Veiðimaðurinn - 01.03.1952, Page 24
Ráðskonurnar við Norðurá i umsjá góðra manna.
væri vel þegið, e£ einhverjir hagorðir
menn vilclu senda skemmtinefndinni,
hver sem hún verður þá, eittlivað a£
gamanvísum fyrir næstu árshátíð. Það er
alltaf einkar vel séður þáttur og meðal
þess bezta sem völ er á, sérstaklega e£
hægt er að fá Alfred til að syngja þær.
Tvöfaldur „kvartett" undir stjórn
Halls Þorleifssonar, söng nokkur lög við
hinar beztu undirtektir, sem náðu há-
marki þegar Alfreð bættist í liópinn,
sem einsöngvari í síðasta laginu.
Haraldur A. Sigurðsson var svo önnum
kafinn, að hann sá sér ekki fært að semja
leikþátt í þetta sinn, eins og að undan-
förnu, en hann hefir lofað bót og betr-
un fyrir næstu ársliátíð, og mega menn
þá vafalaust eiga von á ýmsu góðu, ef
að vanda lætur.
★
Skýrslur höfðu borizt frá tveimur
mönnum um bikarlaxa, þeim Stefáni
Thorarensen, lyfsala og Þóroddi Jóns-
syni, stórkaupmanni. Höfðu þeir veitt
jafnstóra fiska, og var því hlutkesti lát-
ið ráða, livor þeirra skyldi fá bikarinn.
Ráðskonunni við Norðurá, frú Rósu
Þorsteinsdóttur, var falið að draga og
kom upp hlutur Stefáns.
í happdrættinu \ oru vinningarnir, eins
og venjulega, veiðistöng og „bætt“
blómakarfa. \reiðistöngina hreppti Gunn-
ar Kristinsson, en blómakörfuna lilaut
Jón Eyjólfsson, bifreiðastjóri.
22
VtlÐlMAÐLRlNN