Fréttablaðið - 07.02.2023, Síða 17
Bókhaldslausn-
irnar sem við
höfum sérhæft okkur í
skila viðskiptavinum
okkar öruggum og
einföldum verkferlum.
Anna Lilja Sigurðardóttir
Svar er tæknifyrirtæki sem
sérhæfir sig í að aðstoða
fyrirtæki við að ná fram
skilvirkni og hagræðingu
í rekstri með samþáttun
alhliða rekstrarlausna, Auk
þess er boðið upp á bók-
haldsþjónustu, ársreikninga-
skil, skattskil og almenna
ráðgjöf.
Anna Lilja Sigurðardóttir er
deildarstjóri bókhaldsdeildar
Svars. Hún sinnir einnig innleið-
ingarvinnu, ráðgjöf og þjónustu
við viðskiptavini tengt Uniconta
og öðrum lausnum. Anna segir að
fyrirtækið hafi verið starfandi frá
árinu 2011 en verkefnin hafi þróast
mikið á undanförnum árum.
„Tækninýjungar og breytingar
í rekstri fyrirtækja hafa kallað
á stefnubreytingu innan starf-
seminnar og því hefur hún færst
frá því að vera símkerfaþjónusta
yfir í að þjónusta breiðan hóp
viðskiptavina með hinum ýmsu
tæknilausnum en einnig að bjóða
upp á bókhalds- og rekstrarráð-
gjöf,“ útskýrir hún.
„Við nýtum okkur nútímatækni
til að minnka handavinnu og
getum á þann veg veitt viðskipta-
vinum þjónustu með annarri
nálgun en viðgengist hefur í
bókhaldsþjónustu. Við teljum
okkur vera leiðandi í að skipu-
leggja umbætur í tæknimálum
viðskiptavina okkar með þeim
forsendum að auka skilvirkni,
arðbærni og bæta vinnuaðstæður.
Hugsjón okkar er að viðskiptavinir
geti unnið í eins notendavænu og
viðhaldslitlu tækniumhverfi og
kostur er en það er eitthvað sem
flesta hefur hingað til aðeins getað
dreymt um. Einnig er vert að nefna
að viðskiptavinir okkar upplifa
aukinn tímasparnað og sjálfvirkni,
betri yfirsýn, skilvirkara vinnu-
umhverfi og ánægðara starfsfólk.“
Dýrmætur mannauður
Þegar Anna Lilja er spurð hver sé
sérstaðan hjá Svar, svarar hún:
„Okkar helsta sérstaða er mann-
auðurinn en hér starfar samheld-
inn og lausnamiðaður hópur með
víðtæka þekkingu og fjölbreyttan
bakgrunn. Við bætum hvert annað
upp og saman leysum við þau
verkefni sem við stöndum frammi
fyrir. Samvinna starfsmanna skilar
sér beint til viðskiptavina í formi
betri lausna sem henta þeirra
rekstri.
Hvað bókhaldsþjónustuna
varðar þá leggjum við áherslu á
pappírslaust bókhald, rafræna
móttöku reikninga og sækjum,
eftir fremsta megni, þau gögn sem
vantar. Það hefur færst í aukana að
fyrirtæki velji þann kost að útvista
bókhaldi sínu og er helsta ástæða
þess þekkingar- og tímaleysi
innan fyrirtækisins. Þar getum
við stigið inn og veitt þjónustu
eins og að sjá um bókhald með
því að bjóða upp á sérfræðiráðgjöf
og tæknilega aðstoð ásamt því að
við getum leyst úr vandamálum
með breiðu úrvali sérvaldra hug-
búnaðarlausna sem hægt er að
samþætta við þann hugbúnað sem
fyrirtækin eru nú þegar að nota,“
útskýrir Anna.
Lausn fyrir iðnaðarmenn
„Þá er einnig vert að nefna að Svar
býður upp á eina bestu lausnina
á markaðnum í dag fyrir iðnaðar-
menn, hvort sem þeir eru einyrkjar
eða með menn í vinnu, en það er
tíma- og verkskráningarkerfið
Intempus. Þar er um að ræða sér-
hannaða lausn fyrir þá sem eru
mikið á ferðinni og þurfa trausta
lausn til að halda utan um vinnu-
stundir. Intempus er í boði sem
lausn í vafra og sem smáforrit (e.
app) í síma þar sem allir unnir
tímar eru skráðir á viðeigandi verk,
hægt er að skrá útlagðan kostnað
sem færist beint á rétt verk og
getur verkstjóri fært starfsmenn
milli verka og stýrt úthlutuðum
tímum starfsmanna. Svar hefur
breiðan hóp viðskiptavina, ekkert
fyrirtæki er of lítið né rekstur of
flókinn,“ segir hún.
