Bændablaðið - 20.10.2022, Síða 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2022
RANNSÓKNIR&ÞEKKING
Nokkur tækifæri felast í aukinni
nýtingu hliðarafurða grænmetis og
ávaxta en varnarefni sem finnast
á yfirborði þeirra geta aftrað
fýsileika slíkrar neyslu.
Innan veggja Matís er nú unnið
rannsóknarverkefni sem ber titilinn
„Trefjaríkt og hollt hýði?“ Ásta
Heiðrún E. Pétursdóttir, sviðsstjóri
lýðheilsu og matvælaöryggis, er
verkefnastjóri þess. Hún kynnti
frumniðurstöður rannsókna sinna
á aðalráðstefnu Samtaka norrænna
búvísindamanna nýlega.
„Ég, og við hjá Matís, höfum
mikinn áhuga á að nýta allar
hliðarafurðir. Nú hendum við fullt
af hýði og berki sem við skrælum
af ávöxtum og grænmeti og vildum
við skoða hvort einhver tækifæri
fælust í því.“
Við könnun á ýmsum leiðum til
nýtingar á hýði velti Ásta hins vegar
fyrir sér þátt varnarefna á ávöxtum
og grænmeti sem bera hýði eða börk.
Enn fremur vildi hún kanna hvort
næringargildi þeirra væri annað
en innvolsins. Því var sett upp
rannsóknarverkefni sem hlaut m.a.
styrk frá Matvælasjóði í fyrra.
Báru saman íslenskar og
innfluttar vörur
Tekin voru 149 sýni af vörum frá
22 löndum. Alls voru 90 sýni úr
innfluttum vörum og 59 sýni úr
innlendum vörum. Vörurnar voru
sóttar í verslanir en í einhverjum
tilfellum beint til framleiðenda.
Sýnin voru úr 76 tegundum
grænmetis, s.s. gúrkum, sveppum,
tómötum, paprikum, kartöflum,
ýmsu káli, kryddjurtum, 45
ávöxtum og berjum; mangó,
banana, eplum, sítrusávöxtum,
melónum, kíví, jarðarberjum,
bláberjum og hindberjum og fjórtán
kornvörum; byggi og höfrum.
„Ein hugmyndin var að kanna
hvort munur væri á varnarefnum
í íslenskum og innfluttum vörum.
Lítið er að finna af gögnum um
íslenskt grænmeti þannig við vildum
gera þann samanburð. Því reyndum
við eftir fremsta megni að taka
sýni af sambærilegum innlendum
og innfluttum vörum, t.d. íslenskar
kartöflur og erlendar kartöflur,
íslensk jarðarber og erlend jarðarber
og svo framvegis,“ segir Ásta.
Sýnin voru skimuð fyrir
varnarefnum í öllum ávextinum eða
grænmetinu. Síðar voru valin sýni
skoðuð að innan og utan ásamt því
að næringarefni þeirra voru greind.
Frumniðurstöður sýna svo ekki
verður um villst að innfluttar vöru
voru miklu gjarnari á að hafa á sér
varnarefni en þær íslensku. Af þeim
90 innfluttu vörum sem tekin voru
til skoðunar innihéldu 57 varnarefni,
eða 63% heildarinnar. Af þeim 59
innlendu vörum sem tekin voru til
skoðunar, innihéldu 20 varnarefni í
einhverju mæli, eða 34% sýnanna.
Ásta bendir á að þó varnarefnin
hafi fundist í vörum séu þau
í allflestum tilfellum innan
eðlilegra marka. Það sem fannst
var skordýraeitur, sveppalyf og/
eða stýriefni, sem t.d. eru notuð
til að hafa áhrif á vöxt og viðgang
ákveðinna tegunda matvæla, t.d. til
að draga úr spírun kartaflna og auka
þar með geymsluþol.
Íslenskt ber og kryddjurt með
varnarefni yfir hámarksgildum
Hins vegar innhéldu 9% sýna
varnarefni yfir leyfilegum hámarks
gildum, tvö innlend og ellefu
innflutt.
Innlendu vörurnar tvær voru
annars vegar kryddjurt, hins
vegar ber. „Þetta voru leifar af
skordýraeitri. Við eftirlit á íslenskum
matvælum hafa alveg fundist
varnarefnaleifar en þau eru sjaldan
yfir mörkum, en það er reyndar tekið
miklu minna af sýnum af innlendum
vörum en innfluttum.“
Erlendu vörurnar ellefu voru
ávextir, krydd og grænmeti.
