Læknablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 45
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 573
Dögg Pálsdóttir
framkvæmdastjóri og lögfræðingur LÍ
doggp@lis.is
Trúnaðarmenn á
vinnustöðum lækna
L Ö G F R Æ Ð I 4 6 . P I S T I L L
Árið 2006 skipaði stjórn Læknafélags
Íslands (LÍ) nefnd sem falið var að meta
þörf á trúnaðarmönnum fyrir lækna og
koma með tillögur um framkvæmd. Í
nefndinni voru læknarnir Anna K. Jó
hannsdóttir, Sigurdís Haraldsdóttir, Sig
urður Albertsson og Sigurpáll S. Schev
ing. Niðurstaða nefndarinnar var að það
væri brýn þörf á því að koma á fót trúnað
armannakerfi fyrir lækna, enda reynsla af
slíku fyrirkomulagi góð, bæði á Norður
löndunum, þar sem læknar þekkja til, sem
og hjá öðrum stéttarfélögum. Nefndin
lagði til að LÍ beitti sér fyrir því að komið
yrði á fót trúnaðarmannakerfi hjá læknum
sem allra fyrst. Það mun hafa verið gert,
en það lognaðist út af fljótt aftur.
Stjórn LÍ hefur nú ákveðið, meðal
annars fyrir tilstuðlan Félags sjúkrahús
lækna (FSL) að endurvekja trúnaðarmenn
á vinnustöðum lækna. FSL hefur þegar
kallað eftir áhugasömum læknum til að
taka þetta hlutverk að sér. Stjórn LÍ gerir
sér vonir um að vel muni ganga að fá
lækna til að taka að sér að vera trúnað
armenn, enda um mikilvæg verkefni að
ræða sem skipta miklu fyrir félagsmenn.
Í V. kafla laga um kjarasamninga opin
berra starfsmanna nr. 94/1986 eru ákvæði
um trúnaðarmenn á vinnustöðum. Þar
kemur fram að trúnaðarmenn eru fulltrú
ar stéttarfélags á vinnustað. Þeir eru ýmist
kosnir af samstarfsfólki í sama stéttarfé
lagi eða tilnefndir af stéttarfélaginu sjálfu.
Hlutverk trúnaðarmanns er að vera
bæði tengiliður milli launagreiðanda og
samstarfsfólks í sama stéttarfélagi og
tengiliður launagreiðandans við stéttar
félagið.
Trúnaðarmenn njóta sérstakrar vernd
ar sem slíkir, sem meðal annars felst í því
að ekki má segja trúnaðarmanni upp fyrir
að sinna trúnaðarstörfum. Launagreið
andi má því ekki segja trúnaðarmanni
upp fyrir það að vekja athygli fyrir hönd
samstarfsfólks á óþægilegum málum eða
benda á kjarasamningsbrot fyrir hönd
stéttarfélags síns. Verndin nær hins vegar
ekki til þess ef trúnaðarmaðurinn brýtur
af sér í daglegum störfum eða vanrækir
starf sitt. Þá er hann í sömu stöðu og hver
annar starfsmaður þar. Félagsdómur hefur
fjallað um vernd trúnaðarmanna í starfi
og þannig hafa mótast ákveðnar reglur
varðandi vernd trúnaðarmanna fyrir
uppsögn.
Til að virkja þá vernd sem trúnað
armaður nýtur þarf hann að skila til
stéttarfélags síns þar til gerðu eyðublaði
um tilnefningu sína eða kosningu til að
hljóta staðfestingu sem trúnaðarmaður.
Ef hann gerir það ekki nýtur hann ekki
verndarinnar.
Stjórn og starfsmenn stéttarfélags eru
stuðningsaðilar trúnaðarmanns og eru
honum innan handar við að leysa úr þeim
erindum og álitamálum sem upp koma
á vinnustað og heyra undir starfssvið
stéttarfélagsins.
Ákvæði laga um kjarasamninga opin
berra starfsmanna, sem áður er vikið að,
tryggja að:
• Trúnaðarmaður á aldrei að gjalda þess að hafa
valist til trúnaðarstarfa.
• Það má ekki flytja trúnaðarmann í lægri
launaflokk meðan hann gegnir starfi trúnaðar-
manns.
• Trúnaðarmaður situr að öðru jöfnu fyrir um að
halda vinnunni ef hann er ráðinn ótímabund-
inni ráðningu.
• Trúnaðarmaður á rétt á því að rækja skyldur
sínar á vinnutíma. Þá á hann rétt á því að hafa
aðstöðu á vinnustað til að rækja skyldur og
hlutverk sitt.
• Trúnaðarmaður á rétt á upplýsingum ef staða
losnar á vinnustað hans.
• Trúnaðarmönnum hjá ríkisstofnunum, Reykja-
víkurborg og ýmsum sjálfseignarstofnunum er
einnig heimilt að sækja þing, fundi, ráðstefnur
og námskeið á vegum stéttarfélagsins í allt
að eina viku á ári án skerðingar á reglulegum
launum.
• Trúnaðarmenn sem kjörnir eru í samn-
inganefnd stéttarfélags síns fá leyfi til að
sinna því verkefni án skerðingar á reglulegum
launum. Trúnaðarmaður skal þó gæta þess að
tilkynna yfirmanni sínum um slíkar fjarvistir
með eðlilegum fyrirvara.
Helstu hlutverk trúnaðarmanna eru að:
• Taka við kvörtunum starfsmanna og vera
talsmaður þeirra gagnvart launagreiðanda.
Trúnaðarmaður skal gefa starfsmanni og
stéttarfélagi skýrslu um hvað launagreiðandi
er sakaður um að hafa brotið af sér, hver séu
viðbrögðin og hver séu málalok.
• Hafa eftirlit með því að launagreiðandi fari
eftir ákvæðum kjarasamnings og laga um
starfskjör og réttindi starfsmanna og grípa til
nauðsynlegra aðgerða ef þörf krefur.
• Vera fulltrúi stéttarfélagsins á vinnustað, sjá
um að koma boðum frá félagsmönnum til fé-
lagsins og frá félaginu til félagsmanna. Kynna
félagsmönnum stefnu stéttarfélagsins og verk-
efni eftir því sem við á.
• Trúnaðarmaður skal gæta þess að réttindi
starfsmanna séu virt, einkum er varðar orlof,
vinnuvernd, öryggi og hollustuhætti.
• Kynna þeim starfsmönnum, sem eftir því leita,
starfskjör og réttindi og kynna þeim stéttarfé-
lagið og starfsemi þess.
Lagaákvæði um trúnaðarmenn eru al
mennt orðuð og því hafa ýmis stéttarfé
lög, svo sem BHM, gert sérsamninga við
ríkið um útfærslu einstakra atriða. Þar er
sérstaklega kveðið á um að stjórnarmenn
stéttarfélaga og samningarnefndarmenn
stéttarfélaga teljist sem trúnaðarmenn.
Líklega er skynsamlegt fyrir lækna
að gera einnig samkomulag við ríkið og
aðra vinnustaði sem tæki nánar á óljósum
atriðum. Auk þess ætti að gera trúnað
armönnum kleift að sækja námskeið á
vegum stéttarfélagsins og þannig hefði LÍ
tækifæri til að fræða sína trúnaðarmenn
um kjarasamninga og fleiri atriði sem ætl
ast er til að þeir kunni skil á.
LÍ væntir mikils af endurreisn trúnað
armannakerfis fyrir lækna og mun upp
lýsa félagsmenn um þetta mál eins og því
vindur fram.