Bændablaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. nóvember 2022
FRÉTTIR
Samanburðarrannsókn á þekju háplantna á beittum og friðuðum svæðum:
Ekki marktækur munur á tegundafjölbreytni
Þann 10. október varði Brynjólfur
Brynjólfsson meistara ritgerð
sína við Land búnaðar háskóla
Íslands í náttúru- og um -
hverfisfræði þar sem rannsökuð
voru áhrif beitar og friðunar
á fjölbreytni mólendisplantna
á völdum svæðum í úthaga í
samhengi við umhverfisþætti.
Ekki reyndist marktækur munur
á tegundafjölbreytni á milli
svæðanna.
Önnur helsta niðurstaða
rannsóknarinnar er sú að tegunda
fjölbreytni fór minnkandi með
auknu kolefnis og köfnunar
efnishlutfalli í jarðvegi.
Rannsóknin leiddi einnig í ljós að
kolefnis og köfnunarefnishlutfall
var ögn lægra á beittu svæði.
Ekki greindist þó marktækur
munur á heildarþekju plantna;
tegundaauðgi, tegundajafnræði og
tegundafjölbreytni mólendisplantna
á milli friðaðs og beitts svæðis.
Hins vegar bar tegunda
samsetningin vott um áhrif
sauðfjárbeitar. Af þeim sjö tegundum
sem voru með marktækt meiri
útbreiðslu á öðru hvoru svæðinu
voru fjórar útbreiddari á beitta
svæðinu, allt blómjurtir.
Frumrannsókn úr Eyjafirði
Brynjólfur segir að rannsóknin
hafi verið frumrannsókn hans á
heimaslóðunum, sem eru Reykhús
í Eyjafjarðarsveit. „Rannsóknina
þyrfti að endurtaka innan ekki of
margra áratuga til að fá áreiðanlegri
samanburð á áhrifum beitar og
friðunar, eins væri ekki verra að
auka beitarþungann.“
Borin voru saman svæði sem lágu
milli 220 og 320 metra hæðarlína.
Óbeitta svæðið hefur verið friðað
fyrir sauðfjárbeit í 43 ár, beitta
svæðið hefur verið léttbeitt síðustu
tvo til þrjá áratugi.
Smárunnar sækja í sig veðrið
„Einn plöntuhópur, smárunnar, var
marktækt útbreiddari á friðuðu svæði.
Í ritgerðinni dreg ég þá ályktun að
sauðfjárbeitin haldi útbreiðslu þessa
plöntuhóps í skefjum. Það kann
að vera glannalegt að draga slíka
ályktun af frumrannsókn þar sem
samanburð frá því fyrir friðun vantar.
Engu að síður geri ég það enda þykja
flestar tegundir í þessum plöntuhópi
alleftirsóttar til beitar, ekki síst þegar
líður fram að hausti,“ segir Brynjólfur.
Hann segir að plöntuhópurinn
„tré og runnar“ hafi einnig verið
útbreiddari á friðuðu svæði en
munurinn greindist þó ekki
marktækur. „Enda er sá plöntuhópur
farinn að breiðast út á beitta svæðinu
í seinni tíð þrátt fyrir sauðfjárbeit,“
útskýrir Brynjólfur. „Það er líklegt
að munurinn á þessum svæðum hafi
verið meiri fyrir um einum til tveimur
áratugum, ekki síst með tilliti til þessa
plöntuhóps ef marka má hæð runna
og trjáa sem er talsvert meiri á friðaða
svæðinu. Beitarþungi hefur hins vegar
verið lítill í um þrjá áratugi á beitta
svæðinu og skýrir það líklega af
hverju ekki greindist meiri munur á
svæðunum.“
Fáar tegundir vantaði alveg
Þegar Brynjólfur er spurður um þær
plöntutegundir sem voru með meiri
útbreiðslu á öðru hvoru svæðinu segir
hann að blómjurtirnar fjalldalafífill,
klukkublóm, maríus takkur og
brjóstagras hafi verið marktækt
útbreiddari á beitta svæðinu. Þær
þrjár sem voru marktækt útbreiddari
á friðaða svæðinu voru hins vegar
krækilyng (smárunni), axhæra
(hálfgras) og klóelfting (byrkningur).
