Fréttablaðið - 07.02.2023, Blaðsíða 14
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
„Við finnum fyrir mikilli ánægju
hjá fólki sem kaupir af okkur
þjónustu. Oft og iðulega er það
sama fólkið sem lendir í því að
þurfa að sinna húsfélagsmálum ár
eftir ár og því léttir mjög við að það
dragi verulega úr þeirri vinnu og
áreiti sem fylgir því að vera í stjórn
húsfélags.“
Þetta segir Helga Soffía Guð
jónsdóttir, framkvæmdastjóri
Rekstrarumsjónar.
Hún bendir á að þau hjá Rekstr
arumsjón geti ekki verið félags
menn í húsfélagi né tekið sæti í
stjórn.
„Það þarf því alltaf að vera
stjórn í húsfélögum sem sér um
ákvarðanatökur. Við störfum í
umboði stjórnar, vinnum vinnuna
frá upphafi til enda og skilum full
unnu verki til hússtjórnarinnar
sem síðan þarf aðeins að taka
ákvörðun.“
Framúrskarandi þjónusta
Fyrirtækið var stofnað á vordögum
2017 og hefur stækkað ört síðan.
„Ástæða þess að við ákváðum
að fara út í þennan rekstur var
að ég og tvö systkini mín stóðum
í ströngu vegna setu okkar í
stjórnum húsfélaga sem öll voru að
kaupa þjónustu héðan og þaðan.
Okkur fannst skorta á þjónustuna
sem við vildum fá og ákváðum
í kjölfarið að bjóða sjálf upp á
framúrskarandi húsfélagaþjón
ustu,“ segir Helga Soffía.
Hún segir heilmikla vinnu í
kringum húsfélög.
„Við fundum fyrir þörfinni,
að fólk vill heldur borga öðrum
fyrir að sinna þessari vinnu og
eyða frekar tíma sínum í eitthvað
skemmtilegra. Þá eru ekki allir í
stakk búnir til að sinna þessum
málum og þurfa til þess aðstoð,“
segir Helga Soffía.
Til dæmis þurfi heilmikla þekk
ingu á lögum um fjöleignarhús og
reglum í skiptingu sameiginlegs
kostnaðar.
„Með því að nýta þjónustu okkar
er líka oft hægt að fá betri tilboð
fyrir húsfélög í ýmsa rekstrarliði,
eins og tryggingar, þrif og fram
kvæmdir.“
Traust og persónuleg þjónusta
Frá stofnun til loka árs 2020 voru
þau tvö úr fjölskyldunni sem sáu
um allan rekstur félagsins, Helga
Soffía og mágur hennar.
„Það er mikil eftirspurn eftir
þjónustu okkar og í upphafi árs
2021 byrjuðum við að bæta í
hópinn. Við erum nú sex sem
sinnum daglegum störfum á skrif
stofunni og enn fleiri sem koma að
fundarhaldi með okkur,“ greinir
Helga Soffía frá.
Hún segir markmið Rekstrar
umsjónar að veita trausta og per
sónulega þjónustu.
„Starf okkar byggir á góðu sam
starfi við viðskiptavini, þar sem
virðing og fagmennska er höfð í
fyrirrúmi. Rekstur og málefni hús
félaga krefjast mikillar vandvirkni
og tíma, en oftar en ekki lendir
þunginn á sömu einstaklingunum
ár eftir ár. Þar kemur Rekstrarum
sjón inn í; við sérhæfum okkur í
rekstri húsfélaga og getum þannig
létt undir og tekið ábyrgð á málum
sem annars lenda á íbúum fjöl
eignarhúsa,“ upplýsir Helga Soffía.
Hagræðing og minni kostnaður
Með aðkomu Rekstrarumsjónar
er allri þjónustu húsfélaga haldið
til haga á einum stað. Með því má
oft ná fram hagræðingu og lækka
ýmsan rekstrarkostnað.
