Fréttablaðið - 10.03.2023, Síða 18
Jack Nicholson
hætti kvikmynda-
leik 2010 og hefur lítið
sést til hans síðan. Hann
býr einn á heimili sínu í
Beverly Hills og lifir
rólegu lífi.
Íslandsmót Íþróttasam-
bands fatlaðra í frjálsum
íþróttum verður haldið í
frjálsíþróttahöllinni í Laug-
ardal á morgun og að venju
ríkir mikil spenna og eftir-
vænting hjá keppendum.
gummih@frettabladid.is
„Það eru nokkrir tugir keppenda
skráðir til leiks og þar á meðal
verður okkar afreksfólk sem er
að reyna að ná lágmörkum fyrir
heimsmeistaramótið sem haldið
verður í Frakklandi í sumar,“ segir
Egill Þór Valgeirsson, formaður
frjálsíþróttanefndar Íþróttasam-
bands fatlaðra.
Að sögn Egils eru Stefanía Daney
Guðmundsdóttir og Ingeborg Eide
Garðarsdóttir búnar að tryggja sér
lágmörkin og eiga góða möguleika
á að keppa á heimsmeistaramót-
inu og Patrekur Andrés Axelsson
er alveg við þröskuldinn að tryggja
sér þátttökurétt.
Gerðu góða hluti í Dúbaí
Þau eru nýkomin heim frá Dúbaí
þar sem þau kepptu á heims-
mótaröð Alþjóðaólympíuhreyf-
ingarinnar. Öll stóðu þau sig vel
og Stefanía varð til að mynda í
öðru sæti í langstökki í Dúbaí og
Ingeborg fjórða í kúluvarpi og setti
nýtt persónulegt met í greininni en
hún keppti einnig í kringlukasti.
Stefanía, Ingeborg og Patrekur
verða öll í eldlínunni í Laugar-
dalnum á morgun.
„Það verða fleiri mót á næstu
vikum og mánuðum þar sem
okkar fólk hefur tækifæri á að
tryggja sér sæti á HM og Patrekur
mun til dæmis keppa á mótum
í Sviss og á Ítalíu þar sem hann
reynir við lágmarkið,“ segir Egill
en Patrekur er hlaupari og keppir
í f lokki blindra. Hann keppti í 100
og 400 metra hlaupum á mótinu í
Dúbaí.
Egill Þór vonast til þess að góður
árangur náist hjá keppendum á
Íslandsmótinu og hann segir að
það sé spenna og eftirvænting hjá
þeim.
Vill fá fleiri í sportið
„Það er alltaf mikil eftirvænting
hjá krökkunum að taka þátt
í Íslandsmóti og ég býst fast-
lega við því að við sjáum bætingar
hjá einhverjum keppendum. Það
verður gaman að sjá hvernig mótið
muni ganga og ég er bjartsýnn á
góðan árangur,“ segir Egill Þór, sem
vill sjá fleiri fatlaða einstaklinga
reyna fyrir sér í íþróttum.
„Við sem störfum í hreyfingunni
eigum þá ósk að fá fleiri þátt-
takendur í sportið því það er fullt
af fólki þarna úti sem gæti verið
að keppa og láta ljós sitt skína.
Stærsta auglýsingin fyrir okkur er
sú þegar fatlaðir einstaklingar gera
það gott á alþjóðlegum vettvangi.
Þá hugsa margir um að þeir gætu
alveg gert þetta líka. Sterkar fyrir-
myndir eru mjög mikilvægar.“
Egill Þór segir að það sé gaman
og gefandi að starfa fyrir Íþrótta-
samband fatlaðra. „Ég er búinn
að vera í kringum þjálfun fatlaðra
í um 20 ár og þetta er gríðarlega
skemmtilegt og gefandi starf í alla
staði.“
Íslandsmótið hefst á slaginu
klukkan 12 á morgun og stendur
yfir í rúmar þrjár klukkustundir. n
Spenna og eftirvænting
Stefanía Daney varð í 2. sæti í langstökki á móti í Dúbaí á dögunum. MYNDIR/ÍF Ingeborg Eide bætti sinn besta árangur í kúluvarpi.
Það verður gaman
að sjá hvernig
mótið muni ganga og ég
er bjartsýnn á góðan
árangur.
