Fréttablaðið - 10.03.2023, Page 9
Nú um helgina verður fyrstu
þrívíddarprentuðu eldflaug-
inni skotið á loft frá Canave-
ral-höfða í Flórída. Fari allt
samkvæmt áætlun er talið
að eldflaugin gæti umturnað
smíði og hagkvæmni eld-
flauga í framtíðinni.
helgisteinar@frettabladid.is
BANDARÍKIN Fyrr í vikunni, þann
8. mars, sat eldflaug á skotpalli við
Canaveral-höfða tilbúin að brjóta
blað í sögunni með því að vera
fyrsta þrívíddarprentaða eldflaugin
til að taka á loft. Eldflaugin er 33
metrar á hæð og 85 prósent af henni
voru smíðuð með þvívíddartækni.
Þegar aðeins mínúta var til f lug-
taks þurfti að aflýsa geimskotinu
sökum tæknilegra erfiðleika. Ný
dagsetning var hins vegar ákveðin
og mun þessi sögulega eldf laug
koma til með að rjúfa gufuhvolfið
á morgun, laugardaginn 11. mars,
klukkan 18.00 að íslenskum tíma.
Það var bandaríska fyrirtækið
Relativity Space sem smíðaði þessa
eldflaug sem ber nafnið Terran 1. Ef
geimskotið á morgun fer samkvæmt
áætlun verður vonandi hægt að taka
næsta skref sem verður að undirbúa
Terran R eldflaugina fyrir geimskot
árið 2024.
Sú eldflaug verður tvöfalt stærri
og mun hafa 20 tonna burðargetu.
Þar að auki verður eldflaugin sjálf
endurnýjanleg og tekur ekki nema
tvo mánuði að smíða hana.
Fari f lugtakið samkvæmt áætlun
verður Terran 1 einnig fyrsta eld-
f laugin sem kemst á sporbaug
jarðar á metangasi en hreyf lar
eldflaugarinnar eru knúnir áfram
með blöndu af metani og f ljótandi
súrefni. Metan er talið vera mun
hagkvæmari kostur en steinolía
þar sem það er bæði ódýrara og
húðar ekki hreyf lana með leifum
á sama hátt og steinolía. Það þýðir
að þessi endurnýjanlega eldf laug
mun ekki þurfa jafn mikið viðhald
á milli geimskota.
Hægt verður að fylgjast með
geimskotinu á Terran 1 í beinu
streymi frá Canaveral-höfða á
heimasíðu Relativity Space. n
Eldflaugar framtíðarinnar prentaðar í þrívídd
Þrepin þrjú
Eldflaugahreyflar miðast yfir-
leitt við mismunandi „þrep“
við flugtak. Fyrsta þrepið
er geimskotið sjálft þegar
aðalhreyflarnir eru að koma
eldflauginni af jörðu. Þeir
losna svo af þegar eldsneytið
klárast eftir nokkrar mínútur
og falla til jarðar. Annað
þrepið knýr svo eldflaugina
út í geim og seinasta þrepið
er hreyfillinn sem kemur
geimfarinu á áfangastað.
Árið 2024 verður sannkallað geimár, en Artemis 2 mun einnig fljúga eftir
sporbaug tunglsins. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
© GRAPHIC NEWSHeimildir: Space.com, Relativity Space Myndir: Relativity Space
11. mars 2023: Fyrsta tilraunaug
með engum farmi. Verður skotið
á lo frá Canaveral-höfða
Farmur
1.250 kg
burðargeta
2. þrep
Milliþrep
AeonVac-
hreyll
Fljótandi súrefni
Fljótandi jarðgas
1. þrep
Fljótandi
súrefni
Fljótandi
jarðgas
9 x Aeon 1 hreyar 7 x Aeon R hreyar
33 m 66 mTerran 1 Terran R
Stórsniða Stargate
þrívíddar-málmprentari
Farmur
20 tonna
burðargeta
2. þrep
1. þrep
*9
5
pr
ós
en
t m
et
an
Næsta skref: Terran R – stærri,
endurnýjanleg eldaug –
verður skotið út í geim árið 2024
Los Angeles
Canaveral-höfði
Sama vél
og Terran 1
Minnst 85% eldaugarinnar eru prentuð með
þrívíddartækni, þar með talið hreyarnir.
