Veiðimaðurinn - 01.03.1952, Qupperneq 6

Veiðimaðurinn - 01.03.1952, Qupperneq 6
ÓLAFUR ÞORÁKSSON: ,,VEIÐIVARGAR“. Flestar lifandi verur, setn nátturan hefir skapað eiga sína óvini, óvini, sem lifa á öðrum lifandi verum. Grasæturnar eta jurtagróðurinn, rándýrin svo aftur grasæturnar o. s. frv. Þessa aðferð hefir náttúran til þess að Jialda réttu jafnvægi innan tegundanna, og þar sein manns- liöndin eða aðrar annarlegar aðstæður ekki raska jafnvæginu, gengur allt prýði- lega. En liættulegasti óvinur allra lifandi vera liefir verið maðurinn, þar til á síð- ustu tímum, að hann ltefir af takmarkaðri þekkingu, reynt að bæta fyrir brot sín og taka höndum saman við náttúruna í nýju uppbyggingarstarfi. Ein þeirra dýrategunda, sem óskaplega Jiefir orðið fyrir barðinu á rándýrum jarðar, eru vatnafiskarnir. Þar liafa þess- ar skepnur \ erið taldar stórvirkastar með eyðingu: 1) fiskiöndin, 2) selurinn og nú á seinustu árum hefir nýr höfðingi bætzt þar í náttúruríki landsins, sem sé mink- urinn, og svo má ekki gleyma mannin- um. Við skulum nú reyna að athuga, livað liæft er í þeim ásökunum, sem fram eru bornar á Iiendur þessurn aðilum. Það er þá nauðsynlegt að taka fyrir eina stóra á á íslandi og bregða sér nokkrar aldir aftur í tírnann, þ. e. meðan landið var ósnortið af eyðandi mannshöndinni og náttúran ein hafði óskorað vald y'fir líf- inu í ánni. Þegar landnámsmennirnir komu hing- að fyrst voru allar ár fullar af fiski, og þær voru það margar fram á síðustu öld. En þá voru þær líka fullar af sel og fiskiöndum. Við skulum þá athuga hverja þessa dýrategund fyrir sig og byrja á öndinni. Það vita allir, að náttúran er frarn úr liófi eyðslusöm, og svo, að hún hefir oft jafnvel sjálf orðið að grípa til eyðingaraðferða, til að lialda réttu jafn- vægi. Það er til dæinis sagt að krókódíll- inn myndi vera margfalt hættulegri og verri viðureignar en hann nokkurntíma nú er, ef ekki væri lítið dýr, sem etur mikinn liluta af eggjunum. Gæti nú ekki verið líkt með fiskiöndina? Þar sem vatnafiskarnir gátu klakist út óhindrað og viðkoman var svo gífurleg að jafnvel gat verið liætta á, að mergðin ekki kæm- ist fyrir í ánni, varð þróunin sú, að and- artegund ein tók upp á því, að éta mergð af seiðurn, og jafnvæginu var borgið. En s\ o kemur maðurinn til sögunnar, og þá er skrambinn laus. Hann leggst á sveif- ina með eyðingaröflunum og eftir því sem aldirnar líða og tækni mannsins vex, gengúr á stofninn. En setjunt svo, að fisköndinni hefði verið útrýmt jafn- hliða og maðurinn tók við hlutverki hennar; þá hefði öllu verið borgið. Við erurn þá sem sé komnir að þeirri niður- stiiðu að meðan náttúran var ósnert af manninum, hafði fiskiöndin nauðsynlegu hlutverki að gegna. En þegar maðurinn kom til sögunnar, varð hún rammasta 4 Veiuimaðurins

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.