Fréttablaðið - 10.03.2023, Qupperneq 10
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is
FRÉTTASTJÓRI: Lovísa Arnardóttir lovisa@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út fimm daga í viku og hægt er að nálgast það ókeypis á 120 fjölförnum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, á Suðurnesjum, Árborg, Ölfusi, Akranesi, Borgarnesi,
Akureyri og víðar. Að auki er blaðið aðgengilegt í pdf-formi og í appi. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101
Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is. VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is
MENNING: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
HALLDÓR
FRÁ DEGI TIL DAGS
Þetta
klúðrar sér
ekki sjálft,
sjáiði til.
Einhver
þarf að
gera það.
Guðmundur
Gunnarsson
ggunnars
@frettabladid.is
Líneik Anna
Sævarsdóttir
þingmaður
Framsóknar
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna var fyrr í þessari
viku. Þessi dagur gefur ávallt tilefni til að ígrunda
stöðu jafnréttismála hér á landi og í heiminum
öllum.
Það er sláandi að þessa dagana berast þau tíðindi
frá 67. fundi Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna
að það heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem við
eigum hvað lengst í að ná sé markmiðið um jafnrétti
kynjanna.
Hér á landi höfum við náð eftirtektarverðum
árangri á mörgum sviðum jafnréttis en víða eigum
við þó enn langt í land. Vinna að jafnrétti er og
verður stöðugt og viðvarandi verkefni. Það verður
aldrei þannig að við getum hallað okkur aftur og sagt
að öllum markmiðum hafi verið náð, því þá er hætta
á að áunnin réttindi tapist og framþróun stöðvist.
Okkur ber skylda til að halda vinnunni áfram á
öllum sviðum samfélagsins.
Áskoranirnar hér á landi eru margar, launamunur
og kynjaskipting starfa á vinnumarkaði og kyn-
bundið námsval sem að mínu áliti tengist kyn-
bundnu námsframboði. Fylgja þarf eftir hvers konar
úrbótum í vinnu gegn kynferðislegu og kynbundnu
of beldi sem nú er í gangi, eftir að við höfum allt
of lengi verið sofandi gagnvart áhrifum of beldis á
einstaklinga og samfélag. Þá eigum við margt ólært
varðandi leiðir til að tryggja konum af erlendum
uppruna jafnrétti í íslensku samfélagi.
Þessi misserin sjáum við bakslag á heimsvísu
vegna náttúruhamfara, stríðs og pólitískra átaka.
Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hvetur
til tafarlausra og samræmdra aðgerða til þess að f lýta
því að jafnrétti náist á milli kynjanna og um leið er
kastljósinu beint að nýsköpun, tæknibreytingum og
menntun kvenna á stafrænni öld.
Hjá UN Women er unnið að því alla daga ársins að
tryggja réttindi kvenna og stúlkna um allan heim og
þrýsta á aðildarríki Sameinuðu þjóðanna að virða
sáttmála sem varðar réttindi kvenna og stúlkna.
Stríði fylgja auknar líkur á kynbundnu of beldi, man-
sali og almennri neyð. Stóra óskin er að konur fái
tækifæri til að vinna að friði. Friður er grundvöllur
jafnréttis. n
Vinna að jafnrétti
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Alex og William
manual hvíldarstólar
Alex manual með 20% afsl. 195.000 kr.
Alklæddir
Anelín leðri
Litir: svart,
dökkbrúnt og cognac
William manual með 20% afsl. 215.000 kr.
Nú með
20%
afslætti
gar@frettabladid.is
Handbolti frá Manchester
„Frammistaða“ íslenska karla-
landsliðsins í handbolta í Tékk-
landi í fyrrakvöld sló sjónvarps-
áhorfendur út af laginu. Virtust
strákarnir okkar blessaðir alger-
lega í vasanum á eigin vantrú á
getu sína og klúðruðu meira og
minna öllu sem hægt mun vera
að klúðra í einum handbolta-
leik. Þið sáuð þetta sjálf. Var
eiginlega eins og Manchester
United hefði sent sitt lið á vett-
vang fyrir okkar hönd. Það var
aðeins Björgvin Páll Gústafsson
sem virtist vera með sjálfum
sér. Sem betur fer. Þetta er mjög
furðulegt því mikið veltur á ein-
víginu við Tékka sem reyndar er
ekki lokið því Ísland á heima-
leikinn á sunnudag eftir. Hann
getur ekki orðið eins slæmur.
