Fréttablaðið - 07.02.2023, Qupperneq 16
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Jóhann Waage, waage@frettabladid.is, s. 550 5656.
dk hugbúnaður fagnar 25 ára
afmæli nú í ár og er með ýmislegt í
farvatninu til að fagna þeim tíma-
mótum. Undanfarinn aldarfjórð-
ung hefur dk selt einn vinsælasta
viðskiptahugbúnað landsins en
um er að ræða alhliða viðskipta-
og upplýsingakerfi sem er þróað á
Íslandi fyrir íslenskar aðstæður. dk
hugbúnaður er leiðandi á sviði við-
skiptahugbúnaðar fyrir minni og
meðalstór fyrirtæki að sögn Mar-
grétar Sveinbjörnsdóttur, sviðs-
stjóra sölu- og markaðssviðs dk.
„Fyrirtæki sem nota dk við-
skiptahugbúnaðinn eru úr flestum
atvinnugreinum og eru nú um sjö
þúsund talsins og fjölgar jafnt og
þétt. Það er mjög auðvelt að taka
kerfið í notkun og það kemur nán-
ast að fullu uppsett með leiðbein-
ingum. Með kerfinu fylgja uppsett
fyrirtækjaform en hvert fyrir-
tækjaform inniheldur tilbúinn
bókhaldslykil með tengingum við
undirkerfi, uppsettan rekstrar- og
efnahagsreikning ásamt sundur-
liðunum og sjóðstreymi.“
Vöruframboð dk hugbúnaðar
inniheldur meðal annars bók-
haldskerfi, framleiðslukerfi, inn-
kaupa- og birgðakerfi, afgreiðslu-
kerfi fyrir verslanir og veitingahús,
launakerfi, stimpilklukkukerfi,
verkbókhaldskerfi, vefþjónustur,
félaga-, styrkja- og sjóðaumsýslu-
kerfi og skattframtalskerfi. „Auk
þess má nefna dk One sem eru
léttar lausnir sem má sækja í App
Store og Google Play, svo sem sölu-
kerfi, verkskráningarkerfi, sam-
þykktarkerfi, kostnaðarskráningu
og greiningarkerfi/mælaborð.“
Öflug hýsingardeild veitir
viðskiptavinum öryggi
Margrét segir dk bjóða upp á
heildarlausn í hýsingarþjónustu.
Fyrirtækið rekur stóra og mikla
skýjaþjónustu undir nafninu
dk Vistun og er leiðandi á því sviði.
„Rúmlega sex þúsund viðskipta-
vinir nýta sér hýsingu og skýja-
lausnir dk fyrir rétt rúmlega 30
þúsund fyrirtæki. Þessi þjónusta
hefur vaxið mjög mikið síðan árið
2007 þegar hýsingarþjónustan var
stofnuð.“
Hún segir öryggi viðskiptavina
vel tryggt og að allur vélbúnaður
dk sem og kerfissalur uppfylli
ströngustu kröfur um gagnateng-
ingar, varaaflsstöðvar, aðgangs-
stýringar og vírusvarnir auk þess
sem bruna- og vatnslekavarnir
séu uppfylltar og er sólarhrings-
vakt á kerfunum. „dk sér um
alla afritun gagna og uppfærslu
hugbúnaðar sem tryggir aukið
rekstraröryggi fyrir fyrirtæki. Auk
þess veitir skýið hjá dk viðskipta-
vinum aukið frelsi því þeir geta
nálgast upplýsingar sínar úr dk
viðskiptahugbúnaðinum hvaðan
sem er úr heiminum sem skapar
tvímælalaust hagræði. Skýjalausn
dk hentar jafnt PC- sem Mac-not-
endum.“
Spennandi nýjungar
dk One smáforritið hefur verið
vinsæl lausn og er ætlað fyrir þá
notendur sem eru mikið á ferðinni
og vilja geta nýtt nýjustu tækni. dk
One er bæði veflausn og smáforrit
en smáforritin eru fáanleg í App
Store fyrir Apple-tæki og Google
Play fyrir Android-tæki. „Með dk
One smáforritinu er hægt að nýta
nýjustu tækni til að einfalda vinnu
við bókhald, sölu, samþykktir
reikninga, kostnaðarskráningu,
verkbókhaldsskráningu og
skýrslugerð.“
Á haustmánuðum kom upp-
færsla á dk One. „Þá komu inn tvær
nýjungar sem tengjast lánar-
drottnakerfinu. Önnur þeirra er
dk One samþykktir, sem er einföld
leið til að samþykkja reikninga og
hin er dk One kostnaður sem er
þægileg leið til kostnaðarskrán-
ingar.“
Með dk One samþykktum er
hægt að samþykkja reikninga sem
hafa verið settir inn í samþykktar-
kerfi dk viðskiptahugbúnaðar.
„Þannig sparast mikill tími við
skráningu og utanumhald reikn-
inga. Með dk One kostnaði er hægt
að taka myndir af fylgiskjölum og
senda beint í bókhaldið. Einnig er
hægt að hlaða inn öðrum skjölum
og skrá inn sem reikning.“
Kerfið er einföld og fljótleg
leið fyrir kostnaðarskráningu í
bókhaldskerfi að sögn Margrétar.