„Bróðurpartur tegunda sem þykja
eftirsóttar af sauðfé var útbreiddari á
friðaða svæðinu en meirihluti tegunda
sem þykja lítt eftirsóttar af sauðfé
voru útbreiddari á beitta svæðinu. Það
gefur til kynna áhrif af sauðfjárbeit.
Flestar tegundir fundust þó á báðum
svæðum og fáar vantaði alveg á öðru
hvoru svæði,“ segir Brynjólfur.
Smjörgras, blágresi og hrútaber
Að sögn Brynjólfs fundust allra
eftirsóttustu beitarplönturnar, eins
og smjörgras, blágresi og hrútaber,
ekki á beittu svæði en þær fundust
á fáeinum stöðum á friðuðu svæði.
Ekki greindist tölfræðileg marktækni
þar sökum þess hve fátíðar þær voru.
„Hið sama gilti um tegundir sem
fundust eingöngu á beittu svæði en
ekki friðuðu, þetta voru sjaldgæfari
tegundir eins og jakobsfífill,
hagavorblóm – og lygilegt en satt,
ein sjálfsáin stafafura í 300 metra hæð
yfir sjávarmáli. Þessi fundur fannst
mér það athyglisverður að ég ákvað
að gera litla rannsókn á útbreiðslu
sjálfsáinnar stafafuru í Hörgárdal
og Öxnadal í sumar, með styrk frá
Nýsköpunarsjóði en það er önnur
saga. Mér sýndist þó að sauðfjárbeit
þar næði að halda niðri útbreiðslunni
þar sem hún var til staðar, enda er
það engin tilviljun að menn girða
skógræktarsvæði af með tilliti til
þessa,“ segir Brynjólfur.
Friðun getur leitt til
tegundafækkunar háplantna
Þegar Brynjólfur er spurður að
því hvernig niðurstöðurnar muni
nýtast, til dæmis varðandi skipulag
landnýtingar og beitarstjórnun, segir
hann að það muni tíminn leiða í ljós.
„Eftir því sem ég best veit er verið að
gera sams konar rannsóknir hér og
hvar um landið um þessar mundir,
nokkrir doktorsnemar eru í því, held
ég. Það verður forvitnilegt að sjá
niðurstöðurnar þar. Fyrri rannsóknir
hafa einkum beinst að áhrifum
friðunar gagnvart sauðfjárbeit og það
hefur verið sýnt fram á að hún getur
leitt til tegundafækkunar háplantna,
einkum þar sem trjágróður vex upp.
Rétt er að taka fram að ég hef
í sjálfu sér ekkert mikið á móti
trjágróðri. Í minni rannsókn voru
jarðvegssýni einnig skoðuð og
fannst ágætt samband milli hlutfalls
kolefnis og köfnunarefnis í jarðvegi
og tegundafjölbreytni plantna.
Tegundafjölbreytnin minnkaði
eftir því sem hlutfall kolefnis og
köfnunarefnis jókst. Jafnframt var
þetta hlutfall örlítið lægra á beitta
svæðinu en því friðaða.
Það væri forvitnilegt að fá fleiri
rannsóknir á þessum þætti; hvort
sauðfjárbeit geti að einhverju leyti
stillt af jarðvegseiginleika með
tegundavali sínu og haft þannig
áhrif á tegundafjölbreytni plantna.
Hvur veit? Einnig þarf að rannsaka
hvernig og hvort sauðfjárbeit
geti nýst í hálfvöxnum skógi til
að viðhalda tegundafjölbreytni
háplantna. Slíkt tekur tíma og það
er því langbest að byrja strax.“
/smh
Brynjólfur Brynjólfsson. Ekki reyndist marktækur munur á tegundafjölbreytni á milli svæðanna í rannsókn hans.
Mynd / Aðsend
Fjalldalafífill og klukkublóm, sem ásamt maríustakki og brjóstagrasi fannst
í marktækt meira magni á beittu svæði. Mynd / Brynjólfur
Þekja plöntuhópa á samanburðarsvæðunum.
Krækilyng, sem var marktækt útbreiddara á friðaða svæðinu ásamt axhæru (hálfgras) og klóelftingu (byrkningur).
Sigurður Már
Harðarson
smh@bondi.is