Læknablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 41
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 569
vísbending um svefnvanda og því þarf að
rannsaka og greina svefninn.“
Hann segir að öllum steinum hafi verið
velt við þegar kemur að greiningum og
meðferð á svefnvanda hér á landi síðustu
tvö ár. „Við höfum 40 virk verkefni í gangi
þessa dagana.“ Hann bendir á útkrotaða
töflu við hlið sér. „Það eru spennandi
tímar í svefnrannsóknum framundan hér
á landi.“ Um 810 vikur taki að koma 1000
vélunum út þegar þær komi til landsins.
Loftslagsflóttamaður
Cunningham hefur verið yfirlæknir á
Landspítala frá því í apríl í fyrra. Hann er
ástralskur en kýs kuldann á Fróni umfram
hitann down under. Hann hefur tvívegis
verið hér á landi í lengri tíma. Fyrst á
árunum 20182019 og aftur frá september
mánuði 2020. Hann hafði þá lokið sérhæf
ingu sinni og starfssamningi og langaði að
ferðast.
„Samstarfsfélagi hafði þá verið á ráð
stefnu í Prag og kom með bækling á spít
alann þar sem sjá mátti mynd af Gullfossi
böðuðum regnboga. Auglýst var eftir
sleep physician. Ég sótti um og hitti fyrir
tilviljun forvera minn Þórarin Gíslason í
heimsókn á sjúkrahúsinu þar sem ég vann
þennan sama dag og ég sendi umsóknina
inn. Svo allt púslaðist rétt saman,“ segir
hann.
„Allt voru þetta tilviljanir sem ég tók
sem skýru merki og vann hér í 18 mánuði
með Þórarni áður en ég sneri aftur heim.“
Ali Rez Matin, starfsmaður deildarinnar síðustu 5 ár, Erla Sigurjónsdóttir, Sakina Dastagir á sínum síðasta degi sem svefnvísindamaður eftir ár
í starfi á leið til Bretlands, Kristján Dereksson, Sif Hansdóttir, Fjóla Huld Sigurðardóttir og Cunningham. Mynd/gag
„Tíu þúsund sjúklingar eru á
skrá hjá svefnrannsóknardeild
Landspítala.
Þórarinn hafi svo hnippt í hann ári síð
ar, þá að hætta, og Runólfur Pálsson, nú
forstjóri, haft við hann samband. „Hann
bauð mér að taka við sem yfirlæknir og
allt féll í réttan farveg og ég er kominn
hingað og verð um ófyrirséða framtíð.
Fastur með húsnæðislán og kött,“ segir
Jordan og brosir.
En af hverju að velja kulda þegar hægt
er að fá hlýju. „Ástralía er einfaldlega
of heit,“ segir hann. „Ég er því loftslags
flóttamaður,“ segir hann og brosir áður
en hann heldur áfram. „Hér eru svo mikil
tækifæri og geta til að koma góðu til leið
ar. Svefnrannsóknir eru rótgróin grein í
Ástralíu. Svefnlækningar hafa þar verið
formleg sérgrein frá 10. áratugnum. Hefði
ég ákveðið að vera þar hefði allt verið í
föstum skorðum. Strúktúrinn sterkbyggð
ur. Hér get ég hins vegar mótað starfið og
því meiri möguleikar á að gera breytingar
og þróa áfram en eru í rótgróinni starfs
stöð,“ segir hann. Hér sé staðan önnur.
„Við höfum mótað starfið hér á landi
frá AÖ síðustu tvö ár,“ segir hann.
„Höfum horft til greininga, meðferðar og
samþætt greiningarferlið þvert á landið.
Við vinnum nú að því að takast á við
mikið klínískt vinnuálag.“ Hann segir
ekki skemma fyrir að Ísland sé gullfallegt
land sem margir elski. „Og mér líkar við
Íslendinga. Frábær staður til að vera á
og mjög gott að vinna með þeim,“ segir
hann.
Vildi leysa flókinn vanda
En hvers vegna varð Jordan Cunningham
læknir? „Sambland af flóknum vísindum
og mannlegu hliðinni, samskiptum og
tengslum, að geta leyst flókinn vanda á
máta sem skiptir fólk máli. Það er mjög
gefandi.“ Eftirsóknarvert sé að skilja áhrif
flókins samspils hlutanna.
Cunningham bjó í Perth í tvö ár áður
en hann kom til Íslands en er alinn upp á
sólríkri strönd, Sunshine Coast, á austur
strönd Ástralíu. „Ég er því upprunalega
Queenslander,“ segir hann og lýsir því
nánar að hann hafi alist upp í tveggja
tíma fjarlægð norður af Brisbane þar sem
hann bjó einnig í nokkur ár, svo í Cairns
við frægu kóralrifin. Hann varði einnig
nokkrum árum í Canberra og Melbourne.
„Ég hef því búið á flestum helstu stöð
um Ástralíu,“ segir hann. Það hafi verið
stærra stökk að koma til Íslands en fljúga
landshorna á milli í þessu stóra landi,
Ástralíu. „En það eru þó sterk tengsl milli
vesturstrandar Ástralíu og Íslands,“ segir
hann og vísar til búferlaflutninga Ís
lendinga niður eftir á 7. áratugnum.
„Það eru mikil líkindi í menningu og
húmor. Íbúar beggja landa búa við erfiða
náttúru, voru nýlenduþjóðir sem gerir það
auðveldara fyrir mig að ná fótfestu hér.“