Fréttablaðið - 10.03.2023, Blaðsíða 32
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN & DREIFING
Torg ehf.
2022 - 2025
BAKÞANKAR |
Odds Ævars
Gunnarssonar
Sjálfsmynd mín hvílir meðal ann-
ars á þeim stoðum að ég sé góður og
löghlýðinn þannig að siðferði hefur
alltaf verið mér ákaflega mikilvægt.
Svo mjög að þegar ég spila tölvuleiki
þar sem gefinn er kostur á að vera
illur, eða taka siðlausar ákvarðanir,
þá sleppi ég því. Ég fæ því eðlilega
sjaldan samviskubit eða skömm-
ustutilfinningu.
Nema núna, eftir að hafa framið
rán í Bónusverslun í fyrradag. Ég var
nýkominn úr drykk með vinnufé-
lögum, með tvo í blóðinu og hlað-
varp í eyrunum, þegar ég mundi að
það vantaði klósettpappír á heim-
ilið. Sannkallaða nauðsynjavöru.
Þannig að ég dreif mig í Bónus.
Ákaf lega annars hugar vafraði
ég um verslunina, náði í klósett-
pappírinn og þrennt til viðbótar og
fór svo að sjálfsögðu beint á sjálfsaf-
greiðslukassann.
Samræðurnar í hlaðvarpinu voru
sérlega merkilegar þannig að hugur
minn var við allt annað en sjálfsaf-
greiðsluna. Vöðvaminnið tók
stjórnina og ég borgaði, að ég hélt,
setti vörurnar í pokann og rölti út.
Þá tek ég eftir því að það er aðvör-
un á pokasvæðinu! „Haha, heimski
kassi, ég er búinn að taka vörurnar
mínar,“ hugsa ég áður en ég rölti út.
Svo held ég áfram að hlusta á sam-
ræður um hörmungar helgarinnar í
enska boltanum í svona tíu mínútur
áður en það fara að renna á mig tvær
grímur. Borgaði ég?
Guð minn góður! Rúllaði yfir
Apple Pay. Ekkert. Maður minn. Ég
er þjófur og búið að loka Bónus! Ég
sendi þeim strax póst, verandi af
þúsaldarkynslóðinni, og grátbað
um fyrirgefningu og tækifæri til að
leiðrétta þetta. Engin svör hafa enn
borist en vonandi léttist þrúgandi
samviskubitið eftir þessa játningu
mína fyrir alþjóð. n
Ég er (ekki) þjófur
Fyrir fólk í leit af
nýjum tækifærum
borgarleikhus.is Miðasala: 568 8000
Níu líf
í þrjú ár!
Nú eru liðin þrjú ár síðan söngleikurinn
Níu líf var frumsýndur og hafa hátt í
90 þúsund áhorfendur séð sýninguna.
Við þökkum ykkur, kæru gestir, fyrir
áhugann. Svona veisla væri ekkert
án ykkar.
Sjáumst í Borgarleikhúsinu!