Fréttablaðið - 10.03.2023, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 10.03.2023, Blaðsíða 1
| f r e t t a b l a d i d . i s | FRÍTT 2 0 2 3 HALLDÓR | | 10 PONDUS | | 18 Sigurvíma í guðsvoluðu landi 4 9 . T Ö L U B L A Ð | 2 3 . Á R G A N G U R | ÍÞRÓTTIR | | 22 LÍFIÐ | | 22 LÍFIÐ| | 20 MENNING | | 19 Óskar kveikti á 32 ára GameBoy F Ö S T U D A G U R 1 0 . M A R S| Virðist hafa verið greitt á grunni samnings við lögfræðistofu Steinars Þórs Guðgeirssonar sem stofan braut gegn. Þetta er ekki lið Knattspyrna og karlmennska T Ö G G U R borgarleikhus.is Tryggðu þér miðaMátulegir Sviðsútgáfa af kvikmyndinni Druk Fjármálaráðuneytið virðist hafa greitt reikninga fyrir tíu þúsund klukkustunda vinnu án þess að fá tímaskýrslur. Reglur um útboð vegna opin- berra innkaupa virðast einnig hafa verið brotnar. olafur@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA Fjármálaráðuneytið hefur frá árinu 2016 greitt Íslögum, lögfræðistofu Steinars Þórs Guð- geirssonar, meira en 181 milljón króna, auk virðisaukaskatts, sam- tals 225 milljónir króna, fyrir ýmsa lögfræðiþjónustu án þess að tíma- skýrslur hafi verið lagðar fram fyrir þeirri vinnu sem rukkað var fyrir. Var þessi vinna meðal annars vegna Lindarhvols. Taxtinn sem Steinar Þór rukkaði eftir var 18 þúsund krónur á klukku- stund, auk virðisaukaskatts, þannig að greitt hefur verið fyrir 10 þúsund vinnustundir án þess að tímaskýrsl- ur hafi fylgt reikningum. Skýrt er kveðið á um í samningum milli ráðuneytisins og Íslaga að tíma- skýrslur skuli fylgja reikningum. Þannig ber ekki á öðru en að fjár- málaráðuneytið hafi ítrekað greitt háar fjárhæðir til Íslaga á grundvelli samnings sem Íslög þverbrutu. Enn fremur kemur skýrt fram í lögum um opinber innkaup að öll innkaup opinberra aðila yfir 15,5 milljónum (á verðlagi 2016) skuli bjóða út. Það var ekki gert. Fram hefur komið að skiptar skoðanir eru um gæði þeirrar vinnu sem ráðu- neytið greiddi fyrir. n Engar tímaskýrslur bak við tíu þúsund tíma reikninga Ráðherrarnir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson voru með gesta á Iðnþingi Samtaka iðnaðarins í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK gar@frettabladid.is ALÞINGI „Við erum á rauðu ljósi hvað varðar starfsumhverfi fjölmiðla,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir, menning- ar- og viðskiptaráðherra, á Alþingi í gær í umræðu um fjölmiðlafrelsi. S a g ð i L i l j a t e k j u m ó d e l íslenskra fjölmiðla hreinlega ekki ganga  upp.  „Okkur ber skylda til þess að stuðla að því að starfsum- hverfi fjölmiðla hér á Íslandi verði sjálfbært,“ sagði ráðherra. „Það er alveg ljóst að frjálsir fjöl- miðlar eru forsenda lýðræðislegrar umræðu og veita stjórnvöldum, atvinnulífi og helstu stofnunum atvinnulífsins nauðsynlegt aðhald,“ sagði Lilja. „Við stefnum að því að umhverfi íslenskra fjölmiðla verði svipað og kollega okkar á Norður- löndunum. Það er mjög mikilvægt að það takist á þessu kjörtímabili að búa þannig um hnútana.“ n Fjölmiðlar sagðir vera á rauðu ljósi

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.