Læknablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 36
564 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
V I Ð T A L
unarfræðingum sem hér starfa. Þetta er
neyðarástand og þá þarf að bregðast við.
Það má ekki telja ástandið eðlilegt,“ segir
hann. „Það má ekki segja að þetta reddist
einhvern veginn á íslenskan hátt án inn
gripa.“
Bjarni segir átak í gangi þar sem býðst
auka skurðstofupláss á fimmtudögum.
„En ég held að það sé ekki hægt að leysa
vandann með átaki. Það þarf að marka
stefnu, breyta áherslum og flytja aðgerðir
út fyrir spítalann.“ Þau eru öll sammála
um það.
Katrín segir annan vanda einnig blasa
við, mjög ólíkan þeim sem hún bjó við
ytra. „Ég er að störfum á skurðstofu og
klukkan orðin tvö. Kannski lítið eftir,
til dæmis skipulögð aðgerð sem tekur
kannski korter. Þá fæ ég ekki að halda
áfram þótt aðgerðin væri væntanlega búin
fyrir þrjú,“ segir hún, því fólk þurfi að
hafa lokið störfum sínum þegar skurðstof
unum sé lokað klukkan fjögur.
„Hér þyrfti að vera að vera meiri
sveigjanleiki í skurðstofutíma, til dæmis
væri hægt að vinna til klukkan 6 og skipta
þá vinnudeginum upp í fyrri og seinni
vakt. Þorsteinn segir meiri sveigjanleika
hjá sér í Fossvogi.
En finnst þeim þau þá ekki hafa stjórn
á aðstæðum sem þau bera einhverja
ábyrgð á? „Við berum endanlega ábyrgð á
sjúklingunum. Það er enginn vafi á því,“
segir Þorsteinn. „En ég upplifi að við
skurðlæknar séum stundum eins og gestir
á skurðstofunum.“
Þau eru sammála um að staða krabba
meinssjúkra sé viðunandi. Katrín er með
30 á biðlista sínum. Þorsteinn um 70. „En
allt góðkynja bíður og bíður,“ segir Bjarni
sem er eins og fyrr sagði með 115 sjúk
linga á sínum lista.
Átthagarnir toga
Þau horfa yfir fundarborðið, á hvert ann
að. „Verður ekki að segja eitthvað jákvætt
hér?“ Hlæja. Blaðamaður kastar þá fram
úr fyrra viðtali við Helgu Tryggvadóttur
krabbameinslækni, Katrínu Þórarins
dóttur gigtarlækni og Hildi Jónsdóttur
almennan lyflækni og spítalista að
ákvörðunin um að koma heim eftir sér
nám sé stærri en Landspítali.
„Já, það er þannig,“ samsinna þau þrjú.
Katrín segir margt gott við að koma heim.
„Það er auðvelt að hringja í vini til
að fá álit. Ef þú þekkir ekki viðkomandi
muntu kynnast þeim. Nándin er mikil og
margt jákvætt við íslensku leiðina, þar
sem allir þekkja alla,“ segir hún. „Það
kemur enginn heim fyrir framann. Það er
almennt ekki þannig.“ Þorsteinn grípur
orðið.
„Átthagafjötrar halda þessum spítala
gangandi,“ segir Þorsteinn og hlær. Bjarni
segir alls ekki hægt að segja að þau hafi
verið plötuð heim. „Við höfum öll unnið
hérna í fleiri ár og vissum nákvæmlega að
hverju við gengjum. Við þekkjum þetta
starfsumhverfi og komum aftur til baka í
það. Það er því eitthvað gott í því.“
Þorsteinn segir að gott hafi verið að
hitta gamla kollega að nýju. Vinnumórall
inn sé góður. Bjarni segir að honum hafi
liðið eins og hann hefði aldrei farið út,
þótt hann hafi verið þar í lengri tíma.
„Maður dettur inn í umhverfið vand
kvæðalaust.“
Katrín slær loka tóninn. „Ég myndi
ekki vilja vera annars staðar í heiminum.
Það er algerlega mitt val að vera hér. Þetta
er óskastarfið mitt.“
Hvers virði er þinn frítími?
Reglubundin 16.641 kr.
á mánuðiSkoðaðu málið á heimilisthrif.is
þrif frá
Traust þjónusta í 9 ár