Veiðimaðurinn - 01.06.1940, Page 23
tekur stundum fluguna ekki fyrr en hér
um bil við botn, og er þá gott að hafa
flugur á gildari eða þyngri önglum, og
hafa þá hinar svokölluðu „Dverg“ laxa-
flugur reynzt ágætlega, og skal þeirra
lítið eitt getið hér síðar.
r
Aensku eru hinir ýmsu hlutir flug-
unnar nefndir: Tail, Body, Hack-
les, Wings and Heal. (Hali, búkur,
hálsf jaðrir, sem eiga að vera fætur flug-
unnar, vængir og höfuð). 1 halann, fæt-
urna og vængina eru notaðar fjaðrir
af ýmsum fuglategundum, svo sem af
hænsnum, fasanfuglum, stokköndum,
urtöndum, álftum og gæsum (litað) o.
s. írv., í búkinn er mest notuð ull og lit-
að selshár, einnig gull- og silfurvírar.
Til munu vera milli 700—1000 „stand-
ard“ tegundir af þessum svonefndu
„Wet-flies“, og eru þær flestar með ensk-
um nöfnum, sem annaðhvort eru í sam-
bandi við þá fuglategund, sem fjaðrirn-
ar eru af, og notaðar eru í vængi flug-
unnar og litinn á búknum, eða þá að þær
eru nefndar sérstökum nöfnum, eða
„skírðar". Skulu hér tekin dæmi:
Mallard and Claret. Búkurinn er þá
vínrauður og fjaðrirnar, sem notaðar
eru í vængina, af Mallard (stokkönd).
Teal and Red. Búkurinn ljósrauður og
fjaðrirnar í vængjunum af Teal (urt-
önd), o. s. frv.
Svo eru hinar, sem ganga undir skírn-
arnöfnunum, t. d.: Alexandra. Butcher
og Bloody Butcher. (Hinn blóðugi slátr-
ari!) Peter Ross, Zulu (alsvört fluga,
sbr. Zulu-negri) og svo meira að segja
ein sem nefnist Jenny Lind! En eftir
því sem veiðimenn láta af, mun þessi
nafna hennar ekki hafa vakið eins mikla
aodáun í heimi silunganna eins og hin
heimskunna Jenny Lind gerði hjá
okkur. Þekktustu flugutegundirnar, fyr-
ir utan þær, sem að framan getur (að
undanskilinni Jenny Lind!) og sem hafa
reynzt bezt hér í vötnum og silungsám,
eru Mallard, Teal, Grous, Heckham,
Butcher og Wodd cock seríurnar, og al-
gengustu stærðirnar eru no. 10, 11, 12,
13 og 14.
verg-laxaflugur sem ég minntist á
hér að framan, eru búnar til í sil-
ungaflugustærðum og eru nákvæmlega
stældar eftir hinum stærri og þekktustu
laxaflugum og bera sömu nöfn, svo sem:
Black Doctor, Silver Doctor, Dusty Mill-
er, Jock Scott, Blue charm o.s.frv. Þess-
ar flugur hafa reynst vel á sjóbirtings-
veiðum og í vötnum, þegar flugan verð-
ur að sökkva vel, vegna þess að önglarn-
ir eru einnig smækkuð útgáfa af laxa-
flugunöglum og eru heldur gildari og
sterkari.
Eftirfarandi ráðleggingar eiga byrj-
endur að hafa í huga:
Að gæta þess að flugan sé í vatninu
(að straumurinn beri hana ekki upp í
bakkann) og hafið augun með flugunni.
Þegar kalt er í veðri þá látið fluguna
sökkva vel og í heitu veðri notið litlar
flugur (13—14) og fín girni (2x—3x),
þá tekur fiskurinn oftast rétt í yfirborð-
inu.
Yngsti
veiðimaöurinn
Þetta er yngsti
laxveiðimaður-
inn, sem „Veiði-
maðurinn“ veit
um. Ekki þor-
um vér að á-
byrgjast, aS
hann hafi sjálf-
ur veitt laxinn
Yngsti veiði-
maðurinn heitir
Þorsteinn, sonur
Friðriks Þor-
steinssonar hús-
gagnasmiðs.
21