Anna Lilja segir að starfsmenn
Svars séu ávallt á tánum varðandi
tækninýjungar. „Við brennum
fyrir því að finna bestu lausnirnar
sem eru í boði hverju sinni sem
geta komið að gagni til að aðstoða
fyrirtæki við að ná fram skilvirkni
og hagræðingu í rekstrinum og
leggjum áherslu á að minnka
alla handavinnu sem viðskipta-
vinurinn þarf að inna af hendi eins
og kostur er.
Við erum einnig endursöluaðilar
ZOHO hugbúnaðarins (www. one.
zoho.com) sem býr yfir 50 mis-
munandi tólum og tækjum, líkt
og CRM viðskiptatengslakerfi,
SIGN lausninni sem býður upp
á rafræna undirritun samninga
og skjala og stenst Zoho Sign
íslensk lög og reglur, og SALESIQ
sem er lausn sem gerir viðskipta-
vinum okkar kleift að fylgjast
með hverjir heimsækja vefi þeirra
og auðveldar þeim að umbreyta
heimsóknum viðskiptavina yfir í
sölur og frekari viðskipti. Sér-
fræðingar í Bandaríkjunum á sviði
hugbúnaðarlausna hafa spáð því
að innan fimm ára verði ZOHO
búið að taka fram úr sínum helstu
samkeppnisaðilum, líkt og Sales-
Force, Oracle og Microsoft og muni
vera leiðandi á markaðnum og
erum við hjá Svari að gera okkur
reiðubúin til að svara kallinu og
leiða byltinguna. Einnig erum við
að taka okkar fyrstu skref í þá átt
að innleiða tímaskráningaforritið
TimeLog sem er svokallað PSA
kerfi (Professional Services Autom-
ation) og er gríðarlega kröftugt tól,
en það er alhliða verkskráninga-
kerfi sem gagnast hér um bil öllum
fyrirtækjum sem þurfa að hafa tól
til að fylgjast með verkskráningum
og útseldri vinnu. Við höfum sjálf
verið að innleiða kerfið innanhúss
hjá okkur með virkilega góðum
árangri og verður TimeLog komið
í hóp lausnanna sem við bjóðum
upp á til viðskiptavina okkar með
hækkandi sól,“ segir Anna.
Með góða yfirsýn
Við viljum vera gagnvirk og kvik
og reynum að sækja eins mikið af
reikningum rafrænt eða í gegnum
þjónustusíður fyrirtækja og hægt
er. Við hugsum bókhaldsþjónust-
una út frá því að vera eftirlitsaðilar
þar sem við erum með yfirsýnina
yfir bókhaldið og sjáum til þess að
allt stemmi. Okkar markmið er að
bókhaldið sé stemmt af fyrir hver
VSK-skil svo við getum verið að
skila ársuppgjörum í byrjun ársins.
Við reynum eftir fremsta megni
að hafa bókhaldið ávallt uppfært
samdægurs til að losna við mikla
afstemmingarvinnu við ársupp-
gjörin. Þetta býður viðskiptavin-
um okkar upp á að einbeita sér að
nýju ári og tækifærum í stað þess
að horfa í baksýnisspegilinn langt
fram eftir nýju ári,“ segir Anna
Lilja og bætir við: „Númer eitt, tvö
og þrjú þá tel ég að kerfin sem við
erum að vinna með séu notenda-
væn og uppfylli nútíma öryggis-
staðla. Bókhaldslausnirnar sem
við höfum sérhæft okkur í skila
viðskiptavinum okkar öruggum og
einföldum verkferlum, hugbúnaði
sem er hægt að treysta á að virki án
þess að þurfa að hafa mikið fyrir
því að nota hann, traustum ferlum
í reikningagerð, VSK-skilum og
þægilegri launavinnslu með sam-
þáttun við Payday launakerfið.“
Lausnir sem skila þægindum
Lausnir eins og ZOHO, Intempus,
Curio og Timelog skila þægindum
og straumlínulaga ferlum í dag-
legri vinnu, vel hönnuðu kerfi og
notendavænu viðmóti ásamt því
að sjálfsögðu að það er greiður
aðgangur að sérfræðingum okkar
hjá Svari ef eitthvað kemur upp
sem þarfnast sérfræðiþekkingar
okkar til að leysa. Við erum til
þjónustu reiðubúin. Almennt
séð þá tekur innleiðing Uniconta
frekar stuttan tíma þar sem við
bjóðum upp á þjálfun frá sérhæfð-
um starfsmönnum innan Svars í
öllu sem snýr að innleiðingu og
uppsetningu Uniconta.
