Fréttablaðið - 07.02.2023, Síða 32
Það er eitthvað skemmti-
legt að halda þetta á
staðnum en ekki alfarið í
streymi. Það er gaman að
geta hist aftur.
Merkisatburðir |
Þetta gerðist | | 7. FEBRÚAR 1940
Elsku hjartans eiginmaður minn og
besti vinur barna minna,
Sigtryggur Benedikts
skipstjóri,
Hæðagarði 6, Höfn,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu
Skjólgarði þann 26. janúar. Útförin fer fram frá
Hafnarkirkju þann 18. febrúar kl. 11.00. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á minningarsjóð Skjólgarðs.
Streymt verður frá athöfninni á heimasíðu
Bjarnanesprestakalls, www.bjarnanesprestakall.is
Bryndís Flosadóttir
Flosi Ásmundsson
Laufey Helga Ásmundsdóttir
Fanney Birna Ásmundsdóttir Sveinn Guðmundsson
Dagný Rós Ásmundsdóttir Timothy Masteliwch
Anita Rut Ásmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Sólarhringsvakt: 581 3300 & 565 5892
Komum til aðstandenda og ræðum skipulag sé þess óskað
Sverrir Einarsson
S: 896 8242
Jón G. Bjarnason
S: 793 4455
Jóhanna
Eiríksdóttir
Útfararstofa Íslands
www.utforin.is w Auðbrekku 1, Kópavogi
Útfararstofa Hafnarfjarðar
www.utfararstofa.is w Dofrahellu 9b, Hafnarfirði
Gosi var önnur teiknimynd Walt Disney
í fullri lengd og var ætlað að fylgja eftir
vinsældum Mjallhvítar og dverganna sjö
sem slegið höfðu rækilega í gegn. Gosi
var frumsýndur í kvikmyndahúsum í
Bandaríkjunum 7. febrúar 1940.
Myndin var byggð á skáldsögunni
vinsælu Ævintýri Gosa eftir Ítalann Carlo
Collodi. Handritið sömdu Aurelius Batt
aglia, William Cottrell, Otto Englander,
Erdman Penner, Joseph Sabo, Ted Sears
og Webb Smith.
Fimm leikstjórar skiptu á milli sín
köflum úr bókinni, þeir Norman Fergu
son, T. Hee, Wilfred Jackson, Jack Kinney
og Bill Roberts.
Teiknimyndin um Gosa hlaut
tvenn Óskarsverðlaun árið 1940.
Fyrir bestu frumsömdu tónlistina,
sem var eftir Leigh Harline og Ned
Washington sem sömuleiðis sömdu
lagið sem hlaut Óskarinn sem besta
frumsamda lagið: When You Wish Upon
a Star. n
1812 Byron lávarður flytur jómfrúarræðu sína í lávarða
deild breska þingsins.
1942 Húsmæðraskóli Reykjavíkur tekur til starfa. Fyrsti
skólastjórinn er Hulda Á. Stefánsdóttir.
1974 Concordeþota lendir í fyrsta sinn á Keflavíkur
flugvelli.
1985 „New York, New York“ verður opinber söngur New
Yorkborgar.
1991 Írski lýðveldisherinn gerir sprengjuvörpuárás á
Downingstræti 10 í London þar sem ríkisstjórnar
fundur stendur yfir.
1992 Evrópusambandið er stofnað með Maastricht
samningnum.
1998 Vetrarólympíuleikarnir hefjast í Nagano, Japan.
2005 Ellen MacArthur setur met í einmenningssiglingu
umhverfis jörðina þegar hún fer yfir markið við
Ushant eftir 71 dags, 14 tíma, 18 mínútna og 33
sekúndna siglingu.
2014 Vetrarólympíuleikarnir 2014 eru settir í Sotsjí í Rúss
landi.
