Veiðimaðurinn - 01.03.1952, Page 27
forgangsréttar síns, og sömdu Miðfirð-
ingar þá við Borgnesinga og meðbjóð-
endur þeirra.
Urslit þessa máls eru alvarlegt áfall
bæði fyrir Stangaveiðifélag Reykjavíkur
og íslenzka stangaveiðimenn í lieild.
Félaginu skapa þau erfiðleika vegna þess,
að þeir mörgu félagsmenn, sent áður
stunduðu Miðfjarðará, leita nú að sjálf-
sögðu á ár félagsins í staðinn, en fyrir
stangaveiðimenn í lieild þýða þau stórt
spor í áttina til þess, að meginþorra þeirra
verði gert ókleift að stunda laxveiði.
Menn hafa vonast til að Landssam-
band ísl. stangaveiðimanna gæti liamlað
á móti skefjalausum yfirboðum félaga og
einstaklinga í veiðiárnar. Það er því
óheppileg tilviljun að það skyldi verða
hlutskipti eins af stjórnarmönnum sam-
bandsins að gera þetta samningsundur
um Miðfjarðará.
Heyrðu\ Ég var að fd hann pennan, sem pú misstir áðan.
Veiðimaðurinn
25