Nútímaviðskiptasamfélag snýst
um að vera tilbúin að tileinka sér
nýja tækni og vinnubrögð og það
er öllum til góða að vera tilbúin í
breytingar. Í grunninn eru fyrir-
tæki ekkert án starfsmanna sinna
og því er mikilvægt þegar teknar
eru ákvarðanir um breytingar
að tala við fólkið á gólfinu, með
því færðu alla í lið með þér og
breytingarnar verða sameiginlegt
verkefni allra í stað ákvörðunar-
valds stjórnenda. Þetta snýst um
að vera tilbúin, sjá tækifærin til
lærdóms og þroskann sem fylgir
því að takast á við ný og spennandi
verkefni.“
Fræðsla og kennsla
„Eftir að nýtt kerfi hefur verið sett
upp bjóðum við upp á þjálfun. Við
ýmist fáum notendur til okkar
í kennslu eða mætum í þeirra
vinnuumhverfi og aðstoðum við
að komast af stað. Við erum með
sérþjálfaða starfsmenn, bæði sér-
fræðinga í bókhaldi, hugbúnaði
og tæknilausnum sem kappkosta
að veita góða kennslu á kerfin. Við
bjóðum upp á alhliða þjónustu,
allt frá fyrstu skrefum upp í að
viðskiptavinurinn getur farið að
nota kerfið sjálfur án aðstoðar. Við
erum reynslumikil á þessu sviði
og aðstoðum viðskiptavini okkar
með glöðu geði og brosi á vör.
Hjá Svari starfa 14 starfsmenn
og við leggjum metnað í að hafa
hæft og vel menntað fólk innan-
borðs. Fólk með víðtæka þekkingu
og reynslu af rekstri, bókhaldi,
launavinnslum, VSK-skilum, fram-
talsgerð og skatta- og ársuppgjöri.
Hjá okkur starfa viðurkenndir
bókarar, viðskiptafræðingar með
Macc-gráðu, og löggiltur endur-
skoðandi. Innan raða Svars starfa
einnig forritarar og tæknimenn
sem eru okkur innan handar við
að leysa tæknivandamál ásamt sér-
fræðingum í hugbúnaðarinnleið-
ingu og einnig höfum við verkefna-
stjóra innanstokks sem vinnur
þvert á deildir og sér um að stýra
verkefnum með hugmyndafræði
faglegrar verkefnastjórnunar.
Við erum stolt af heimasíðunni
svar.is þar sem eru helstu upp-
lýsingar. Einnig er hægt að hringja
í aðalnúmer okkar 510 6000 eða
senda tölvupóst á sala@svar.is
ef erindið er að hefja samtal um
viðskipti. Hjálpin okkar er einnig
til taks en hana er hægt að nálgast
á netfanginu hjalp@svar.is. Það er
alltaf heitt á könnunni hjá okkur
og við tökum því fagnandi að fá
viðskiptavini til okkar í heim-
sókn. Við erum í Síðumúla 35, 108
Reykjavík. n
Svar einfaldar bókhaldið með nýjustu tækni
Anna Lilja,
deildarstjóri
bókhaldsdeildar
Svars, segir að
tækninýjungar
og breytingar í
rekstri fyrir-
tækja hafi kallað
á stefnubreyt-
ingu innan
starfseminar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Hjá Svari starfar
samheldinn
hópur sem
vinnur vel
saman.
kynningarblað 3ÞRIÐJUDAGUR 7. febrúar 2023 EndurSkoðun og bókhald