Veiðimaðurinn - 01.06.1940, Side 32
Emil Rokstad
Holl ráð
Emil Rokbtad er vafalaust einn helzti
stangveiðimaður hér á landi. Hann er
einn þeirra manna, sem hægt er að
segja um, „að hafi fæðst með veiði-
stöngina í hendinni".
Allt frá barnæsku hefir hann fengist
við stangarveiði, og heima í Noregi þótti
hann þegar sem unglingur hinn efnileg-
asti flugukastari. En flugu kastar hann
fagurlega og með mikilli nákvæmni.
Um fjöldamörg árabil fékkst hann
við laxveiðar og getur litið um öxl yfir
„stóra veiðidaga“.
Seinni árin hefir hann aðallega stund-
að silungsveiðar í Elliðavatni, — og
fer þar fyrir Rokstad eins og mörgum
helztu stangveiðimönnum, að hann
skemmtir sér bezt við silunginn. Ekki
þarf að taka fram, að Rokstad þætti
hann tapa veiðimannsærunni ef hann
notaði aðra beitu en flugu.
Eins og vikið er að á öðrum stað í
blaðinu, er Rokstad höfundur hinnar
ágætu veiðiflugu „Rokstads Speciale“
— en hún hefir blekkt margan fiskinn.
Fyrir þá, sem eru að byrja að veiða,
eru birt hér nokkur ráð og leið-
beiningar um framkomu og meðferð
veiðarfæra:
Verið rólegur og kyrlátur á meðan
þér veiðið. Fiskarnir geta bæði séð og
neyrt hreyfingar og hávaða, sem þeir
forðast.
Róið gætilega á veiðistaðinn og farið
ekki of nálægt öðrum veiðimönnum, sem
eru á sama vatni og þó sérstaklega ber
þess að gæta ef maður er á vélbát.
Stengumar eru hafðar aftan í bátnum
og stangartoppamir látnir vita aftur.
Kynnið yður dýpi og botn vátnsins
með því að lóða og setjið á yður með því
að miða staði í landi.
Veiðistöngum er haldið við með því að
bera á þær femis og lakk. Hjólin eru
smurð vel með sýrulausri olíu eða feiti.
Bezt er að geyma stengur á köldum stað.
Sól og hiti eyðileggur samskeytin.
Bezt er að veiða frá hléborða, þegar
veitt er á bát.
önglamir eru brýndir með „carbor-
undum“ steini.
Girni á að bleyta svo sem hálfri
stundu áður en á að nota það.
Gætið þess að melur komizt ekki í
flugusafn yðar.
Þurkið línuna vel eftir notkun. Takið
hana helzt af hjólinu eftir hverja veiði-
för.
Athugið styrkleika línunnar fyrir
veiðiför, með því að slíta dálítinn spotta
framan af henni.
Gott er að smyrja línuna við og við
með feiti, en þess verður þá að gæta, að
hún sé vel þurr.
30