Bændablaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 33

Bændablaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 3. nóvember 2022 Á Álandseyjum er undirbúningur að tilraunarverkefni með beitarstýringu á nautgripum og sauðfé með nýjum aðferðum. Í stað þess að halda aftur af húsdýrum með girðingum koma þar til gerð hálsbönd til sögu sem greina staðsetningu gripanna með GPS mælingum og gefa straum þegar farið er yfir „sýndargirðingar“. Vinna er hafin við að fá undanþágu frá núverandi reglugerðum sem koma í veg fyrir notkun þessara hálsbanda. Virkni þeirra er þannig að bóndinn skilgreinir landamerki beitasvæðisins í forriti sem tengist við hálsböndin. Gripirnir með búnaðinn fá fyrst hljóðmerki þegar þeir nálgast landamæri sem þeir mega ekki fara yfir. Ef þeir snúa ekki við er þeim gefinn straumur sem er daufari en sá sem kemur úr rafmögnuðum smalaprikum. Frá þessu er greint í Landsbygdens Folk. Þessi aðferð til beitarstýringar er þegar heimil í Ástralíu, Stóra- Bretlandi og Noregi. Þar hefur sýnt sig að með þessu er mun auðveldara að nýta landsvæði til beitar án þess að þurfa að reisa girðingar. Þar með minnkar rask og vandalítið er að friða og opna beitarhólf eftir þörfum. Tilraun til beitarstýringar af þessu tagi var framkvæmd í Gautlandi í sumar. Þar sýndi sig að skepnurnar lærðu að virða hljóðmerki hálsbandanna á fyrsta degi. /ÁL Íslensk framleiðsla á Bílskúrs- og Iðnaðarhurðum 564-0013 | 865-1237 – VERKIN TALA Gylfaf löt 32 ● 112 Reykjavík ● Sími 580 8200 ● www.velfang. is ● Óseyri 8 ● 603 Akureyri Vélfang ehf. selur og þjónustar jafnt nýjar sem notaðar vélar og tæki fyrir landbúnað, verktaka, golfvelli og sveitarfélög ásamt varahluta- og viðgerðarþjónustu. Framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini Fer fremstur Leiðandi afl í 190 ár Styrkur - afköst- skilvirkni Nýsköpun - metnaður - framsækni Fjölskyldufyrirtæki í fararbroddi Framtíðarsýn í landbúnaði á bbl.is og líka á Facebook Luiz Inacio Lula da Silva, fyrr- verandi forseti Brasilíu, sigraði Jair Bolsonaro, sitjandi forseta, í kosningum þarlendis um síðustu helgi. Úrslit kosninganna voru tvísýn allt fram á síðustu stundu og da Silva sigraði með tæplega 1% meirihluta. Lula da Silva, sem er 77 ára, tekur við embættinu um næstu áramót. Bolsonaro, fráfarandi forseti, hefur allt frá því hann va rkosinn í embætti verið harðlega gangrýndur fyrir afstöðu sína í umhverfismálum. Þrátt fyrir allt tal stjórnvalda í Brasilíu í valdatíð Bolsonaro um verndun skóga sýna loftmyndir að skógareyðing er enn að aukast og að eyðing þeirra er helsta uppspretta losunar gróðurhúsalofttegunda þar í landi. Skógareyðing í Amason jókst um 72% á meðan hann sat í embætti forseta. Bolsonaro hefur blásið á alla gagnrýni um skógareyðingu í Brasilíu og segir að um eðlilegar skógarnytjar sé að ræða. „Annaðhvort kalla menn mig Kaptein keðjusög eða líkja mér við Neró keisara og segja mig bera ábyrgð á skógareldunum.“ Haft hefur verið eftir forsetanum, sem oft hefur tekið Trump, fyrrum Bandaríkjaforseta, sér til fyrirmyndar, að umhverfisverndarsinnar beri ábyrgð á eldunum og að þeir hafi kveikt þá til að hefna sín á sér og stjórninni fyrir að draga úr framlögum til umhverfismála. Í kosningabaráttu sinni lofaði Luiz Inacio Lula da Silva að umhverfismál í Brasilíu yrðu tekin til alvarlegrar endurskoðunar. Á fyrsta kjörtímabili da Silva, 2003 til 2006, dróst skógareyðing í Amason saman um 43,7%. Vonandi mun hann standa við orð sín. /VH Luiz Inacio Lula da Silva, nýkjörinn forseti Brasilíu. Brasilía: Bolsonaro umhverfissóði tapaði Álandseyjar: Hálsbönd með GPS-stýringu halda aftur af beitardýrum Á Álandseyjum er áformað að fram- kvæma tilraun með beitastýringu. Mynd / Karl Hörnfeldt Mjólkurbú í Iowa í Bandaríkjum Norður-Ameríku var nýverið sektað vegna mykjuleka. Rann mykjan út í nálægan læk með þeim afleiðingum að fjöldi fiska drapst. Sektin nemur 10 þúsund bandaríkjadölum, eða tæpri 1,5 milljón króna. Á býlinu sem um getur eru um 3.300 nautgripir og því talsvert af mykju sem þar verður til. Gripirnir eru í þremur fjósum og er hreinsibúnaður gólfsins þannig að það er skolað með vatni. Afrennslið með mykjunni á eða átti að renna í stóra þró við fjósið. Svo virðist sem niðurfallsrör undir grindunum í fjósinu hafi stíflast með þeim afleiðingum að útþynnt mykjan flæddi um stóran hluta gripahússins og þaðan nokkra kílómetra niður eftir nærliggjandi læk með þeim afleiðingum að fjöldi fiska drapst. /VH Á býlinu eru um 3.300 nautgripir og því talsvert af mykju sem þar verður til. Mynd / peta.org Umhverfismál: Sekt vegna mykjuleka
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.