Veiðimaðurinn - 01.06.1940, Síða 3
NR. 1
VEIÐIMAÐURINN
HÁLGAGN LAX- OG SILUNGSVEIÐIMANNA Á ÍSLANDI
RITSTJÓRI: ÍVAR GUÐMUNDSSON
KLAPPARSTÍG 13 — SÍMI 2774
ÚTGEFANDI: BÓKAÚTGÁFA GUÐ-
JÓNS Ó. GUÐJÓNSSONAR HALL-
VEIGARSTÍG 6A — SÍMI 4169
KEMUR ÚT 2—3 Á ÁRI. VERÐ HVERS BLAÐS KR 2.00
AFGREIÐSLA: BÓKAVERSLUN ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJU
SÍMI 4527. PRENTAÐ í (SAFOLDARPRENTSMIÐJU H.F.
ÞAÐ er nú orðinn álitlegur hópur manna hér á landi, sem hefir
ánægju af því að fara á veiðar í ám og vötnum í frístundum
sínum, enda er lax- og silungsveiði ein af skemmtilegustu íþróttum, sem
þekkjast, og þeir, sem einu sinn byrja og komast upp á lag með að veiða
sér til skemmtunar, hætta því seint, meðan nokkur tök eru á, og gleyma
aldrei ánægjunni, sem þessi íþrótt hefir veitt þeim.
Veiðimenn, eins og aðrir, sem hafa sameiginleg áhugamál, hafa stofnað
með sér félög, til þess í sameiningu að vinna að áhugamálum sínum. Félög
þessi hafa gengið misjafnlega eins og gengur og gerist um félög, stundum
staðið í blóma og stundum legið niðri. En eitt eiga veiðimenn ekki og vantar
tilfinnanlega, að þeirra dómi, er að þessu riti standa, en það er blað eða
tímarit. í sameiginlegu málgagni, þar sem ekki er rúm fyrir annað en sem að
veiðimennsku og veiðibrögðum lýtur, geta allir veiðimenn landsins hitzt,
ræðst við og kynnzt hvorir öðrum og viðhorfi hvers annars til áhugamál-
anna. Sagt frá því, sem við hefir borið í veiðiferðum, öðrum til fróðleiks
eða skemmtunar.
Þetta, sem að framan er lýst, er höfuðtilgangur þessa rits, er nú hefur
göngu sína. Útgefendum er ljóst, að ýmsir erfiðleikar eru á því að gefa út
svona rit, og ekkert skal um það spáð, að svo stöddu, hvort það á langa
eða fáa lífdaga fyrir höndum. Það er allt undir veiðimönnunum sjálfum
komið.
Reynt verður að hafa tímarit þetta sem f jölbreyttast að efni og munu
verða birtar greinar í ritinu eftir því sem rúm leyfir, um allt er að veiði-
brögðum í ám og vötnum lýtur.
Verði ritinu vel tekið, mun það koma út 2—3 sinnum á ári.
Eins og lesandinn mun komast að raun um, er hann blaðar í gegnum
ritið, þá hafa margir af þekktustu veiðimönnum bæjarins lagt sinn skerf
til. Útgefendur eru þeim þakklátir fyrir þann áhuga, sem þeir hafa
sýnt Veiðimanninum, frá því hugmyndin um útgáfu hans kom fram.
Ritstj.