Þrívíddarsmíði á eldaug tekur 2 mánuði –
hefðbundnar aðferðir taka 24 mánuði.
Núverandi suðutækni
notuð til að bræða
málmvír og er honum
svo raðað
nákvæmlega í
rörform.
Vélmenni
Terran 1 er fyrsta eldaug sinnar tegundar sem prentuð er með þrívíddartækni og eru
vonir bundnar við að slíkar eldaugar verði algengar í geimferðum framtíðarinnar.
Fyrsta þrívíddarprentaða eldaug heims
Fundarboð Kviku banka hf.
Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi mál:
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess
síðastliðið starfsár.
2. Ársreikningur félagsins fyrir árið 2022 og
ákvörðun um meðferð hagnaðar félagsins á
reikningsárinu.
Stjórn Kviku leggur til að greiddur verði út
arður til hluthafa bankans sem nemi kr. 0,4
á hlut sem jafngildir kr. 1.912.410.328, að
teknu tilliti til eigin hluta.
3. Tillaga um að heimila félaginu að kaupa
eigin hlutabréf.
4. Tillaga um lækkun hlutafjár með ógildingu
eigin hluta og samsvarandi breytingu á
samþykktum félagsins.
5. Tillaga um starfskjarastefnu félagsins.
6. Tillaga um breytingar á samþykktum
félagsins.
7. Kosning stjórnar og varastjórnar félagsins.
8. Kosning endurskoðenda félagsins.
9. Ákvörðun þóknunar til stjórnarmanna og
nefndarmanna í undirnefndum stjórnar
félagsins.
10. Önnur mál.
Meginefni tillögu stjórnar um breytingar á
samþykktum:
Stjórn félagsins leggur til að hlutafé félagsins
verði lækkað um 147.871.265 kr. að nafnvirði með
ógildingu jafn margra eigin hluta sem keyptir voru
samkvæmt formlegri endurkaupaáætlun á árinu
2022. Óskað verður eftir samþykki Fjármálaeftirlits
Seðlabanka Íslands (FME) fyrir lækkun hlutafjárins
með ógildingu á eigin hlutum í samræmi við
ákvæði laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002.
Verði tillagan samþykkt, og heimild veitt af hálfu
Aðalfundur Kviku banka hf., kt. 540502-2930 („Kvika“), verður haldinn fimmtudaginn 30. mars 2023, kl. 16:00, á Grand Hótel, Háteigi, Sigtúni 28, 105 Reykjavík.
til aðalfundar 30. mars 2023
FME, lækkar hlutafé bankans úr 4.928.896.981 kr. í
4.781.025.716 kr. að nafnvirði.
Auk þeirrar breytingar á samþykktum sem felst í
tillögu stjórnar um lækkun hlutafjár leggur stjórn
til að bætt verði við aðra málsgrein greinar 3.5
samþykktanna að til aðalfundar félagsins skuli boða
minnst þremur vikum fyrir fund og lengst sex vikum
fyrir fund. Þá leggur stjórn Kviku til að tilkynna
skuli með minnst fimm daga fyrirvara um þátttöku
á hluthafafundi í samræmi við nýtt ákvæði 5. mgr.
80. gr. laga um hlutafélög. Loks er lagt til að fellt
verði niður bráðabirgðaákvæði I, II og IV ásamt því
að breyta númerum bráðabirgðaákvæðis III í I og
bráðabirgðaákvæðis V í II.
Aðrar upplýsingar:
Fundarstörf fara fram á íslensku. Fundargögn eru
aðgengileg á heimasíðu félagsins á íslensku og ensku
utan þess að ársreikningur félagsins er eingöngu
aðgengilegur á ensku. Dagskrá, endanlegar tillögur,
starfskjarastefna, ársreikningur félagsins og önnur
fundargögn munu liggja frammi á skrifstofu
félagsins að Katrínartúni 2, Reykjavík, hluthöfum
til sýnis í 21 dag fyrir aðalfund. Umrædd gögn,
ásamt upplýsingum um frambjóðendur til stjórnar,
eru einnig birt á heimasíðu félagsins, www.kvika.is/
fjarfestaupplysingar/hluthafafundir/.
