Læknablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 4
532 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
539
Björn Vilhelm Ólafsson, Hjalti Már Björnsson
Flugeldaslys á höfuðborgarsvæðinu 2010-2022.
Frá bráðamóttöku Landspítala
Á rannsóknartímabilinu lögðust 22 inn eftir flugeldaslys og lágu í samtals 91 dag, frá
einum degi upp í 33 daga hver. Á tímabilinu undirgengust 19 manns skurðaðgerð vegna
áverkanna. Algengustu meðferðirnar voru: umbúðir, verkjastilling, sýklalyf, kæling, deyf-
ing og saumun sára. Lyf voru gefin minnst 170 einstaklingum, þar af 6 sem voru bólu-
settir gegn stífkrampa.
547
Davíð Þór Jónsson, Ólöf Birna Ólafsdóttir, María Soffía Gottfreðsdóttir
Sjónsviðsskerðing við fyrstu MIGS-glákuaðgerð
Gláka er blinduvaldandi sjúkdómur sem veldur hægfara, óafturkræfri skemmd á sjón-
taug með þeim afleiðingum að sjónsvið skerðist. Um miðja síðustu öld var gláka algeng-
asta orsök blindu á Íslandi en blindutíðni hefur lækkað verulega vegna framfara í grein-
ingu og meðferð.
Einstaklingar með gláku eru yfirleitt einkennalausir í fyrstu þrátt fyrir að vera með
hækkaðan augnþrýsting, breytingu á sjóntaug við skoðun eða sjónsviðsskerðingu á mæl-
ingum. Sterkustu áhættuþættir gláku eru hækkaður augnþrýstingur og aldur.
553
Ásbjörg Snorradóttir, Ástríður Pálsdóttir, Hákon Hákonarson
Veitti mataræði fyrr á öldum vernd gegn arfgengri heilablæðingu í
arfberum cystatin L68Q stökkbreytingarinnar?
Fæðuvenjur þjóðarinnar breyttust gríðarlega á 19. öld. Í heild má segja að aðalfæði fólks
hafi verið harðfiskur (skreið), súrt smjör og aðrar mjólkurafurðir, aðallega skyr og mysa.
Sé leiðrétt fyrir fólksfjölda sést að sykurinnflutningur, sem væntanlega endurspeglar
innanlandsneyslu, 50-faldaðist frá 1840 til 1940. Í kringum 1840 var innflutningur á sykri/
sírópi 900 g á mann á ári en var orðinn 50 kg í lok tímabilsins. Á 19. öld jókst innflutning-
ur kolvetnaríkrar fæðu. Innflutningur á korni þrefaldaðist milli 1840 og 1940 og fólk tók
að rækta kartöflur og kál.
F R Æ Ð I G R E I N A R
12. tölublað · 108. árgangur · 2022
535
Guðrún Þuríður Höskuldsdóttir
Gagnreynd vinnubrögð
við meðferð offitu
frekar en viðteknar
venjur
Meðferð við offitu byggir á
áhuga einstaklingsins og
samtal um offitumeðferð
skal hefja með því að fá leyfi
skjólstæðingsins til að ræða
þyngdina. Ef áhugi er ekki til
staðar er ekki viðeigandi að
halda áfram að ræða með-
ferðarmöguleika eða hvetja
til lífsstílsbreytinga.
L E I Ð A R A R
537
Gunnar Már Zoëga
Augnslys af völdum
flugelda
Hérlendis er nauðsynlegt að
tryggja fjármögnun björg-
unarsveita og íþróttafélaga
með öðrum hætti. Það ætti
að vera skylda að jafnt skot-
menn sem áhorfendur noti
hlífðargleraugu, leyfilegan
skottíma ætti að stytta og
börnum ætti ekki að vera
heimilt að kaupa flugelda.
Flugeldur er bæði fallegt orð og tilkomumikill og æsilegur að sjá. Orðið á sér ekki hliðstæðu í skyld-
um málum þar sem talað er um fireworks, rakete, feuerwerk, fuegos artificiales. Orðið er eldra en
Jónas Hallgrímsson (1807) og því ekki hluti af hans stóra nýyrðasafni sem rætt er um í blaðinu.
Í grein og leiðara þessa tölublaðs er fjallað um skuggahliðar flugelda og afleiðingar slysa sem þeir
geta valdið. Mælst er til þess að sett verði höft á sölu og innflutning.
Myndina á kápu og myndina hér að ofan tók Árni Sæberg ljósmyndari.
Á FORSÍÐU
Flugeldur