Bændablaðið - 20.10.2022, Page 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2022
A Wendel ehf.
Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík,
S:551 5464 - wendel@wendel.is
www.wendel.is
Hilltip Icestriker 900–1600L
Salt og sanddreifari í tveim
stærðum fyrir stóra pallbíla og
minni vörubíla. Rafdrifinn 12V.
Hilltip Icestriker 380–550L
Salt og sanddreifarari í tveim
stærðum, fyrir minni pallbíla.
Rafdrifinn 12V.
Hilltip Icestriker 600 TR
Rafdrifinn kastdreifari
fyrir dráttarvélar m/öflugum
efnisskömmtunarbúnaði.
Hilltip Snowstriker VP
Fjölplógur fyrir pallbíla, minni
vörubíla og jeppa. Fáanlegur í
185–240 cm breidd.
Hilltip Snowstriker SP
Snjótönn fyrir pallbíla, minni
vörubíla og jeppa. Fáanleg í
165–240 cm breidd.
Hilltip Fjölplógur MVP
Fjölplógur fyrir ameríska
pallbíla t.d. RAM 3500,
GMC 3500 og FORD 350.
Hvað líður endurskoðun
á sauðfjársamningi?
Líkt og bændur vita þá líður
að næstu endurskoðun sauð-
fjársamnings, hún á að fara fram
á árinu 2023.
Í aðdraganda
endurskoðunar er
ágætt að staldra
við og skoða hvað
betur má fara í
okkar umhverfi.
Við síðustu
endurskoðun voru
gerðar ákveðnar
breytingar á
f r a m k v æ m d
samningsins, kvótamarkaður var
settur á laggirnar með greiðslumark
og hefur það fyrirkomulag reynst vel.
Það má með sanni segja að söguleg
sátt ríki meðal sauðfjárbænda um
fyrirkomulag greiðslna til bænda.
Það sýnir afdráttarlaus stuðningur
bænda við tillögur á tveimur stórum
aðalfundum samtaka sauðfjárbænda
þar sem lagt var til að stöðva
niðurtröppun greiðslumarks.
Greiðslumarkið hefur þann kost
umfram aðrar greiðslur að þar geta
bændur skapað sér greiðslugrunn til
framfærslu búsins, lakari meðalvigt,
minni ull, meiri vanhöld lamba
og margar aðrar utanaðkomandi
aðstæður hafa ekki áhrif á þessar
greiðslur til bænda. Tekjugrunnur eða
tekjutrygging hvers konar til bænda
hlýtur alltaf að vera af hinu góða.
Líkt og kom fram í skýrslu
Byggðastofnunar, sem gefin var út í
maí 2022, þá var, og er enn, ríkjandi
afkomuótti á meðal sauðfjárbænda.
Það er atriði sem við verðum að taka
alvarlega. Það er beinlínis óvarlegt
og óskynsamlegt að færa fjármuni á
milli liða nú um næstu áramót, þegar
það hefur jafnvel lítið annað í för með
sér en að auka á óöryggi bænda hvað
varðar afkomu.
Stöldrum heldur við, leyfum
hinni sögulegu sátt að ríkja og
göngum til endurskoðunar þar sem
markmiðið verður að bæta lífsgæði
sauðfjárbænda, ekki að hringla með
lífsafkomu þeirra frá ári til árs.
Bændasamtök Íslands óskuðu
eftir því við Svandísi Svavarsdóttur
landbúnaðarráðherra að gerð yrði
breyting á Samningi um starfsskilyrði
sauðfjárræktarinnar, þannig að
tilfærsla af greiðslumarki yfir á aðra
liði samningsins myndi stöðvast.
Beiðnin byggði á ályktunum frá
framhaldsaðalfundi LS sem haldinn
var 11. nóvember 2021. Þar var
eftirfarandi tillaga samþykkt með
yfirgnæfandi meirihluta atkvæða.
Aðalfundur Landssamtaka
sauðfjárbænda haldinn 11.
nóvember 2021 skorar á
stjórn BÍ að endurskoða nú
þegar gildandi samning um
starfsskilyrði sauðfjárræktar
með það að markmiði að stöðva
fyrirhugaða niðurtröppun á
greiðslumarki sem koma á til
framkvæmda 2023.
Málið var síðan talsvert rætt á
búgreinaþingi deildar sauðfjárbænda
sem haldið var 3.–4. mars síðast
liðinn. Þar var einnig samþykkt
með miklum meirihluta eftirfarandi
tillaga:
Endurskoðun samnings um
starfsskilyrði sauðfjárræktar:
Fari fram sem fyrst og að
endurskoðun verði lokið fyrir
1. janúar 2023. Að öðrum kosti
að tilfærsla af greiðslumarki
yfir á aðra liði samningsins
stöðvist þar til endurskoðun
hefur verið lokið. Leitast
verði við að samningur um
starfsskilyrði sauðfjárbænda
geri miklar sveiflur í afkomu
sauðfjárbænda ólíklegri og
innifeli stjórntæki til að takast
á við sveiflur þegar þær verða.
Erindi byggt á þessum
tillögum var sent til ráðherra
landbúnaðarmála 6. apríl og óskað
eftir fundi til að fara yfir forsendur
málsins.
Ráðuneytið boðaði til fundar
22. ágúst, þar sem erindið var rætt
efnislega. Ekki kom fram eiginleg
lokaniðurstaða á þeim fundi.