Egill Þór Valgeirsson
Goðsögnin, Hollywood-
stjarnan og þrefaldi Óskars-
verðlaunahafinn Jack
Nicholson hefur ekki sést
opinberlega um langan tíma
og margir aðdáenda hans
sakna hans af hvíta tjaldinu.
elin@frettabladid.is
Jack Nicholson er 85 ára og hefur
leikið í meira en 70 kvikmyndum
á ævi sinni. Hann hefur hlotið 12
Óskarstilnefningar og er sá karl-
leikari sem hefur fengið flestar
slíkar auk margra annarra verð-
launa. Hann var gjarnan þekktur
sem hjartaknúsari enda mikill
kvennamaður. Nicholson á sex
börn með fimm konum en sonur
hans, Ray Nicholson, fetar nú í fót-
spor föður síns í kvikmyndaheim-
inum í nýrri mynd sem nefnist Out
of the Blue.
Jack Nicholson hætti kvik-
myndaleik 2010 og hefur lítið
sést til hans síðan. Hann býr einn
á heimili sínu í Beverly Hills og
lifir rólegu lífi. Vinir hans hafa
áhyggjur af því að hann deyi sem
einsetumaður eftir litríkt líf sem
ein skærasta kvikmyndastjarna
allra tíma. Jack hefur aldrei til-
kynnt opinberlega að hann sé
hættur að leika en ekkert hefur
sést til hans í meira en tvö ár.
Margir hafa talið að hann þjáist að
heilabilun en hann hefur sjálfur
fullyrt að heilinn sé jafn skarpur
og hann hefur alltaf verið. Hann
sé einfaldlega orðinn vandlátur á
hlutverk.
Jack átti óvenjulega æsku. Móðir
hans, ógift sýningarstúlka, June
Frances Nicholson, eignaðist hann
átján ára en foreldrar hennar tóku
barnið að sér og sögðu móðurina
vera systur hans. Þannig var það í
næstum fjóra áratugi en árið 1974
afhjúpaði tímaritið Time sann-
leikann. Leikarinn vildi ekki viður-
kenna að sú uppljóstrun hefði
orðið honum áfall.
Jack fór í leiklistarnám og árið
1958 fékk hann fyrsta hlutverkið
í unglingamynd sem nefnist The
Cry Baby Killer. Ferill hans tók
strax kipp og hann varð fljótt einn
þekktasti leikari heims. Hann
hefur leikið í vinsælustu bíó-
myndum sem gerðar hafa verið og
listinn er langur. Síðasta myndin
var How Do You Know? en þar á
undan voru þekktar myndir eins
og Something's Gotta Give, As
Good as It Gets og The Bucket List.
Ein þekktasta myndin er þó án efa
Gaukshreiðrið.
Ástkonur hans hafa verið leik- og
söngkonur ásamt fyrirsætum líkt
og Michelle Phillips, Jill St. John,
Winnie Hollman, Bebe Buell, Lara
Flynn Boyle, Kate Moss, Paz de
la Huerta og Rebecca Broussard.
Hann kvæntist aðeins einni konu,
leikkonunni Söndru Knight. Hann
átti síðar í umdeildu ástarsambandi
við Anjelicu Huston. Í bók um Jack
Nicholson eftir Marc Eliot segir
að hann hafi eytt miklum tíma á
hátindi ferilsins í djamm og helst
allan sólarhringinn.
Jack sagði í viðtali fyrir nokkrum
árum að hann vildi einungis gera
bíómyndir sem hreyfa við fólki,
myndir um tilfinningar. Síðan
bætti hann því við að unga fólkið
vildi bara sjá myndir með spreng-
ingum og látum. „Ég mun aldrei
gera svoleiðis mynd,“ sagði hann.
Í viðtali við NBC sagðist leikarinn
sífellt vera að lesa yfir handrit.
Jack Nicholson var síðast mynd-
aður á leik með Lakers í Los Angeles
í október 2021. Vinir Jacks segja að
börnin hans komi reglulega í heim-
sókn en þau eru eina tenging hans
við umheiminn í dag. Glaumgosinn
hefur dregið sig í hlé. n
Jack Nicholson lifir kyrrlátu einsetulífi
Ein af nýlegustu
kvikmyndum
Jacks Nicholson
er Something’s
Gotta Give þar
sem hann fór
með aðalhlut-
verk á móti
Diane Keaton.
Myndin var
frumsýnd árið
2003 og er enn í
dag vinsæl enda
gamansöm.
Jack ásamt syni sínum, Ray Nicholson, sem nú fetar í fótspor föður síns á
hvíta tjaldinu. Hann leikur í myndinni Out of the Blue. MYND/GETTY
6 kynningarblað A L LT 10. mars 2023 FÖSTUDAGUR