Bændablaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 13

Bændablaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 13
13Bændablaðið | Fimmtudagur 3. nóvember 2022 Framkvæmdanefnd búvöru- samninga hefur samþykkt að greiðslumark mjólkur á árinu 2023 verði 149 milljónir lítra. Það nemur 1,7% aukningu frá yfirstandandi ári, eða 2,5 milljónum lítra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá matvælaráðuneytinu. „Hækkun greiðslumarksins er tilkomin vegna aukinnar sölu mjólkurafurða. Bændum verður heimilt að setja fyrrgreint magn á innanlandsmarkað á næsta ári og fá opinbert lágmarksverð fyrir sem nú nemur tæpum 117 krónum á lítra. Til að kúabændur hafi svigrúm til að aðlagast, er ákvörðunin tekin og tilkynnt fyrr á framleiðsluárinu en alla jafna. Söluaukning mjólkurafurða er meiri en síðustu ár, t.a.m. var greiðslumarkið 144 milljónir lítra árið 2017, 145 milljónir árin 2018-2021 og er 146,5 milljónir lítra fyrir 2021,“ segir í tilkynningunni. Reglugerð vegna greiðslu- marksins mun taka gildi 1. janúar 2023. /ghp Tæp 2% aukning greiðslumarks Lyfja skellti í lás í útibúi sínu í Laugarási í Bláskógabyggð 1. nóvember sl. Því er ekkert starfandi apótek í Uppsveitum Árnessýslu. Heilbrigðisstofnun Suðurlands er einnig með útibú í Laugarási og hefur því ekki lengur apótek til að vísa sínum skjólstæðingum á. Þá er mikil óánægja hjá heimafólki í Bláskógabyggð með lokunina. „Þetta hefur vitanlega þau áhrif að fólk getur ekki nýtt sömu ferð til að leita læknisaðstoðar og fá þau lyf sem læknir ávísar. Það eru miklar vegalengdir sem um ræðir og þetta kallar þá á aukaferð á Selfoss eða annan stað þar sem apótek er staðsett. Íbúar eru mjög óhressir með þessar breytingar og óttast að með þessu grafi undan heilbrigðisþjónustu í heimabyggð,“ segir Ásta Stefánsdóttir sveitarstjóri. Lyfja hafði verið starfandi í Laugarási síðan árið 1997 en einn starfsmaður vann í útibúinu. „Ein af ástæðum lokunaronnar er minnkun í veltu síðastliðin ár á sama tíma sem rekstrarkostnaður hefur verið að aukast. Lyfja býr þó vel að því að geta áfram þjónustað íbúa Bláskógabyggðar í Lyfju Selfossi þar sem opnunartími er lengri og viðskiptavinir hafa þar fullt aðgengi að vöru- og þjónustuframboði,“ segir Þórbergur Egilsson, sviðsstjóri verslunarsviðs Lyfju. /mhh Ásta Stefánsdóttir. Mynd / mhh Ekkert apótek í Uppsveitum Fimm opinber sérfræðistörf, þar af eitt stjórnunarstarf, á vegum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) verða flutt til Akureyrar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá innviðaráðuneytinu. Framvegis verða því 21 stöðugildi á starfsstöð HMS á Akureyri en breytingarnar eru hluti af endurskipulagningu eftir að verkefni tengd fasteignaskrá voru færð til HMS í fyrra. Haft er eftir Sigurði Inga Jóhannssyni innviðaráðherra að hann hafi beitt sér fyrir því að fólk eigi kost á að vinna fjölbreytt opinber störf um allt land með því að efla opinberar stofnanir á landsbyggðinni, flytja sérhæfð störf eða efla tækifæri til að vinna störf án staðsetningar. Hermann Jónasson, forstjóri HMS, segir í tilkynningunni að nýtt starfsteymi á Akuryeri muni fara með ábyrgð og framkvæmd skráningar fasteigna á öllu landinu, sjá um brunabótamat og endurskoða framkvæmd þess. „Samhliða ætlum við að hefja átaksverkefni við afmörkun eigna í landeignaskrá og birta í stafrænni kortasjá HMS. Við stefnum fljótlega að því að opna vefsjá landeigna þar sem afmörkun og þinglýst eignarhald lands verður gert aðgengilegt öllum án gjaldtöku,“ er haft eftir Hermanni. HMS er með starfsstöðvar á Akureyri, í Borgarnesi, á Sauðárkróki og í Reykjavík en stofnunin er í nánu samstarfi við sveitarfélög um allt land. /ghp Frá Akureyri. Mynd / ghp Opinberum störfum á landsbyggðinni fjölgar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.