Bændablaðið - 20.10.2022, Blaðsíða 9

Bændablaðið - 20.10.2022, Blaðsíða 9
Hrein íslensk fæðubót frá Eylíf Eylíf vörurnar fást í öllum apótekum, Hagkaup, Krónunni, Heilsuhúsinu, Fjarðarkaupum og Nettó ókeypis heimsending á eylif.is ef keypt er fyrir 7000 kr eða meira „Ég, eins og aðrir sem komnir eru á minn aldur og stunda hreyfingu, var farinn að finna fyrir stirðleika í liðamótum og sting í hnjánum sem reynir oft mest á þegar klumpar eins og ég eru að reyna að skoppa. Svo varð mér til happs að ég sá auglýsingu þar sem mér eldri maður, en ágætis kunningi minn, hann Hartmann hjólari, talaði um hversu ánægður hann væri með bætiefnið Active JOINTS frá Eylíf. Í kjölfarið fór ég og keypti mér glas af Active JOINTS og hef eiginlega ekki sleppt úr degi, rúmlega hálfu ári síðar.“ Þetta segir Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri Votlendis- sjóðsins og tónlistarmaður. „Ég fann eiginlega strax mun daginn eftir og keypti mér líka Happier GUTS frá Eylíf en bæði efnin hafa reynst mér mjög vel. Ég hef nú prófað eitt og annað í gegnum tíðina og konan mín myndi örugglega segja að henni fyndist fullmikið af nýopnuðum dósum af allskonar heima, því ég er alltaf að leita að einhverju sniðugu, sem svo virkar sumt en flest ekki, en þetta virkar svo sannarlega vel og ég gæti ekki verið ánægðari með vöruna,“ segir Einar. Hann er mikið á faraldsfæti í lífi sínu og starfi. „Ég hjóla mikið og labba, passa að ganga upp og niður stiga í stað þess að taka lyftuna og finnst Active JOINTS hafa gjörbreytt leiknum fyrir mig. Fyrir mann eins og mig, sem er í yfirvigt, og þótt ég hafi oft verið í meiri yfirvigt en ég er í dag, þá fylgir mikilli hreyfingu áreynsla á hnén. Ég fann alltaf fyrir seiðingi og sting í hnénu en það er bara alveg farið. Því duga engar afsakanir lengur; bara gjöra svo vel að fara út að hreyfa sig og núna er það bara gaman.“ Einar fer fyrir Votlendissjóði og því fylgir bæði ferðalög og flakk „Í vinnunni geng ég mikið úti í náttúrunni til að skoða mýrlendi og þá þyngist oft labbið í þýfnum og blautum jarðvegi og mikið um skröngl og brölt, en nú finn ég ekkert fyrir því. Áhugamálið felst svo í því að ég og smá hópur í kringum mig höldum íþrótta- og afþreyingamót fyrir fólk á miðjum aldri, svo sem hjólamót, utanvegahlaup og hitt og þetta, og því fylgir líka undirbúningur við að skoða leiðir og þvælast á vettvangi, því á einni slíkri keppnishelgi þarf að djöflast um og labba fleiri tugi kílómetra, og þá er ekki verra að vera með liðina vel smurða,“ segir Einar ánægður með árangurinn. „Þegar maður hefur glímt við verki og er í yfirvigt er ríkt í manni að reyna að komast hjá því að hreyfa sig af því maður veit að því fylgir áreynsla og vont nudd á hnjám, en þegar Finnst Active JOINTS frá Eylíf hafa gjörbreytt leiknum fyrir mig hverfur, eins og hefur gerst hjá mér með Active JOINTS, þá tekur smá tíma að sannfæra hausinn um að kvíða því ekki lengur að hlaupa upp í móti eða skjótast það sem þarf. Hausinn þarf að venjast því að hafa ekki lengur áhyggjur af verknum en svo kemur að því að hann segir: „Þetta verður allt í lagi; verkurinn er farinn. Gott! Hlaupum bara af stað!“ og þá gerir maður einmitt það,“ segir Einar kátur. Mælir hiklaust með Active Joints og Happier Guts Einar segir mikinn lífsstílslétti að finna ekki lengur seiðing né sting í hnjánum og hann er ekki frá því að Active JOINTS hafi góð áhrif á fleiri liði líkamans. „Svei mér ef ég er ekki líka orðinn fimari í fingrunum því ég er farinn að setjast oftar niður með gítarinn og kannski það sé Active JOINTS af þakka. Hver veit nema maður semji jólalag,“ segir hann glettinn og hlær. „Undan- farin ár hef ég verið heldur rólegri í tónlistinni en ég vildi, en nú er ég aðeins farinn að spá og spekúlera meira og í febrúar ætla ég að halda kassagítarstónleika hér og þar á landinu með þeim sem hafa gert flest lögin mín þekkt. Þar tökum við lagið ég og Gunni Óla, Magni, Skímó og kannski Klara í Nælon; fyrst og fremst okkur til skemmtunar og þeim sem hafa gaman af því að hlusta á okkur,“ segir Einar, fullur tilhlökkunar og létt að laus við verkina. „Ég mæli hiklaust með Active JOINTS og Happier GUTS frá Eylíf og svo finnst mér ekki verra að vita til þess að bætiefnin frá Eylíf eru framleitt hér heima; úr íslenskum hráefnum úr hreinni, íslenskri náttúru.“ Einar Bárðarson Vörulínan frá Eylíf Vörulínan Eylíf býður upp á fimm vörur, Active JOINTS, Stronger BONES, Smoother SKIN & HAIR, Happier GUTS og nýjasta varan er Stronger LIVER, allt vörur sem hafa reynst fólki vel. Vörurnar eru unnar úr hreinum, íslenskum hráefnum, engum aukaefnum er bætt við og framleiðslan er á Grenivík. Ólöf Rún Tryggvadóttir er stofnandi vörulínunnar Eylíf, en hugmyndin að henni kom til vegna þess að hana langaði að setja saman þau frábæru hráefni sem eru framleidd á á Íslandi á sjálfbæran hátt frá náttúrulegum auðlindum á Íslandi og auka þannig aðgengi fólks að þessum gæðahráefnum. Framleiðslan fer fram á Grenivík og þróun varanna er í samstarfi við sérfræðinga frá Matís. Íslensku hráefnin sem notuð eru í allar Eylíf vörurnar eru: • Kalkþörungar frá Bíldudal • Smáþörungar (Astaxanthin) frá Reykjanesbæ • GeoSilica frá Hellisheiði • Kollagen frá Sauðárkróki • Kítósan frá Siglufirði • Íslenskar jurtir handtíndar frá fjölskyldufyrirtæki í Hafnarfirði Hrein íslensk óerfðabreytt hráefni Íslensk framleiðsla Heilsan er dýrmætust Fæðubótarefni kemur ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki ætlað börnum eða barnshafandi konum. Ekki er ráðlagt að taka meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem börn ná ekki til.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.