Fréttablaðið - 10.03.2023, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 10.03.2023, Blaðsíða 16
Mér fannst alltaf gaman að mála þegar ég var krakki en sá aldrei fyrir mér að ég gæti starfað við að mála og teikna. Gabriela Fuente Mynsturhönnuðurinn Gabriela Fuente flutti til Íslands fyrir átta árum fyrir ástina. Hún hefur hannað fyrir stærstu tískumerki heims og segist spennt fyrir möguleikum tækninnar þegar kemur að framtíð tískuiðnaðarins. jme@frettabladid.is Gabriela Fuente er búsett hér á landi og með vinnustofu í Kópavoginum. Ferillinn hófst í fatahönnunarbransanum þar sem hún vann við vöruþróun hjá skrifstofum Adidas sem sáu um framleiðslu í Mið- og Suður- Ameríku og Mexíkó. „Ég fann að ég naut þessa kima tískunnar ekki jafnmikið og ég hélt að ég myndi gera. Og eftir tvær annir af sömu hönnunarflokkunum: líkamsrækt, körfubolta, rúgbý og fótbolta, sá ég að starfið var ekki jafnskapandi og ég hefði viljað. Þegar ég horfði á mynstrin í f líkunum ímyndaði ég mér að það gæti verið spennandi að vera manneskjan á bak við mynstrin,“ segir Gabriela. „Ég flutti því til London, tók nokkra kúrsa í Central Saint Martins og uppgötvaði ástríðu mína fyrir mynsturgerð,“ segir hún. Eftir það tók hún að sér starfs- nemastöður hjá mynsturhönn- unarhúsum í London, Frakklandi og Danmörku. „Ég gerði mér engan veginn grein fyrir því að þetta yrði minn starfsferill þegar ég var í BA í fatahönnun,“ segir hún. „Mér fannst alltaf gaman að mála þegar ég var krakki en sá aldrei fyrir mér að ég gæti starfað við að mála og teikna.“ Flutti til Íslands fyrir ástina Gabriela kemur frá São Paulo í Brasilíu og hefur búið í Fukui í Japan, London, Belgíu, Kaup- mannahöfn, San Francisco og Barcelona. Nú hefur hún búið á Íslandi í átta ár og segist hafa flutt hingað fyrir ástina. „Ég kynntist þessum náunga, Finni, á netinu og okkur kom svona líka vel saman. Satt að segja bjóst ég aldrei við að finna ástina á þennan hátt en viti menn. Hér er ég og gæti ekki verið hamingjusamari. Við Finnur höfum verið saman í tíu ár og ég er þakklát fyrir hvern dag sem ég fæ að búa í þessu fallega landi með ástina mér við hlið.“ Hún segir veruna hér á landi hafa haft mikil áhrif á sig. „Einstakt landslagið, birtan og veðrið hefur haft óút- reiknanleg áhrif á sköpun mína.“ Fann ástina á Íslandi og ástríðuna í mynsturgerð Gabríela fann ástríðuna í mynsturgerð eftir að hafa starfað hjá Adidas við fatahönnun. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Þetta flotta mynstur hannaði Gabriela fyrir ástralska tískufatamerkið Husk. MYNDIR/AÐSENDAR Gabriela er hrifin af afstrakt mynstri í íþróttafatnaði. Hér er mynstrið hennar notað á topp frá Panache. Gabriela hefur alltaf málað og teiknað og getur svalað þeim þorsta í mynstursköpuninni. Eitt fyrsta skrefið í mynsturhönnun Gabrielu er að gera rannsóknir á mótífinu. Stærðin skiptir máli „Ég fæ innblástur úr ýmsum áttum, náttúrunni, myndlist og menn- ingunni. Ég hef unun af því að ferðast og fá hugmyndir frá ólíkum stöðum sem ég heimsæki. Ég skoða líka hvað er vinsælt og vil hafa puttann á púlsinum á því sem er að gerast í bransanum. Ég nýt þess að vinna með ólík mótíf og sérstak- lega blóm og afstrakt form. Þessi mótíf eru gefa mikið svigrúm og má nota í alls konar vörur, allt frá flíkum til húsgagna, veggfóðurs, innpökkunarpappírs og fleira. Þegar ég hanna