Bændablaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 14

Bændablaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. nóvember 2022 FRÉTTIR Samanburðarrannsókn á þekju háplantna á beittum og friðuðum svæðum: Ekki marktækur munur á tegundafjölbreytni Þann 10. október varði Brynjólfur Brynjólfsson meistara ritgerð sína við Land búnaðar háskóla Íslands í náttúru- og um - hverfisfræði þar sem rannsökuð voru áhrif beitar og friðunar á fjölbreytni mólendisplantna á völdum svæðum í úthaga í samhengi við umhverfisþætti. Ekki reyndist marktækur munur á tegundafjölbreytni á milli svæðanna. Önnur helsta niðurstaða rannsóknarinnar er sú að tegunda­ fjölbreytni fór minnkandi með auknu kolefnis­ og köfnunar­ efnishlutfalli í jarðvegi. Rannsóknin leiddi einnig í ljós að kolefnis­ og köfnunarefnishlutfall var ögn lægra á beittu svæði. Ekki greindist þó marktækur munur á heildarþekju plantna; tegundaauðgi, tegundajafnræði og tegundafjölbreytni mólendisplantna á milli friðaðs og beitts svæðis. Hins vegar bar tegunda­ samsetningin vott um áhrif sauðfjárbeitar. Af þeim sjö tegundum sem voru með marktækt meiri útbreiðslu á öðru hvoru svæðinu voru fjórar útbreiddari á beitta svæðinu, allt blómjurtir. Frumrannsókn úr Eyjafirði Brynjólfur segir að rannsóknin hafi verið frumrannsókn hans á heimaslóðunum, sem eru Reykhús í Eyjafjarðarsveit. „Rannsóknina þyrfti að endurtaka innan ekki of margra áratuga til að fá áreiðanlegri samanburð á áhrifum beitar og friðunar, eins væri ekki verra að auka beitarþungann.“ Borin voru saman svæði sem lágu milli 220 og 320 metra hæðarlína. Óbeitta svæðið hefur verið friðað fyrir sauðfjárbeit í 43 ár, beitta svæðið hefur verið léttbeitt síðustu tvo til þrjá áratugi. Smárunnar sækja í sig veðrið „Einn plöntuhópur, smárunnar, var marktækt útbreiddari á friðuðu svæði. Í ritgerðinni dreg ég þá ályktun að sauðfjárbeitin haldi útbreiðslu þessa plöntuhóps í skefjum. Það kann að vera glannalegt að draga slíka ályktun af frumrannsókn þar sem samanburð frá því fyrir friðun vantar. Engu að síður geri ég það enda þykja flestar tegundir í þessum plöntuhópi alleftirsóttar til beitar, ekki síst þegar líður fram að hausti,“ segir Brynjólfur. Hann segir að plöntuhópurinn „tré og runnar“ hafi einnig verið útbreiddari á friðuðu svæði en munurinn greindist þó ekki marktækur. „Enda er sá plöntuhópur farinn að breiðast út á beitta svæðinu í seinni tíð þrátt fyrir sauðfjárbeit,“ útskýrir Brynjólfur. „Það er líklegt að munurinn á þessum svæðum hafi verið meiri fyrir um einum til tveimur áratugum, ekki síst með tilliti til þessa plöntuhóps ef marka má hæð runna og trjáa sem er talsvert meiri á friðaða svæðinu. Beitarþungi hefur hins vegar verið lítill í um þrjá áratugi á beitta svæðinu og skýrir það líklega af hverju ekki greindist meiri munur á svæðunum.