Boðið verður upp á fullgilda rafræna þátttöku á
fundinum án þess að hluthafar séu viðstaddir á
fundarstað í gegnum fundarkerfið Lumi AGM. Hægt
verður að fylgjast með fundinum í gegnum vefstreymi
auk þess sem hluthafar munu kjósa rafrænt og geta
borið upp skriflegar spurningar í gegnum Lumi
AGM. Rafræn þátttaka jafngildir mætingu á fundinn
og veitir rétt til þátttöku á honum að öðru leyti.
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa
hug á því að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt
eða á staðnum, eru beðnir um að skrá sig á
vefsíðunni www.lumiconnect.com eigi síðar en
kl. 16.00 þann 29. mars, eða degi fyrir fundardag.
Með innskráningu þarf að fylgja mynd af gildum
skilríkjum og umboð, ef við á.
Atkvæðagreiðsla á fundinum mun alfarið fara fram í
gegnum Lumi AGM, hvort sem hluthafar mæta til
fundarins á Grand Hótel eða taka þátt á rafrænan
hátt.
Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til
meðferðar á fundinum ef hann sendir um það skrif-
lega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar á heimilisfang
félagsins eða á netfangið hluthafar@kvika.is. Þeir
hluthafar sem óska eftir því að fá tiltekið mál tekið
til meðferðar á aðalfundinum skulu senda beiðni um
slíkt eigi síðar en tíu sólarhringum fyrir boðaðan
aðalfund, eða í síðasta lagi fyrir kl. 16:00 þann 20.
mars 2023. Slíkri ósk skulu fylgja drög að ályktun
fundarins ef við á.
Hluthafar geta einnig lagt fram spurningar fyrir
aðalfund með því að senda erindi á framangreint
netfang eða bera þær upp á aðalfundinum sjálfum.
Þeim sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn
ber að tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að
minnsta kosti fimm dögum fyrir upphaf aðalfundar,
þ.e. fyrir kl. 16:00 laugardaginn 25. mars 2023.
Í tilkynningu um framboð til stjórnar skal geta
nafns frambjóðanda, kennitölu, heimilisfangs,
menntunar, upplýsinga um aðalstarf og starfsferil,
hvenær viðkomandi tók fyrst sæti í stjórn félagsins
ef við á, önnur trúnaðarstörf (t.a.m. stjórnarstörf í
öðrum félögum) og hlutafjáreign í félaginu, beint
eða í gegnum tengda aðila. Þá skal upplýsa um
önnur tengsl við félagið og hagsmunatengsl við
helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins,
sem og hluthafa sem eiga, einir eða í samstarfi við
aðra, meira en 10% hlut í félaginu. Þeir einir eru
kjörgengir til setu í stjórn félagsins sem þannig
hafa gefið kost á sér. Krafa um hlutfallskosningu
eða margfeldiskosningu, sbr. 7. mgr. 63. gr. laga
um hlutafélög nr. 2/1995, skal hafa borist stjórn
félagsins minnst fimm dögum fyrir aðalfundinn,
þ.e. fyrir kl. 16:00 laugardaginn 25. mars 2022.
Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar munu
liggja frammi, hluthöfum til sýnis, á skrifstofu
félagsins sem og á heimasíðu félagsins, eigi síðar
en tveimur dögum fyrir aðalfundinn, sbr. 63. gr. a.
laga um hlutafélög nr. 2/1995. Framboðsform til
stjórnarsetu er aðgengilegt á vefsíðu félagsins.
Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað,
óháð fundarsókn. Aðilar sem eru skráðir hluthafar
í hlutaskrá félagsins þegar aðalfundur fer fram geta
beitt réttindum sínum á aðalfundinum. Hluthafar
geta látið umboðsmann sækja fundinn fyrir sína
hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt og
dagsett umboð, en form að umboði er aðgengilegt á
vefsíðu félagsins.
Fundarboð þetta, upplýsingar um heildarfjölda
hluta og atkvæða á fundarboðsdegi, dagskrá, tillögur
stjórnar til hluthafafundar og önnur fundargögn
ásamt umboðsformum verða aðgengileg á vefsíðu
félagsins. Sé misræmi milli fundargagna á íslensku
og ensku gildir íslenska útgáfan.
Stjórn Kviku banka hf.
FRÉTTABLAÐIÐ FRÉTTIR 910. MARS 2023
FÖSTUDAGUR