Bændasamtök Íslands ítrekuðu
beiðnina í öðru erindi sent 4.
október. Í svari, sem barst 11.
október, kom fram að ráðuneytið
féllist ekki á beiðni um breytingar
á samningnum að svo stöddu,
en jafnframt vísað til þess að á
næsta ári fari fram endurskoðun á
sauðfjársamningi.
Fyrirhuguð breyting á
sauðfjársamningi 2023–2026
Bændasamtökin telja að þær
breytingar sem verða á tilfærslu
milli liða í samningnum á næstu
árum færi stuðning frá svæðum
sem njóta svæðisbundins stuðnings
og hafa minni tækifæri til annarra
tekjuöflunar. Þessi breyting vinnur
því gegn þeim lið samningsins
sem markvisst er ætlað að styðja
við byggð á viðkvæmum svæðum
landsins.
Yfirlit yfir þessa greiningu má
sjá í meðfylgjandi töflu.
Breytingar sem gerðar voru á
sauðfjársamningnum árið 2021
sköpuðu ákveðna sátt. Má þar
sérstaklega nefna innlausnarmarkað
með greiðslumark. Þar er tryggt
að þeir sem eiga hlutfallslega lítið
greiðslumark njóti forgangs við slík
kaup. Framkvæmd markaðarins
hefur styrkt vilja bænda til að halda
áfram að byggja sauðfjársamninginn
á greiðslumarki.
Það verður að segjast að það eru
talsverð vonbrigði ef niðurstaðan
verður sú að ekki verði farið að vilja
bænda og þar með rofin sú sögulegu
sátt sem um greiðslumarkið ríkir.
Við höfum trú á því að oft sé hægt
að skipta um skoðun að betur
ígrunduðu máli og skorum því á
matvælaráðherra að gera slíkt nú.
Trausti Hjálmarsson,
formaður deildar
sauðfjárbænda.
Trausti
Hjámarsson.
Íslenskur landbúnaður er mikilvægur fyrir
íslenskt samfélag. Við getum sem þjóð verið
stolt af því með hvaða hætti hefur tekist að
byggja upp blómlega atvinnugrein sem skilar
okkur heilnæmum og góðum afurðum.
Mikilvægt er að stjórnvöld
skapi þær aðstæður að
landbúnaður hafi frelsi til að
vaxa og dafna og geti tekist
á við þær breytingar sem
eru fram undan m.a. vegna
loftslagsbreytinga.
Ríkisstjórnin hefur sett
fram metnaðarfull markmið
í loftslagsmálum og um
kolefnishlutleysi sem fela
í sér miklar áskoranir en jafnframt ótrúleg
tækifæri. Verkefni okkar er að draga úr losun
um 1,3 milljónir tonna CO2 fyrir árið 2030
og því verður ekki náð án þátttöku bænda.
Landbúnaður er undirstaða lífsviðurværis og
atvinnu á dreifbýlissvæðum landsins og til
staðar eru tækifæri til öflugrar nýsköpunar og
til þess að vera í fararbroddi þegar kemur að
loftslagsvænum landbúnaði.
Við þurfum að leita leiða til að nýta íslenskar
auðlindir og þróa ferla til að framleiða sjálfbæran
áburð fyrir íslenskan landbúnað og landgræðslu.
Við þurfum efla hringrásarhugsun í landbúnaði og
ná fram betri nýtingu afurða líkt og tekist hefur í
sjávarútvegi. Með því að beisla skapandi hugsun
og horfa á virðiskeðjuna frá frumframleiðanda til
neytenda, getum við nýtt auðlindir betur, dregið
úr sóun, minnkað losun og skilað af okkur betra
landi til komandi kynslóða.
Umhverfis, orku og loftslagsráðuneytið
styrkir verkefnið Loftslagsvænn landbúnaður sem
hefur það að markmiði að bændur sem taka þátt
fái heildstæða ráðgjöf og fræðslu um það hvernig
draga megi úr losun gróðurhúsalofttegunda
frá landbúnaði og vegna landnýtingar. Losun
gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaði hefur
verið því sem næst óbreytt síðastliðna áratugi.
Verkefnið fram undan er að hreyfa við þessari
kyrrstöðu.
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur
fram að stjórnvöld í samráði við sveitarfélög
og atvinnulífið muni setja áfangaskipt
losunarmarkmið fyrir hvern geira atvinnulífsins.
Útfærsla á þessu verkefni er þegar hafin
í samstarfi við ákveðna geira. Það verður
spennandi að hefja þetta samtal við forystu
Bændasamtakanna í þeim tilgangi að setja niður
markmið og móta aðgerðaáætlun fyrir íslenskan
landbúnað í samstarfi við stjórnvöld, sem
endurspeglast mun í enn skýrari mælanlegum
markmiðum í aðgerðaáætlun í loftslagsmálum.
Guðlaugur Þór Þórðarson
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Blómlegur grænn landbúnaður
Guðlaugur Þór
Þórðarson.
Taflan hér að ofan sýnir greiningu Bændasamtaka Íslands á áhrifum þeirra breytinga sem verða á
sauðfjársamningnum milli áranna 2022 og 2023, annars vegar og hins vegar 2022 og 2026, eftir sýslum.
Útreikningar byggja í öllum tilvikum á grunni útdeilingar ársins 2022 en forsendum áranna 2023 og 2026.