Bændablaðið - 20.10.2022, Qupperneq 50

Bændablaðið - 20.10.2022, Qupperneq 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2022 LESENDARÝNI Þjóðkirkjan svarar kalli um ræktun birkiskóga Þjóðkirkjan hefur bæst í hóp þeirra sem taka höndum saman varðandi endurheimt skóglendis á Íslandi. Hreinn Óskarsson, fulltrúi Skógræktarinnar, afhenti biskupi Íslands, Agnesi M. Sigurðardóttur, fjölda birkifræja til sáningar. Athöfnin fór fram í barnamessu í Bústaðakirkju um miðjan október. Birkifræin koma úr landssöfnun Skógræktarinnar. Þeim verður dreift til allra skírnarbarna næstu árin með kveðju frá Skírnarskóginum. Á hverju ári eru nokkur þúsund barna borin til skírnar og má því gera ráð fyrir að Skírnarskógurinn vaxi og dafni með sáningu fjölda birkifræja um allt land. Fjársjóðskista með birkifræjum Barnamessan í Bústaðakirkju hófst á líflegum píanóleik organistans Jónasar Þóris Þórissonar á meðan fólk á öllum aldri tíndist inn í kirkjuna. Á fremstu bekkjum sátu þau Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, ásamt Hreini Óskarssyni, fulltrúa Skógræktarinnar. Þegar líða tók á stundina drógu umsjónarkonur barnamessunnar fram brúna trékistu. Börnin komu upp að altarinu til þess að sjá hvaða fjársjóð kistan hafði að geyma. Ofan í henni mátti sjá ótal mörg birkifræ. En hvers vegna voru öll þessi fræ í kistunni? Svarið við þeirri spurningu áttu Hreinn og Agnes. Þau lýstu því í einföldu máli hversu mikilvægt það er að planta trjám og endurheimta skóglendi á Íslandi. Þau sögðu börnunum einnig hversu duglegt eitt tré væri þegar kemur að því að kolefnisjafna heila mannsævi. Barnið stækkar um leið og birkitréð vex og dafnar. Agnes lýsti því hvernig tréð getur orðið risastórt, miklu stærra en barnið sem sáði því. Hreinn benti börnunum á það að trén sem vaxa í kringum kirkjuna hafi eitt sinn verið pínulítil fræ. Núna eru þau orðin myndarleg tré sem gefa skjól fyrir veðri og vindum. „Hvert barn sem skírt er, fær afhent fallegt kort frá Skírnarskóginum en hvert kort inniheldur u.þ.b. þúsund birkifræ,“ sagði Agnes. „Við höfum í hyggju að eiga í nánara samstarfi við Skógræktina í framtíðinni,“ bætti hún við. „Við hyggjumst setja af stað verkefni næsta haust þar sem við fáum fermingarbörn um allt land til þess að safna birkifræjum. Þannig getum við skilað Skógræktinni aftur þeim fræjum sem við fengum frá þeim.“ Hreinn sagði þetta vera fallegt innlegg í uppeldi barna að læra að sá fræjum og safna þeim. Þannig læra þau að hlúa að náttúrunni sem er svo mikilvæg og dýrmæt. Sumar kirkjur munu bjóða foreldrum og forráðamönnum upp á ákveðna staði fyrir sáningu fræjanna og uppvöxt Skírnarskógar en foreldrum eða forráðamönnum hvers barns er í sjálfsvald sett hvar þeir vilja sá fræjunum og rækta sitt birkitré. Bjartey Móa fékk fyrstu fræin Ásta Guðrún Guðmundsdóttir og Steinar Hrafn Höskuldsson létu skíra dóttur sína í ágúst. Við skírnina hlaut hún nafnið Bjartey Móa. Hún er fyrsta skírnarbarnið sem fær slíka kveðju frá Skírnarskóginum. Þau ákváðu að setja nokkur fræ í garðinn heima hjá sér. Hins vegar ætla þau líka að sá fræjunum uppi í sumarbústað. Reyndar eru tveir sumarbústaðir í fjölskyldunni, annar er í Grímsnesinu en hinn í Árnesinu. Fyrst fræin eru svona mörg er möguleiki á að dreifa þeim víða. Stóri bróðir, Guðmundur Glói, er orðinn tveggja og hálfs árs. Hann fékk líka kveðju frá Skírnarskóginum með birkifræjum, þótt það sé orðið töluvert langt síðan hann var skírður. Undir birkitré Skálholtsútgáfa sér um dreifingu kortanna sem innihalda fræin. Í tengslum við Skírnarskóginn kemur einnig út falleg skírnarbók sem ber nafnið Undir birkitré. Innan á kápu bókarinnar er vasi sem prestarnir geta sett Skírnarskógarkortið í. Bókin er minningabók barnsins og gestabók fyrir skírnarveisluna. Þar má líma myndir af barninu á ýmsum aldursskeiðum, skrifa skemmtilegar og skondnar minningar, geyma sónarmyndina og hárlokk svo fátt eitt sé nefnt. Í henni eru líka fallegar bænir og vers, stuttar biblíusögur og margt fleira. Hönnuður kortsins og bókarinnar er Halla Sólveig Þorgeirsdóttir teiknari. Elín Elísabet Jóhannsdóttir, verkefnastjóri fræðslusviðs þjóðkirkjunnar. Agnes M. Sigurðardóttir og Hreinn Óskarsson. Myndir / EEJ Ásta Guðrún Guðmundsdóttir, Steinar Hrafn Höskuldsson og Bjartey Móa. Elín Elísabet Jóhannsdóttir. Kortið og fræin í umslaginu. 