Bændablaðið - 20.10.2022, Page 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2022
Þeir sem eru á móti eldinu segja það
hafa slæm áhrif á umhverfið vegna
mengunar og hættu á slysasleppingu
eldislaxa sem geti mengað erfða-
mengi villtra laxastofna. Auk þess
sem þeir segja að eldið samræmist
ekki dýravelferð og að laxalús sé
mikið vandamál.
Þeir sem hlynntir eru eldinu
segja mengun frá því vera litla og
allt gert til að draga úr henni og
að það framleiði hollan mat, auki
atvinnuuppbyggingu og skapi
miklar tekjur.
Heildarvelta Arnarlax árið 2021
var um 13 milljarðar króna og greiddi
fyrirtækið tæplega milljarð í skatta og
opinber gjöld fyrir sama ár.
Arnarlax er stærsti framleiðandi
eldislax á Íslandi. Höfuðstöðvar
Arnarlax eru á Bíldudal og hefur
fyrirtækið leyfi fyrir hámarkslífmassa
í sjó upp á 25.200 tonn af eldislaxi
á sjö svæðum í þremur fjörðum
Arnar-, Patreks- og Tálknafirði.
Framleiðslugeta vinnsluhússins á
Bíldudal er aftur á móti 30 þúsund
tonn og geta fyrirtækisins til að auka
starfsemi sína töluverð.
Árið 2020 lagði Arnarlax fram
frummatsskýrslu um sjókvíaeldi í
Ísafjarðardjúpi fyrir framleiðslu á
10.000 tonnum af laxi á ári. Gert er
ráð fyrir að eldiskvíar verði staðsettar
á þremur eldissvæðum, við Óshlíð,
Drangsvík og Eyjahlíð, sú umsókn
er enn í ferli.
Framleiðsla Arnarlax árið 2021
var um 11,5 þúsund tonn og stefnir
í um 16 þúsund tonn af eldislaxi á
árinu 2022 og er hann nánast allur
fluttur úr landi.
Starfsleyfi
Samkvæmt starfsleyfum Umhverfis-
stofnunar er Arnarlaxi heimilt að
stunda kynslóðaskipt eldi í sjókvíum í
fjórum fjörðum; Arnarfirði, Fossfirði í
Arnarfirði, Patreksfirði og Tálknafirði.
Í dag eru sjö virk eldissvæði og fjögur
til viðbótar sem eru óvirk en leyfi er
fyrir. Í Patreksfirði er eldissvæðið Eyri,
í Tálknafirði eldissvæðið Laugardalur
og í Arnarfirði eldissvæðin Haganes,
Hringsdalur, Steinanes og Tjaldanes
og svo svæðið Foss í Fossfirði.
Samkvæmt leyfi skulu eldissvæðin
hvíld í að minnsta kosti níutíu daga
milli kynslóða.
Umhverfisstofnun hefur eftirlit
með starfsemi rekstraraðila í
samræmi við lög um hollustuhætti
og mengunarvarnir og reglugerð
um losun frá fyrirtækinu og
mengunarvarnaeftirlit.
Ferli eldisins á landi
Seiðaeldi Arnarlax er á Gileyri í
Tálknafirði, Hallkelshólum á Borg í
Grímsnesi og í Þorlákshöfn. Á síðasta
ári keypti fyrirtækið seiðaframleiðslu
Fjallableikju að Hallkelshólum í
Grímsnesi sem nú hefur fengið
nafnið Fjallalax og eldisstöðina að
Laxabraut 5 í Þorlákshöfn. Á þessu
ári keypti Arnarlax einnig allt hlutafé
í eldisstöðinni Ísþór og er eini eigandi
stöðvarinnar.
Hrogn eru klakin og seiði alin að
Hallkelshólum og verða flutt þaðan
að seiðaeldisstöðinni í Þorlákshöfn.
Þar eru seiðin alin áfram áður
en þau eru flutt með brunnbát í
sjókvíaeldisstöðvar fyrirtækisins.