“ Fáar tegundir vantaði alveg Þegar Brynjólfur er spurður um þær plöntutegundir sem voru með meiri útbreiðslu á öðru hvoru svæðinu segir hann að blómjurtirnar fjalldalafífill, klukkublóm, maríus takkur og brjóstagras hafi verið marktækt útbreiddari á beitta svæðinu. Þær þrjár sem voru marktækt útbreiddari á friðaða svæðinu voru hins vegar krækilyng (smárunni), axhæra (hálfgras) og klóelfting (byrkningur). „Bróðurpartur tegunda sem þykja eftirsóttar af sauðfé var útbreiddari á friðaða svæðinu en meirihluti tegunda sem þykja lítt eftirsóttar af sauðfé voru útbreiddari á beitta svæðinu. Það gefur til kynna áhrif af sauðfjárbeit. Flestar tegundir fundust þó á báðum svæðum og fáar vantaði alveg á öðru hvoru svæði,“ segir Brynjólfur. Smjörgras, blágresi og hrútaber Að sögn Brynjólfs fundust allra eftirsóttustu beitarplönturnar, eins og smjörgras, blágresi og hrútaber, ekki á beittu svæði en þær fundust á fáeinum stöðum á friðuðu svæði. Ekki greindist tölfræðileg marktækni þar sökum þess hve fátíðar þær voru. „Hið sama gilti um tegundir sem fundust eingöngu á beittu svæði en ekki friðuðu, þetta voru sjaldgæfari tegundir eins og jakobsfífill, hagavorblóm – og lygilegt en satt, ein sjálfsáin stafafura í 300 metra hæð yfir sjávarmáli. Þessi fundur fannst mér það athyglisverður að ég ákvað að gera litla rannsókn á útbreiðslu sjálfsáinnar stafafuru í Hörgárdal og Öxnadal í sumar, með styrk frá Nýsköpunarsjóði en það er önnur saga. Mér sýndist þó að sauðfjárbeit þar næði að halda niðri útbreiðslunni þar sem hún var til staðar, enda er það engin tilviljun að menn girða skógræktarsvæði af með tilliti til þessa,“ segir Brynjólfur. Friðun getur leitt til tegundafækkunar háplantna Þegar Brynjólfur er spurður að því hvernig niðurstöðurnar muni nýtast, til dæmis varðandi skipulag landnýtingar og beitarstjórnun, segir hann að það muni tíminn leiða í ljós. „Eftir því sem ég best veit er verið að gera sams konar rannsóknir hér og hvar um landið um þessar mundir, nokkrir doktorsnemar eru í því, held ég. Það verður forvitnilegt að sjá niðurstöðurnar þar. Fyrri rannsóknir hafa einkum beinst að áhrifum friðunar gagnvart sauðfjárbeit og það hefur verið sýnt fram á að hún getur leitt til tegundafækkunar háplantna, einkum þar sem trjágróður vex upp. Rétt er að taka fram að ég hef í sjálfu sér ekkert mikið á móti trjágróðri. Í minni rannsókn voru jarðvegssýni einnig skoðuð og fannst ágætt samband milli hlutfalls kolefnis og köfnunarefnis í jarðvegi og tegundafjölbreytni plantna. Tegundafjölbreytnin minnkaði eftir því sem hlutfall kolefnis og köfnunarefnis jókst. Jafnframt var þetta hlutfall örlítið lægra á beitta svæðinu en því friðaða. Það væri forvitnilegt að fá fleiri rannsóknir á þessum þætti; hvort sauðfjárbeit geti að einhverju leyti stillt af jarðvegseiginleika með tegundavali sínu og haft þannig áhrif á tegundafjölbreytni plantna. Hvur veit? Einnig þarf að rannsaka hvernig og hvort sauðfjárbeit geti nýst í hálfvöxnum skógi til að viðhalda tegundafjölbreytni háplantna. Slíkt tekur tíma og það er því langbest að byrja strax.“ /smh Brynjólfur Brynjólfsson. Ekki reyndist marktækur munur á tegundafjölbreytni á milli svæðanna í rannsókn hans. Mynd / Aðsend Fjalldalafífill og klukkublóm, sem ásamt maríustakki og brjóstagrasi fannst í marktækt meira magni á beittu svæði. Mynd / Brynjólfur Þekja plöntuhópa á samanburðarsvæðunum. Krækilyng, sem var marktækt útbreiddara á friðaða svæðinu ásamt axhæru (hálfgras) og klóelftingu (byrkningur). Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.