Veiðimaðurinn - 01.06.1940, Side 21

Veiðimaðurinn - 01.06.1940, Side 21
og verið sé að kasta upp í loft og gætið þess að hin léttilega en snögga sveifla hafi verið frá kl. 10,45 til 11,00. 3. mynd Fram-kastið. Stoppið nú andartak á meðan línan er að kastast upp og aftur, en lofið stönginni samtímis að drífa til kl. 12,30. Færið síðan stöngina hægt aftur fram að kl. 12,00 (sjá myndir 3 og 4) og stoppið enn andartak og kastið síðan línunni fram. En athugið vel, að fram-„kastið“ (léttilegur, snöggur rikkur) á að koma, er stöngin vísar á kl. 12,00 og á ekki að fara lengra en 15 mínútur, milli kl. 12 og 11,45, eins og greinilega er sýnt á mynd 5. Þegar kast- að er fram, er ekki reynt að kasta á vatnsyfirborðiS. Kast- ið línunni heint fram í heinni línu á móts við höfuðiS eða hærra. Reynið að hugsa yður, að þér ætlið aS kasta á viss- an staS, 6—8 fet í loft upp og látiS fluguna dala hægt niður á vatniS eins og þegar könguló dalar niður úr vef sín- um. Þetta er nú all- ur galdurinn við ann- arhandar flugukast og ef þér hafið tekiS vel eftir því sem sagt hefir verið hér aó framan, — og æfið það vel með ),Veiðimanninn“ fyrir framan yður — getið þér orS- ið hreinn snillingur í að kasta flugu. G-ætiS þess, að þaS á ekki að kasta línunni aftur fyrir sig, heldur upp í loftið, og þaS á ekki að kasta flugunni á vatniS, heldur fram fyrir sig í loftið. — Kastið er framkvæmt með litlu afli. Öll hreyfing- in kemur frá handarvöðvunum, — um úlnliðinn. Flestum stangveiðimönnum — sem ekki hafa náS leikni — hættir við að leggja of mikla krafta í kastið. ReyniS að draga úr því afli, sem þér hafið hugsað ykkur að leggja í kastið, þá kyrrist þaS betur. AS svo mæltu „kasta“ ég á ykkur alla beztu óskum um veiSisælt komandiár. 4. mynd. 19

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.