Veiðimaðurinn - 01.06.1940, Qupperneq 15

Veiðimaðurinn - 01.06.1940, Qupperneq 15
VEIÐIMENN eru oft kátir í sínum hóp, sérstaklega ef þeir eru nokkrir saman í tjaldi eða veiðimanna- húsum. Þá eru sögur sagðar af afla- brögðum liðinna tíma, en fáir munu vilja taka fulla ábyrgð á að þær séu allar sannleikanum samkvæmar. En þetta gerir ekki svo mikið til, því að þær eru þá vanalega endurgoldnar af öðrum hliðstæðum sögum. Samt hefi ég aldrei heyrt svo ósennilega sögu, að henni hafi verið mótmælt í veiði- mannahóp. Sérstaklega eru laxarnir, sem veiðimenn missa, miklir fyrirferð- ar, og myndu þeir verða sæmilega þungir, ef kostur hefði verið á að vega þá. Annars ,eru þær vogir, sem veiði- menn nota, í hugum margra leyndar- dómsfull áhöld, og ef mark væri á þeim tekið, myndu þær reynast hag- kvæmari seljanda en kaupanda, og ganga um það margar kýmnisögur. A 7IÐ höfum enn sem komið er kom- * izt of skammt í stangaveiði-íþrótt- inni, en þó hefir mikið unnizt á í rétta átt á seinni árum. Til dæmis hefir hér í Reykjavík verið starfandi félagsskap- ur laxveiðimanna, sem samanstendur af mörgum mjög góðum veiðimönnum, en vöntun hefir verið á kennslu í þess- ari íþróttagrein, og má því segja að hún sé í barndómi hjá okkur, enda eru tiltölulega fá ár síðan Islendingar fóru að gefa sig að stangaveiði. Með hverju ári sem líður hraðf jölgar þeim, sem við stangaveiði fást, og það fer ekki hjá því, með tíð og tíma, að stangaveiði verði ein af okkar þjóðar-íþróttum. En til þess að þetta megi takast, þurfum við að hafa eitthvað til að fiska, en mér er ekki grunlaust um, að full nærri hafi nú verið gengið með netaveiði í sumum ám landsins, og jafnvel notað- ar aðferðir við veiðina, sem ekki eru sæmandi þeim, sem vilja kallast góðir veiðimenn. Til þess að bót verði ráðin á þessu verða veiðimenn að taka hönd- um saman til að koma í v.eg fyrir þann ósóma, sem veiðimönnum hefir verið borinn á brýn síðustu árin, sem því miður er ekki með öllu að ástæðulausu. Snjall veiðimaður Þeir, sem fiska við Elliðavatn, munu oft hafa séð ungan mann með veiði- stöng í hönd, dökkan á brún og brá — rogast með þunga byrði. Það er Valtýr Guðmundsson. Hann hefir aðeins um fá árabil fengist við stangarveiði, en náð þeirri leikni, að margir líta til hans hornauga, er fiskurinn þykir „tregur“. — Nýskeð er liðið 25 ára afmæli þessa ágæta veiðifélaga og vill blaðið í nafni margra „Elliðavatns-manna“ árna hon- um allra heilla. — Flugan er uppáhalds- veiðiaðferð Valtýs, — og fer vel á því. Butcher. 13

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.