Bændablaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 19
2021.
221029 - Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir f.h. ríkissjóðs óska eftir að KAUPA eða taka á LEIGU
íbúðarhúsnæði fyrir Heilbrigðisstofnun Austurlands. Miðað er við að leiga geti verið til 10 ára.
Óskað er eftir allt að fjórum eignum, þ.e. tveimur íbúðum á Egilsstöðum og tveimur íbúðum í Neskaupstað.
Leitað er eftir 2ja til 4ra herbergja íbúðarhúsnæði, einkum nýlegu eða viðhaldslitlu húsnæði í góðu ástandi.
Til greina koma bæði íbúðir og/eða minni sérbýli. Kostur er ef íbúðarhúsnæðið er í þéttbýliskjarna með
góðu aðgengi.
Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til leiguverðs íbúðarhúsnæðisins, kaupverðs, ástands,
stærð þess og skipulag, afhendingatíma, staðsetningu, aðkomu og bílastæðum. Aðeins er um markaðskönnun
að ræða og áskilinn réttur til að hafna öllum tilboðum.
Fyrirspurnir varðandi verkefnið Heilbrigðisstofnun Austurlands
skulu sendar á netfangið leiguhusnaedi@fsre.is.
Fyrirspurnarfrestur rennur út 11. nóvember 2022 en svarfrestur FSRE er til og með 16. nóvember 2022.
Leigutilboð eða sölutilboð skal senda á leiguhusnaedi@fsre.is,
eigi síðar en kl. 13:00 mánudaginn 24. nóvember 2022.
Merkja skal tilboðin; nr. 221029 – Heilbrigðisstofnun Austurlands - Íbúðarhúsnæði.
HEILBRIGÐISSTOFNUN AUSTURLANDS
ÍBÚÐARHÚSNÆÐI TIL KAUPS EÐA LEIGU Á AUSTURLANDI