bita
2–3 msk. hafra-, möndlu- eða
annað hveiti til að þykkja
Hafrahveiti má búa til með því að
setja um 2 dl af höfrum í blandara
og púlsa uns það er orðið að dufti.
Settu öll innihaldsefni nema
súkkulaði í matvinnsluvél og
blandaðu uns mixtúran er mjúk.
Blandaðu loks súkkulaðibitunum
út í, kældu og njóttu.
Hrátt kökudeig
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is