Veiðimaðurinn - 01.06.1940, Side 14
allir sæmilegir veiðimenn láta sér annt
um það, að særa ekki fiskinn að óþörfu
og aflífa hann strax og þeir hafa náð
honum á land, en láta hann ekki berj-
ast um á árbökkunum.
ÞAÐ er ákaflega misjafnt hvað
menn eru fljótir að þreyta lax-
inn. Vanir veiðimenn eru vanalega
ekki meira en 15—20 mínútur að ná
stórum löxum, en aðrir eru allt að því
einn klukkutíma eða meir. Þetta kem-
ur líka talsvert undir því hvernig til
hagar, þar sem veitt er. Það er oftast,
þegar laxinn hefir tekið flugu, að hann
snýr sér skáhallt móti straum, frá
veiðimanninum, og þegar hann finnur
að eitthvað togar á móti honum stekk-
ur hann oft 60—70 cm. upp úr vatn-
inu og kastar sér um leið til hliðar frá
veiðimanninum, en til þess að koma í
veg fyrir að laxinn slíti, gefur veiði-
maðurinn stöngina niður um leið og
laxinn er að snerta vatnið, á niðurleið,
og með því er fyrirbyggt að nokkuð
verði úr átakinu. Veiðimaðurinn notar
hvert tækifæri til þess að vinda inn lín-
una, en annað kastið strekkir laxinn
frá honum. Hann endurtekur stökkin
4—5 sinnum og alltaf verður að hafa
vakandi auga á línunni. Laxinn fer að
þreytast og snýr þá undan straum, en
þá heldur hann ekki lengi út, því að
vatnsþunginn þrýstir sér inn í tálknin
og þreytir hann. Er þá vanalega
skammt til þess að hægt sé að lenda
laxinum.
Ef fiskað er á flugu, verður oft að
velja sérstaka staði í ánni til þess.
Vanalega eru beztu veiðistaðirnir í
strengjum og fljótum, þar sem þunga-
straumur er. Neðan við fossa eða í
ströngum straum er sjaldan hægt að
fiska á flugu. Oftast er það vitað með
Veitt í morgunmatinn.
hverja á hvar helztu veiðistaðimir eru,
bæði fyrir flugu og maðk. En það er
samt ekki sama hvernig staðið er að
veiðiskapnum. Það er ákveðin reynsla
fyrir því, að eftir því sem veiðimaður-
inn fer varlegar meðfram ánni, þess
betri kost á hann á að fiska. Venjulega
er það gott, þar sem því verður við
komið, að standa út í ánni. Við það ber
lægra á veiðimanninum, en laxinn virð-
ist oft vera næmur fyrir öllum skugg-
um, sem falla á vatnið, og það getur
kveðið svo rammt að því, að hann
hræðist jafnvel skugga af línunni. Það
er meðal annars af þessari ástæðu, að
vanalega er bezt að fiska þegar vind-
ur gárar vatnið og vatnið verður dökk-
blátt, en vitanlega tekur vatnið alltaf
á sig lit loftsins, svo liturinn er mjög
breytilegur. Það skiptir miklu máli, að
veiðimennirnir séu í góðu skapi við
veiðina, sem þeir og oftast eru, ef þeir
hafa ekki orðið fyrir sérstökum óhöpp-
um í byrjun. Það er til dæmis ekki gott
að missa fyrstu laxana að morgni. —
Mörgum hættir til að verða ergilegir,
ef þeir geta kennt sjálfum sér um, en
aftur á móti verða menn glaðari með
hverjum laxinum, sem þeir ná, ef vel
gengur. — Ef menn komast í lélegt
skap, er bezt að hætta veiðinni urn
stund.
12