Reyndist meirihluti innfluttu
ávaxtanna innihalda einhverjar
varnarefnisleifar og 21% þeirra var
yfir hámarksgildum. Algengast var
að finna þær á berki sítrusávaxta.
Ásta segir sjálfsagt að fólk
sé varkárt við neyslu á hýði
sítrusávaxta. „Við erum sjaldnast að
tala um mikið magn, við borðum t.d.
ekki allan börkinn af heilli appelsínu.
Það hefur hins vegar ekkert endilega
neikvæð áhrif ef verið er að raspa
smá börk af appelsínu eða setja smá
sítrónusneiðar í vatnið sitt.“
Dregur engar ályktanir
Niðurstöður þessara skimana
Matís leiða að því líkum að magn
varnarefna í matvælum sé að aukast
en við opinbert eftirlit undanfarin ár
hefur hlutfall sýna með varnarefni
yfir hámarksgildum verið 56%.
Heilbrigðiseftirlitið framkvæmir
sýnatökur á 100200 vörum árlega
eftir forskrift MAST sem byggt er
á reglum Evrópusambandsins en í
allflestum tilfellum eru þau sýni sem
tekin eru af erlendum vörum.
Ásta segir þó erfitt að túlka
niðurstöðurnar út frá þessum
takmarkaða fjölda sýna. „Þetta
getur gefið vísbendingar um aukna
notkun varnarefna við framleiðslu
grænmetis og ávaxta en kannski var
þetta eingöngu tilviljunarkennt með
þetta sett af sýnum. Við þyrftum að
afla meiri gagna til að draga ályktanir
um þennan þátt rannsóknarinnar,“
segir Ásta.
Hún segir hins vegar að í ljósi
þess að varnarefni hafi fundist í
miklum mæli á barkarávöxtum
hafi fókus rannsóknarinnar færst
frá þeim og yfir á grænmeti. „Við
finnum minna af varnarefnum í
íslensku grænmeti og viljum núna
skoða það betur, til dæmis með því
að mæla trefjar, vítamín og steinefni
í hýði þess og sjá hvort upprunalega
hugmynd verkefnisins, um betri
nýtingu, geti átt við það.“
Lokaniðurstaðna verkefnisins
er að vænta í árslok og vonast
Ásta til að þær geti orðið í formi
leiðbeininga og tillagna um sniðuga
notkun á hliðarafurðum grænmetis.
bondi@byko.is
Stöðluð stálgrindarhús
Stærðir: 80m², 150m², 250m² og 350m²
Stálgrindin er heitgalvaniseruð og er
sérsmíðuð fyrir íslenskar aðstæður. Húsin
standast mestu snjó-og vindálagskröfur
sem gerðar eru í byggð á Íslandi og henta
því sem geymslu-og vélaskemmur í öllum
landshlutum. Húsin eru klædd 60mm PIR
yleiningum á veggi og 80/125mm yleiningum á
þök. Mögulegt er að velja liti á klæðningarnar.
Húsunum fylgja allar nauðsynlegar teikningar
til að fá byggingarleyfi ásamt teikningum
af grunni og vinnuteikningum. Einnig fylgir
keyrsluhurð, einn gluggi og tvær gönguhurðir.
Reyklosunargluggar eru á þaki sem hleypa
inn birtu.
á hagstæðu verði
Beikon úr bananahýði
Á veraldarvefnum úir og grúir af
alls kyns upplýsingum. Sniðug
nýting aldinhýða er þar á meðal.
Meðal athyglisverðra uppskrifta
er meðhöndlun bananahýðis eins
og um beikon sé að ræða. Í stuttu
máli er bananahýði saltað og það
látið þorna. Þá er það penslað
með marineringu sem inniheldur
ýmis reykt krydd og púðursykur
í sojasósu. Marineringin er látin
liggja á hýðinu í nokkurn tíma áður
en þau eru steikt á pönnu.
Útlitið er ekki ólíkt hinu venjulega
beikoni og hýðin virðast girnilega
stökk ef þau eru rétt steikt.
Guðrún Hulda Pálsdóttir
gudrunhulda@bondi.is
Varkárni gagnvart neyslu á hýði sítrusávaxta er sjálfsögð enda reyndust
margir þeirra innihalda varnarefnisleifar. Mynd / Maryam Jahanm
Ásta Heiðrún E. Pétursdóttir,
sviðsstjóri lýðheilsu og matvæla-
öryggis hjá Matís.
Matvælaöryggi:
Meira af varnarefnum í erlendum
en innlendum matvælum
– Matís rannsakar tækifæri við nýtingu á aldinhýði og ytra byrði grænmetis