Fréttablaðið - 10.03.2023, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 10.03.2023, Blaðsíða 32
frettabladid.is 550 5000 RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN & DREIFING Torg ehf. 2022 - 2025 BAKÞANKAR | Odds Ævars Gunnarssonar Sjálfsmynd mín hvílir meðal ann- ars á þeim stoðum að ég sé góður og löghlýðinn þannig að siðferði hefur alltaf verið mér ákaflega mikilvægt. Svo mjög að þegar ég spila tölvuleiki þar sem gefinn er kostur á að vera illur, eða taka siðlausar ákvarðanir, þá sleppi ég því. Ég fæ því eðlilega sjaldan samviskubit eða skömm- ustutilfinningu. Nema núna, eftir að hafa framið rán í Bónusverslun í fyrradag. Ég var nýkominn úr drykk með vinnufé- lögum, með tvo í blóðinu og hlað- varp í eyrunum, þegar ég mundi að það vantaði klósettpappír á heim- ilið. Sannkallaða nauðsynjavöru. Þannig að ég dreif mig í Bónus. Ákaf lega annars hugar vafraði ég um verslunina, náði í klósett- pappírinn og þrennt til viðbótar og fór svo að sjálfsögðu beint á sjálfsaf- greiðslukassann. Samræðurnar í hlaðvarpinu voru sérlega merkilegar þannig að hugur minn var við allt annað en sjálfsaf- greiðsluna. Vöðvaminnið tók stjórnina og ég borgaði, að ég hélt, setti vörurnar í pokann og rölti út. Þá tek ég eftir því að það er aðvör- un á pokasvæðinu! „Haha, heimski kassi, ég er búinn að taka vörurnar mínar,“ hugsa ég áður en ég rölti út. Svo held ég áfram að hlusta á sam- ræður um hörmungar helgarinnar í enska boltanum í svona tíu mínútur áður en það fara að renna á mig tvær grímur. Borgaði ég? Guð minn góður! Rúllaði yfir Apple Pay. Ekkert. Maður minn. Ég er þjófur og búið að loka Bónus! Ég sendi þeim strax póst, verandi af þúsaldarkynslóðinni, og grátbað um fyrirgefningu og tækifæri til að leiðrétta þetta. Engin svör hafa enn borist en vonandi léttist þrúgandi samviskubitið eftir þessa játningu mína fyrir alþjóð. n Ég er (ekki) þjófur Fyrir fólk í leit af nýjum tækifærum borgarleikhus.is Miðasala: 568 8000 Níu líf í þrjú ár! Nú eru liðin þrjú ár síðan söngleikurinn Níu líf var frumsýndur og hafa hátt í 90 þúsund áhorfendur séð sýninguna. Við þökkum ykkur, kæru gestir, fyrir áhugann. Svona veisla væri ekkert án ykkar. Sjáumst í Borgarleikhúsinu!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.