80 ár frá komu skurðgröfunnar til Íslands Þann 16. febrúar 2012 skrifaði ég grein í Bændablaðið til að minnast þess að 70 ár voru liðin frá komu fyrstu skurðgrafanna til Íslands. Skurðgröfurnar tvær voru af gerðinni Prist- man Cub, en þær voru settar saman í kolaporti Þórðar Ásmundssonar á Akranesi, en samsetninguna annaðist Eirik Eylands vél- fræðingur og hjálparmaður hans, Karl Auðunsson á Jaðri á Akranesi, en Karl varð síðar eftirlits- og viðgerðarmaður Vélasjóðs ríkisins. Eirik van fyrst með gröfunni þann 1. júní 1942 í Garðaflóa á Akranesi. Eins og kunnugt er hleyptu gröfurnar af stað byltingu í framræslu mýra og stóraukinni túnrækt víða um land. Einnig voru þær notaðar við landanir á fiski með góðum árangri. Lá undir skemmdum Eftir margra ára notkun sótti Karl Auðunsson vélina og gerði hana upp fyrir landbúnaðarsýningu. Meðal annars hafði hann skorið út á fjöl nöfn þeirra manna sem unnið höfðu á vélinni. Eftir þetta var hún flutt upp að Garðaholti á Akranesi þar sem verkstæðisþjónusta Vélasjóðs fór fram. Stóð hún þar, sem nokkurs konar tignarmerki um miklar framfarir á Íslandi, undir öruggu eftirliti Karls á Jaðri, en eftir að hann féll frá, hrakaði eftirliti með vélinni og kom þá til tals að farga henni. Þegar hér var komið sögu barst Pétri G. Jónssyni hjá Þjóðminjasafni Íslands þetta til eyrna, en hann brást þegar við og bjargaði gröfunni frá glötun. Pétur kom gröfunni fyrst í hús í Árbæjarsafni, en síðar í geymslu Þjóðminjasafnsins í Kópavogi. Bjargráð Bjarni Guðmundsson, forstöðu- maður Búvélasafnsins á Hvann- eyri, ræddi á þessum árum við þáverandi þjóðminjavörð, Þór Magnússon, um úrbætur og viðgerð gröfunnar ásamt væntanlegri varðveislu. Síðar mun safnið hafa ætlað að bjóða gröfunni verðugt húsaskjól á vegum Búvélasafnsins og þá í samvinnu við Þjóðminjasafnið. Ár og áratugir líða og ekkert hefur orðið af framkvæmdum við að bjarga vélinni; hún lá í nokkur ár óvarin að mestu í bragga Þjóðminjasafnsins við Vesturvör í Kópavogi, en nú mun hún hafa verið flutt í varðveisluhúsnæði safnsins austur á Eyrarbakka. Efndir Loforð Búvélasafnsins á Hvann- eyri og Þjóðminjasafns Íslands hafa ekki verið efnd, þ.e. að vinda bráðan bug að því að gera þessa sögufrægu skurðgröfu upp og koma henni í varanlegt skjól, væntanlega á Hvanneyri, þar sem hún myndi sóma sér vel sem einn af sýningargripum Búvélasafnsins. Hún hefði sæmt sér vel sem sýningargripur á Landbúnaðar- sýningunni í Laugardal nú í lok október 2022; vonandi mun hún í framtíðinni verða til sýnis á Landbúnaðarýningum, þar sem hún á svo sannarlega að eiga sinn afmarkaða bás. Ásmundur Ólafsson, fyrrv. framkvæmdastjóri Dvalarheimilisins Höfða á Akranesi. Fyrsta skurðgrafan á Íslandi. Priestman Cub skurðgrafan tók til starfa í Garðaflóa á Akranesi 1. júní 1942, síðar í Innri-Akraneshreppi og Borgarfjarðarhéraði. Veturinn 1943–1944 var grafan lánuð Akranesbæ og notuð sem bryggjukrani við að landa fiski. Gagnsemi gröfunnar reyndist mikil strax frá fyrsta degi. Hún var keypt til landsins að tilstuðlan Þórðar Ásmundssonar, útgerðarmanns á Akranesi og Björns Lárussonar, bónda á Ósi í Skilmannahreppi. Grafan stendur hér við fyrstu viðgerðarþjónustu- skemmu Vélasjóðs í Garðaholti á Akranesi. Myndin er líklega tekin um 1980, en grafan var þá í umsjón Karls Auðunssonar fyrsta, starfsmanns þjónustunnar. Grafan er nú í geymslu hjá Þjóðminjasafni Íslands. Mynd / Ljósmyndasafn Akraness Ásmundur Ólafsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.