Veiðimaðurinn - 01.06.1940, Blaðsíða 10

Veiðimaðurinn - 01.06.1940, Blaðsíða 10
Pétur Ingimundarson: Um lax og laxveiði LAXVEIÐI s.em íþrótt á aðeins við stangaveiði, því að þessi veiðiað- ferð er ekki rekin sem atvinna að jafn- aði og liggja til þess margar ástæður, meðal annars þær, að laxinn er fljót- teknari í net og tilkostnaður við neta- veiði hlutfallslega minni, og stunda þeir einir netaveiði, sem eiga land að veiðiám, en þær ár, sem sérstaklega eru leigðar til stangaveiða, er að jafn- aði svo dýrar, að um hagnað af veið- inni er ekki að ræða. Það eru því eingöngu áhugamenn um þessa hluti, sem stunda stangaveiði, og eftir því, sem þeir kynnast henni betur, vex áhuginn, eins og reynslan hefir sýnt. En í hverju liggur þetta? Hvað okkur borgarbúa snertir, þá för- um við svo mikið á mis við yndisleik náttúrunnar um sumartímann. Við tök- um því fegins hendi hverju því tæki- færi, sem býðst, til þess að komast út úr bænum, en jafnframt förum við þá líka til að skemmta okkur, og hverfur þá hver okkar að því, sem honum er geðfelldast. En sá töframáttur fylgir stangaveiðinni sérstaklega, að menn kasta frá sér öllum áhyggjum — gleyma dægurþrasinu — standa með stöngina á lofti allan guðslangan dag- inn, jafnvel þó að enginn laxinn veið- ist, því lengi er von á einum, segja menn. En við höfum samt ekki unnið fyrir gýg, því að við höfum þjálfað hvern vöðva í líkama okkar og við höf- um þanið lungun með hreinu fjalla- lofti og teigað heilnæmi sólarljóssins. í þessari stuttu grein er vitanlega ekki hægt að fara ýtarlega út í hvert 8 t Norðurtungu. (Sagðar veiðisögur). einasta atriði, sem snertir stangaveið- ina, en aðeins rifja upp það helzta í stórum dráttum. Við skulum þá fyrst athuga hvernig laxinn hagar göngu sinni í árnar. Það er sjaldgæft að laxinn gangi í berg- vatnsár fyr en eftir miðjan maímánuð, og er þá vanalega aðeins um fáa laxa að ræða, en þá stóra. Þetta mætti nefna framverði laxanna, því að þeir ganga mjög dreift. Vitanlega eru þess- ir fiskar orðnir veraldarvanir og sækja á þekktar slóðir, en eftir því sem líð- ur á tíma fer laxinn að ganga þéttara og í stærri hópum. Mest ber á þessum hópgöngum um mánaðamótin júní— júlí eða jafnvel nokkru fyr. Gefur þá að líta stórar vöður af laxi við árósana, sem koma upp í yfirborð sjávar. Vöð- ur þessar eru fleygmyndaðar, eins og þegar helsingjarnir fljúga oddflug. Einn lax fer fyrir vöðunni og hefir hann forustuna. Þessi lax er stærri vexti en félagar hans. Það er oft mik-

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.