„Nú er í gangi aðalfundatíma
bil húsfélaga sem er annasamt
tímabil hjá okkur. Samkvæmt
lögum um fjöleignarhús er hús
félögum skylt að halda aðalfund
fyrir lok aprílmánaðar ár hvert.
Með þjónustu Rekstrarumsjónar
eru allar áhyggjur af undirbúningi
slíkra funda, stjórnun þeirra og
eftirfylgni úr sögunni. Íbúar og
stjórn húsfélaga geta treyst því
að framkvæmd fundanna og
ákvarðanatökur á þeim séu sam
kvæmt lögum, reglum og venjum
á sviði fjöleignarhúsa. Þá vinnum
við einnig ársreikninga fyrir fundi,
sem og rekstrar og húsgjaldaáætl
anir, en það getur oft vafist fyrir
fólki,“ segir Helga Soffía.
Þrjár vinsælar rekstrarleiðir
Rekstrarumsjón býður viðskipta
vinum sínum upp á þrjár rekstrar
leiðir. Því ættu öll húsfélög að geta
fundið leið sem hentar þeim.
n Rekstrarleið 1: Fjármál og
innheimta.
Í grunninn samsvarar þessi leið
gjaldkerastarfinu í húsfélaginu.
„Við sjáum um að greiða
reikninga og gætum þess að
húsfélagið fái allan virðisauka-
skatt endurgreiddan sem
það á rétt á. Þá sjáum við um
innheimtu húsgjalda og sjáum
til þess að þeim sé fylgt eftir
með innheimtuviðvörunum
og jafnvel lögheimtu, sé þess
þörf. Þá færum við bókhald og
gerum ársreikninga, svo dæmi
séu tekin. Þá sjáum við einnig
um gerð húsfélagsyfirlýsinga til
fasteignasala án aukagreiðslu,
enda heyri slíkt undir þjónustu
okkar,“ greinir Helga Soffa frá.
n Rekstrarleið 2: Fundaþjónusta
Í þessari leið bætist við
þjónusta í kringum árlegan
aðalfund.
„Við tryggjum að boðað sé lög-
lega til aðalfundar, stjórnum
fundinum og ritum fundargerð,
auk þess að tryggja að ákvarð-
anatökur séu eftir réttum
leiðum og taki tillit til laga um
fjöleignahús. Þá er jafnframt
unnin rekstrar- og húsgjalda-
áætlun út frá gjöldum síðasta
árs,“ upplýsir Helga Soffía.
n Rekstrarleið 3: Full þjónusta
„Langflestir kjósa þessa leið.
Þá sinnum við, auk fjármála og
fundaþjónustu, öllu öðru sem
til fellur. Við öflum til dæmis
tilboða í daglegan rekstur eða
framkvæmdir ef þær standa
til. Við veitum ráðgjöf, komum
að ágreiningsmálum og veitum
grunnlögfræðiráðgjöf,“ útskýrir
Helga Soffía. n
Rekstrarumsjón er í Bæjarhrauni
6 í Hafnarfirði. Opið 9 til 16 virka
daga. Sími 571 6770. Netfang: um-
sjon@rekstrarumsjon.is Nánari
upplýsingar á rekstrarumsjon.is
Starfsfólk
Rekstrar-
umsjónar, frá
vinstri: Bogi
Agnar Gunn-
arsson, Helga
Soffía Guðjóns-
dóttir, Guðjón
Geir Geirsson,
Aníta Eva
Arnarsdóttir,
Brimrún Björg-
ólfsdóttir og
Bryndís Malana.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Það er nóg að gera á skrifstofu Rekstrarumsjónar enda hefur margvísleg
þjónusta fyrirtækisins hitt beint í mark hjá húsfélögum. MYND/AÐSEND
Með því að nýta
þjónustu okkar er
líka oft hægt að fá betri
tilboð fyrir húsfélög í
ýmsa rekstrarliði, eins
og tryggingar, þrif og
framkvæmdir.
Helga Soffía Guðjónsdóttir
2 kynningarblað A L LT 7. febrúar 2023 ÞRIÐJUDAGUR