Eða hvað?
Á bak við tjöldin
Eitthvað hlýtur að hafa gengið á
bak við tjöldin hjá Handbolta-
sambandi Íslands í aðdraganda
þessara mikilvægu leikja úr því
ákveðið var að vísa þjálfaranum
á dyr án þess að hafa annan í
bakhöndinni. Óvíst er samt
hvort það hafi ráðið því að
íslenska liðið spilaði rassinn úr
buxunum í Tékklandi. Sýnist
helst sem eitthvert dularfullt
innanmein sé að plaga lands-
liðshópinn sem nær ekki betur
saman en raunin var og hver
leikmaðurinn á fætur öðrum
gerir mistök á færibandi. Var
kannski rangur maður látinn
fara? n
Þá eigum við
margt ólært
varðandi
leiðir til
að tryggja
konum af
erlendum
uppruna jafn-
rétti í íslensku
samfélagi.
Í vikunni blossaði hann upp enn eina ferð-
ina. Óþefurinn af nokkurra ára gömlum
glórulausum ákvörðunum stjórnar Sorpu.
Þar sem sjö milljörðum af peningum
skattgreiðenda var beinlínis sólundað í
tæki sem áttu að sjá um rusl, en reyndust vera
drasl. Þið skiljið.
Nýjasti kaflinn í þessari harmsögu úrgangs
á höfuðborgarsvæðinu er að nú eigi að loka
blessaðri þriggja ára gömlu flokkunarstöðinni í
Álfsnesi.
Henda henni á haugana. Í nokkrum hand-
hægum heimatökum innan girðingar.
Eflaust mætti hafa gaman af kaldhæðni slíkra
örlaga, ef ekki væri fyrir þá staðreynd að bún-
aðurinn, sem reyndist ónothæfur frá upphafi,
kostaði íbúa höfuðborgarsvæðisins ríflega einn
milljarð króna.
Þeim peningum verður nú fargað. Vegna þess
að nokkrir pólitíkusar í stjórnarstólum ákváðu
að hunsa ráðleggingar sérfræðinga og taka illa
ígrundaðar ákvarðanir.
Þetta hefur núverandi framkvæmdastjóri
fyrirtækisins meira að segja staðfest og sagt að
fjárfestingin hafi verið með öllu óskiljanleg.
Höfum líka í huga að þessi milljarður bætist
ofan á allt havaríið og klúðrið í kringum GAJU.
Gas- og jarðgerðarstöðina sem fór einn og hálfan
milljarð fram úr áætlun, kostaði á endanum
fimm komma sex milljarða en lúrir nú ónot-
hæf í mygluðu húsnæði þétt upp við umrædda
flokkunarstöð.
Þar standa þær nú saman þessar tvær stöðvar.
Á haugunum. Eins og veglegir minnisvarðar um
afglöp þeirra sem sífellt sækjast eftir ábyrgðar-
stöðum, en bera svo auðvitað enga ábyrgð þegar
til kastanna kemur.
Ekki einu sinni þegar almenningur fer að
klóra sér í höfðinu yfir öllum óþarflega háu
gjöldunum sem óhjákvæmilega fylgja vondum
ákvörðunum.
Þannig greiðum við nefnilega úr vitleysisgangi
í opinberum rekstri á Íslandi. Með einföldum
bakreikningum inn um bréfalúgur íbúanna.
En horfum svo fram hjá þeim sem eiga að bera
ábyrgð á dellunni. Þeir sitja alltaf sem fastast.
Hvað sem á dynur.
Kannski er það bara heppilegasta fyrirkomu-
lagið. Einhver þarf jú að manna alla fundina.
Borða snitturnar, þiggja launin og taka fleiri
ákvarðanir um hluti sem þeir hafa ekki hunds-
vit á. Þetta klúðrar sér ekki sjálft, sjáiði til. Ein-
hver þarf að gera það.
Eða eins og einn þaulreyndur sveitarstjórnar-
maður sagði eitt sinn þegar hann var spurður út
rugl í rekstri fyrirtækja á forræði sveitarfélaga:
„Byggðasamlag er það sem gerist þegar
nokkur sveitarfélög koma sér saman um að fara
illa með peninga og veita lélega þjónustu.“ n
Óþefur
10 SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 10. MARS 2023
FÖSTUDAGUR