Teiknimynd um Gosa frumsýnd
Jafnréttisdagar háskólanna á
Íslandi fara nú fram. Dagarnir
voru settir í gær með fyrirlestri um
bakslagið í hinsegin baráttunni en
þeim lýkur á fimmtudag með sam-
eiginlegri ráðstefnu skólanna sjö.
benediktboas@frettabladid.is
Jafnréttisdagar fara nú fram í háskólum
landsins og víðar og standa dagarnir
yfir til 9. febrúar. Bakslagið í hinsegin
baráttunni, netið, kvenhatur og sam-
særiskenningar, stéttaskipting í íslensku
málsamfélagi, umræður um vald, máls-
meðferð stjórnvalda í málum f lótta-
kvenna, jafnréttisvöfflur, upplifun og
aðgengi jaðarhópa að háskólanámi,
einhverfuhittingur, öráreiti og femínísk
sjálfsvörn sem forvörn við kynbundnu
ofbeldi er aðeins brot af veglegri dagskrá
Jafnréttisdaga.
Það var í mörg horn að líta hjá Birtu
Ósk Hönnudóttur, verkefnisstýru Jafn-
réttisdaga, þegar Fréttablaðið heyrði í
háni en dagarnir voru settir í gær með
fyrirlestri um bakslagið í hinsegin bar-
áttunni.
„Það er margt að gerast á næstu
dögum, fróðlegt en líka skemmtilegt.
Fjórði dagurinn, sem er á fimmtudag,
verður ráðstefnudagur þar sem allir
háskólarnir standa að sameiginlegri
ráðstefnu sem verður bæði í hátíðar-
sal Háskólans á Akureyri og hátíðarsal
Háskóla Íslands, og í beinu streymi,“
segir hán.
Dagarnir eru eitt stærsta samstarfs-
verkefni háskólanna sjö sem eru á
Íslandi en hafa farið fram undanfarin
tvö ár á netinu vegna kórónaveirufarald-
ursins. Birta segir að það sé skemmtilegt
að geta hist að nýju. „Þetta er skemmti-
legt verkefni að stýra. Það er mikið
samstarf á milli háskólanna og það er
eitthvað skemmtilegt að halda þetta á
staðnum en ekki alfarið í streymi. Það
er gaman að geta hist aftur,“ segir hán.
Dagskráin hefur bæði tekið mið af
málefnum líðandi stundar og þeim öru
breytingum sem eru í málaflokknum
og samfélaginu. Þátttakendur og fyrir-
lesarar koma meðal annars úr háskóla-
samfélaginu, frá ýmsum stofnunum og
félagasamtökum, ásamt fleiri aðilum.
Dagarnir voru settir í gær með við-
burði á vegum samráðsvettvangs jafn-
réttisfulltrúa háskólanna. Þá komu þau
Bjarni Snæbjörnsson, leikari, skemmti-
kraftur og rithöfundur, og Svandís Anna
Sigurðardóttir, sérfræðingur í hinsegin
og kynjajafnréttismálum á Mannrétt-
inda- og lýðræðisskrifstofu Reykja-
víkurborgar, og ræddu það bakslag sem
hefur orðið í hinseginbaráttunni undan-
farin misseri. Viðburðurinn var í beinu
streymi og opinn öllum, eins og allir
aðrir viðburðirnir.
Alls verða yfir 20 spennandi stað- og
fjarviðburðir á boðstólum. Fólk sem
skilgreinir sig einhverft, hvort sem það
hefur greiningu eða ekki, stendur fyrir
hittingi og kynjafræðinemar í fram-
haldsskólum ætla ásamt kennurum
að ræða kynlífsmenningu, rasisma og
kynjafræði. Einnig verða forvarnir og
viðbrögð við kynferðislegu ofbeldi gegn
ungmennum og kynferðisleg áreitni
á vinnumarkaði til umræðu. „Það eru
alls konar viðburðir. Bæði fræðilegir og
skemmtilegir. Við reynum alveg að vera
með viðburði þar sem málefni líðandi
stundar er skoðað. Til dæmis um ofbeldi
í samböndum ungmenna. Þar er verið
að ræða bæði forvarnargildið og einnig
hvaða tól skólar hafa til að tækla það,“
segir Birta. n
Birta Ósk Hönnudóttir er verkefnisstýra Jafnréttisdaga háskólanna sem nú standa yfir. Mynd/Aðsend
Alls verða 20 stað og fjarviðburðir á boðstólum á þessum jafnréttisdögum en þeir
voru settir í gær með fyrirlestri um bakslag í hinseginbaráttunni.
Fróðlegt og
fræðandi en líka
skemmtilegt
16 tímamót FRÉTTABLAÐIÐ 7. FeBRúAR 2023
ÞRIÐJUDaGUR