„Skjölin færast beint inn í dk bók-
haldskerfið sem færir allt á rétta
lykla. Þannig sparast mikill tími
við bókun á reikningum. Reikn-
ingurinn kemur strax í bókhaldið
og hægt er að skila inn frumriti
reiknings eftir þörfum.“
Einfaldar vinnu
við jafnlaunavottun
Jafnlaunagreining er dæmi um
nýlega viðbót hjá dk hugbúnaði,
þar með talinn innlestur grunn-
gagna frá notendum vegna jafn-
launagreiningar. „Þessi gögn eru
síðan unnin saman við launagögn
og reiknaðir út ýmsir þættir sem
tengjast jafnlaunagreiningu, til
dæmis stig fyrir persónubundna
þætti og einstök störf.“ Einnig er
reiknaður út launamunur kynja
út frá þeim forsendum sem eru
gefnar. „Upplýsingarnar eru síðan
hluti af þeim gögnum sem þarf að
skila til að öðlast jafnlaunavottun
sem veitt er af þar til bærum
aðilum.“
Að sögn Margrétar einfaldar
kerfið alla vinnu við jafnlauna-
vottun og sparar fyrirtækjum dýr-
mætan tíma sem fer í þessa vinnu
sem er alla jafna mjög tímafrek.
„Kerfið er því mikið hagræði fyrir
fyrirtæki og ávinningurinn mikill
fyrir viðskiptavini dk að nýta sér
jafnlaunagreininguna og fá aðstoð
í ferlinu frá ráðgjöfum okkar.“
Nýlega hefur innbyggða hjálpin í
kerfinu verið endurskrifuð og fleiri
hjálpargluggum (Wizard) hefur
verið bætt við kerfið. „Nú er einnig
möguleiki á að lesa rafræn fylgi-
skjöl í töflu í stað þess að vera með
þau á gagnadrifi.“
Samfélagsleg ábyrgð
dk hugbúnaður hefur skrifað undir
viljayfirlýsingu um innleiðingu
Heimsmarkmiða Sameinuðu
þjóðanna um sjálfbæra þróun og
er fyrirtækið meðvitað um sam-
félagslega ábyrgð sína gagnvart
fólki og umhverfinu. „Megin-
áhersla dk er á stafræn viðskipti
og tækni þar sem fyrirtækið getur
haft jákvæð áhrif og stuðlað að
góðum lausnum fyrir viðskipta-
vini sína. Nýlega þróaði dk lausn
með Endurvinnslunni þar sem
í stað kortagreiðslukassa er við-
skiptavinum boðið að sækja app
og fá skilagjaldið greitt í gegnum
símann. Á talningarmiðanum
er QR-kóði sem er skannaður og
skilagjaldið er millifært inn á
reikning.“
Mikil hagræðing
með aukinni sjálfvirkni
Með rafrænum reikningum skila
upplýsingar sér hratt á milli kerfa
og villuhætta minnkar auk þess
sem fjárstreymi verður skilvirkara
í alla staði. „Meðhöndlun rafrænna
reikninga tekur að meðaltali þrjá
daga á meðan meðhöndlun papp-
írsreikninga tekur að meðaltali
15 daga og er því um 80 prósenta
hagræðingu að ræða. Það gefur
augaleið hversu mikill ávinn-
ingur þetta er fyrir umhverfið og
kolefnissporið.“
Hún segir fyrirtækið leggja
mikla áherslu á meiri sjálfvirkni
í kerfinu og rafræn samskipti inn
og út úr því. „Þar koma smáfor-
ritin og veflausnir sterkar inn og
það má segja að þær lausnir séu
framlenging á bókhaldskerfið.
Þessar lausnir eru mikil hagræðing
í rekstri og starfsemi fyrirtækja
og starfsmenn dk veita aðstoð
við úttekt á þörfum fyrirtækja
og ráðleggja meðal annars við
rafræn viðskipti, tæknilausnir og
jafnlaunagreiningu. Fyrirtækið er
gagnadrifið og aðstoðar viðskipta-
vini með snjöllum tæknilausnum
að takast á við gagnadrifnari og
sjálfbærari framtíð.
Samstarf við Promennt
Við höfum átt í árangursríku
samstarfi við Promennt sem er að
eflast.“ dk hefur um árabil haldið
námskeið þar sem starfsmenn dk
kenna viðskiptavinum á kerfið.
Staðnámskeiðin hafa hingað til
verið haldin í húsakynnum dk
hugbúnaðar í Turninum í Kópa-
vogi ásamt því að úrval námskeiða
í fjarkennslu er í boði rafrænt. „Nú
í byrjun árs hóf dk samstarf við
Promennt svo að staðnámskeiðin
verða framvegis haldin í kennslu-
stofum Promennt í Skeifunni 11b.
Kennarar námskeiðanna verða líkt
og áður starfsmenn dk hugbúnaðar
en allt utanumhald og skipulag er
nú í höndum Promennt sem býður
upp á fyrsta flokks aðstöðu og
aðbúnað til kennslunnar. Fyrstu
námskeiðin hafa nú þegar verið
haldin og fer skráning fram á
heimasíðu Promennt.“ n
Nánar á dk.is.
Hluti af sölu- og markaðsteymi dk. F.v. eru Sæunn Sævarsdóttir, Svana Kr. Sigurjónsdóttir, Margrét Sveinbjörnsdóttir og Ragnheiður Sigþórsdóttir. Á myndina
vantar Hafstein Róbertsson og Egil Áskelsson. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
dk hugbúnaður
fagnar 25 ára
afmæli í ár. Hjá
fyrirtækinu
starfa rúm-
lega 60 manns
við hugbún-
aðargerð og
þjónustu.
Rúmlega sex þús-
und viðskiptavinir
nýta sér hýsingu og
skýjalausnir dk fyrir rétt
rúmlega 30 þúsund
fyrirtæki.
Margrét Sveinbjörnsdóttir
2 kynningarblað 7. febrúar 2023 ÞRIÐJUDAGUREndurskoðun og bókhald