Það tekur hrogn eldislaxa að
jafnaði sextíu daga að klekjast út við 8
ºC í klakskáp. Við klak eru seiðin með
kviðpoka sem sér þeim fyrir næringu
fyrstu vikurnar og vöxtur þeirra háður
umhverfisaðstæðum.
Eftir að forði kviðpokans er búinn
eru seiðin flutt í ferskvatnseldistanka
og fóðrun hefst. Hitastigið í tönkunum
er 10 °C til 14 °C og lýsing dempuð
allan sólarhringinn. Seiðin eru í
þessum tönkum í um það bil sex
vikur en þá eru þau flokkuð eftir
stærð og bólusett við kýlaveiki,
kýlaveikibróður, vetrarsárum og
vibríuveiki og dælt til áframeldis í
stærri eldistanka.
Um það leyti sem laxaseiði ná þeim
þroska að geta lifað í sjó verður kviður
þeirra silfurlitur, bakið blágrænt og
tálkn þeirra breytast.
Í næsta skrefi er seiðunum dælt
um borð í brunnbát og þau flutt í
sjókvíar til eldis í sjó. Stærð seiðanna
við flutning í sjókvíar er milli 90 og
500 grömm.
Sjókvíar
Stærð sjókvíar er á milli 120 til 200
metrar að ummáli og eru milli fimm
til sextán kvíar á hverju eldissvæði.
Þvermál kvíanna er milli 38 til 64
metrar og rúmmál þeirra milli 22 til
80 þúsund rúmmetrar. Kvíarnar eru
kirfilega festar og eiga að þola allt að
sjö metra ölduhæð.
Arnarlax notar koparoxíð, nánar
tiltekið vöruna Netwax ni3, sem
ásætuvörn á netapoka samkvæmt
undanþágu Umhverfisstofnunar
en efnið er í samþykktarferli hjá
Evrópusambandinu. Koparoxíð er
samþykkt utan Evrópusambandsins
og koparoxíð sem aðalinnihaldsefnið
í Netwax ni3 er samþykkt innan þess.
Landvernd, Icelandic Wildlife
Fund og samtökin Laxinn lifi hafa gert
athugasemdir við leyfisveitinguna. Í
umsögn Hafrannsóknastofnunar til
Skipulagsstofnunar sagði að 80% af
koparnum losni út í vatnið. „Þó svo
að kopar safnist ekki upp í lífkeðjum
þá virkar hann staðbundið sem
eitur á til dæmis þörunga og ýmsa
hryggleysingja með því að hafa
neikvæð áhrif á lífeðlisfræðilega ferla.
Kopar virkar sem ásætuvörn einmitt
vegna þess að hann er eitraður þessum
lífverum“, segir í umsögninni.
Eldi í sjó og slátrun
Eftir að seiðin koma í kvíarnar eru
þau fóðruð í 16 til 24 mánuði áður en
þau ná sláturstærð sem er í kringum
sex til sjö kíló. Fóðrunin fer fram í
gegnum fljótandi fóðurpramma sem
er við hvert eldissvæði og er fóðrun
stýrt frá Bíldudal.
Eldið er vaktað nánast allan
sólarhringinn með myndavélum og
nemum sem tengdir eru stjórnstöðinni
á Bíldudal og brugðist er við öllum
frávikum eins fljótt og hægt er.
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Vöxtur laxeldisfyrirtækisins Arnarlax ehf. á Bíldudal hefur verið ör.
Laxeldi í sjó er umdeilt og margir leggjast alfarið gegn því. Starfsemi
fyrirtækisins hefur haft góð samfélagsleg áhrif á Bíldudal og bæjarfélagið
er í vexti þrátt fyrir að hafa verið flokkað sem brothætt byggð fyrir
tæpum áratug. Bændablaðið heimsótti Arnarlax.
Arnarlax ehf:
Stefnt á aukið laxeldi í sjó
Sjókví í Arnarfirði. Stærð sjókvíar er á milli 120 til 200 metrar að ummáli og eru milli fimm til sextán kvíar á hverju eldissvæði. Myndir / VH
Víkingur Gunnarsson, verkefnastjóri
hjá Arnarlax.
Seiðeldi á landi.
UMFJÖLLUN