mynstur byrja ég á því að skoða viðmiðunarefni og hvað er vinsælt. Þannig fæ ég litapallettuna og formin fyrir hönnunina. Næst fer ég að mála og teikna. Svo skanna ég myndirnar og bý til endurtekið mynstur úr þeim í mynsturhönnunarforriti. Þegar kemur að því að hanna fyrir líkama þarf mynstrið að gera hönnunina áhrifaríkari og fara líkamanum vel. Skali og form skipta lykilmáli svo að þú endir ekki með ólesanlega mynd á ákveðnum hlutum líkamans. Það er sérlega vandasamt á klof- svæðinu. Sundfötin eru sérstak- lega varhugaverð og maður þarf að vita að það er enginn annar en þú að hugsa út í þetta á framleiðslu- ferlinu. Oftast er þá öruggast að hafa mynstrið í mjög stórum skala eða mjög litlum,“ segir hún. Hannar fyrir stór tískuhús „Ég á stórt safn af ólíkum mynstrum sem mínir kúnnar geta mátað við sína hönnun en ég vinn líka með viðskiptavinum við að hanna mynstur sem henta þeirra hönnun fullkomlega. Ef ég er að hanna mynstur sérstaklega fyrir kúnna þá gerum við það í sam- starfi því ég vil skilja þeirra sýn og markmið svo ég geti skapað við- eigandi mynstur. Góð samskipti og samvinna eru lykillinn að vel heppnaðri hönnun.“ Gabriela hefur hannað fyrir nokkra af stærstu hönn- uðum heims. „Ég var verktaki hjá FUSIONCPH í Danmörku í níu ár og þegar ég byrjaði ferilinn tók ég að mér reynslustörf fyrir Amanda Kelly, Patterns og önnur mynst- urstúdíó. Enn hef ég ekki unnið fyrir nein íslensk merki,“ segir hún. Hvernig mynstur eru í tísku? „Tískumynstrin sem ég hanna ráð- ast út frá því fyrir hvaða markað þau eru en ég vinn ýmist með lúxus-, íþrótta- og hraðtískumerkj- um í Bretlandi, Ástralíu, Banda- ríkjunum, Þýskalandi, Svíþjóð, Hollandi og víðar. Hjá skandinav- íska markaðnum í hraðtískunni verða blómamynstur, afstrakt og dýramynstur með vatnslita- og tie-dye útliti mjög vinsæl sem og klassísk blómamynstur. Sjálf elska ég sumarkjóla með blómamynstri og afstrakt mynstur fyrir ræktina.“ Möguleikar stafræns veruleika Upp á síðkastið hefur Gabriela verið að kanna möguleika sýndar- veruleika í mynsturhönnun. „Ég hef leitað leiða til að leyfa við- skiptavinum mínum að upplifa mynstrin mín á sinni eigin hönnun á netinu. Tæknilegi parturinn er enn í vinnslu en hugmyndin er að bjóða upp á leið fyrir neytendur til að hanna stafrænar flíkur með notkun filtera. Núna er þetta bara í boði fyrir mína viðskiptavini.“ Metaverse er stafrænn veruleiki þar sem fólk getur átt samskipti hvert við annað í rauntíma. „Þetta svæði býður upp á einstakt tæki- færi til að sýna og upplifa tísku á alveg nýjan hátt. Með því að hanna fyrir stafrænar flíkur get ég boðið upp á nýja leið fyrir viðskiptavini til að upplifa sköpun mína. Það er hægt að klæðast hönnuninni, sýna hana og eiga við hana í sýndar- veruleikanum á allt annan hátt en er mögulegt í raunveruleikanum. Metaverse býður líka upp á mun sjálfbærari möguleika en tísku- iðnaðurinn. Í stað þess að búa til f líkur úr hráefnum sem hafa töluverð umhverfisáhrif í för með sér, get ég skapað stafræna hönnun sem hver sem er getur nálgast, hvaðan sem er í heiminum. Ég er mjög spennt fyrir þeim möguleik- um sem sýndarveruleikinn býður upp á fyrir framtíð tískuiðnaðar- ins og er spennt að sjá hvert þessar tilraunir leiða mig,“ segir Gabriela að lokum. n 4 kynningarblað A L LT 10. mars 2023 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.