Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.12.2022, Side 41

Læknablaðið - 01.12.2022, Side 41
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 569 vísbending um svefnvanda og því þarf að rannsaka og greina svefninn.“ Hann segir að öllum steinum hafi verið velt við þegar kemur að greiningum og meðferð á svefnvanda hér á landi síðustu tvö ár. „Við höfum 40 virk verkefni í gangi þessa dagana.“ Hann bendir á útkrotaða töflu við hlið sér. „Það eru spennandi tímar í svefnrannsóknum framundan hér á landi.“ Um 8­10 vikur taki að koma 1000 vélunum út þegar þær komi til landsins. Loftslagsflóttamaður Cunningham hefur verið yfirlæknir á Landspítala frá því í apríl í fyrra. Hann er ástralskur en kýs kuldann á Fróni umfram hitann down under. Hann hefur tvívegis verið hér á landi í lengri tíma. Fyrst á árunum 2018­2019 og aftur frá september­ mánuði 2020. Hann hafði þá lokið sérhæf­ ingu sinni og starfssamningi og langaði að ferðast. „Samstarfsfélagi hafði þá verið á ráð­ stefnu í Prag og kom með bækling á spít­ alann þar sem sjá mátti mynd af Gullfossi böðuðum regnboga. Auglýst var eftir sleep physician. Ég sótti um og hitti fyrir tilviljun forvera minn Þórarin Gíslason í heimsókn á sjúkrahúsinu þar sem ég vann þennan sama dag og ég sendi umsóknina inn. Svo allt púslaðist rétt saman,“ segir hann. „Allt voru þetta tilviljanir sem ég tók sem skýru merki og vann hér í 18 mánuði með Þórarni áður en ég sneri aftur heim.“ Ali Rez Matin, starfsmaður deildarinnar síðustu 5 ár, Erla Sigurjónsdóttir, Sakina Dastagir á sínum síðasta degi sem svefnvísindamaður eftir ár í starfi á leið til Bretlands, Kristján Dereksson, Sif Hansdóttir, Fjóla Huld Sigurðardóttir og Cunningham. Mynd/gag „Tíu þúsund sjúklingar eru á skrá hjá svefnrannsóknardeild Landspítala. Þórarinn hafi svo hnippt í hann ári síð­ ar, þá að hætta, og Runólfur Pálsson, nú forstjóri, haft við hann samband. „Hann bauð mér að taka við sem yfirlæknir og allt féll í réttan farveg og ég er kominn hingað og verð um ófyrirséða framtíð. Fastur með húsnæðislán og kött,“ segir Jordan og brosir. En af hverju að velja kulda þegar hægt er að fá hlýju. „Ástralía er einfaldlega of heit,“ segir hann. „Ég er því loftslags­ flóttamaður,“ segir hann og brosir áður en hann heldur áfram. „Hér eru svo mikil tækifæri og geta til að koma góðu til leið­ ar. Svefnrannsóknir eru rótgróin grein í Ástralíu. Svefnlækningar hafa þar verið formleg sérgrein frá 10. áratugnum. Hefði ég ákveðið að vera þar hefði allt verið í föstum skorðum. Strúktúrinn sterkbyggð­ ur. Hér get ég hins vegar mótað starfið og því meiri möguleikar á að gera breytingar og þróa áfram en eru í rótgróinni starfs­ stöð,“ segir hann. Hér sé staðan önnur. „Við höfum mótað starfið hér á landi frá A­Ö síðustu tvö ár,“ segir hann. „Höfum horft til greininga, meðferðar og samþætt greiningarferlið þvert á landið. Við vinnum nú að því að takast á við mikið klínískt vinnuálag.“ Hann segir ekki skemma fyrir að Ísland sé gullfallegt land sem margir elski. „Og mér líkar við Íslendinga. Frábær staður til að vera á og mjög gott að vinna með þeim,“ segir hann. Vildi leysa flókinn vanda En hvers vegna varð Jordan Cunningham læknir? „Sambland af flóknum vísindum og mannlegu hliðinni, samskiptum og tengslum, að geta leyst flókinn vanda á máta sem skiptir fólk máli. Það er mjög gefandi.“ Eftirsóknarvert sé að skilja áhrif flókins samspils hlutanna. Cunningham bjó í Perth í tvö ár áður en hann kom til Íslands en er alinn upp á sólríkri strönd, Sunshine Coast, á austur­ strönd Ástralíu. „Ég er því upprunalega Queenslander,“ segir hann og lýsir því nánar að hann hafi alist upp í tveggja tíma fjarlægð norður af Brisbane þar sem hann bjó einnig í nokkur ár, svo í Cairns við frægu kóralrifin. Hann varði einnig nokkrum árum í Canberra og Melbourne. „Ég hef því búið á flestum helstu stöð­ um Ástralíu,“ segir hann. Það hafi verið stærra stökk að koma til Íslands en fljúga landshorna á milli í þessu stóra landi, Ástralíu. „En það eru þó sterk tengsl milli vesturstrandar Ástralíu og Íslands,“ segir hann og vísar til búferlaflutninga Ís­ lendinga niður eftir á 7. áratugnum. „Það eru mikil líkindi í menningu og húmor. Íbúar beggja landa búa við erfiða náttúru, voru nýlenduþjóðir sem gerir það auðveldara fyrir mig að ná fótfestu hér.“

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.