Fréttablaðið - 10.03.2023, Page 20
Vinkonurnar Margrét
Ríkharðsdóttir, mat-
reiðslumeistari og einn af
eigendum Duck & Rose, og
Safa Jemai, athafnakona og
frumkvöðull, eigandi að
Mabrúka, tóku sig saman
á dögunum og buðu vin-
konum sínum í mat. Allir
réttirnir voru ættaðir frá
Túnis, heimalandi Söfu.
sjofn@frettabladid.is
Báðar eru þær Margrét og Safa
miklir matgæðingar og vita fátt
skemmtilegra en að töfra fram
ljúffengar kræsingar fyrir vini og
vandamenn og koma þeim á óvart
með nýjum bragðtegundum. Þegar
þær taka höndum saman í eld
húsinu gerast töfrarnir.
Kynni Söfu og Margrétar, sem
jafnan er kölluð Magga, hófust
þegar Safa hafði samband við hana
til að kynna fyrir henni kryddin
sín frá Túnis, en móðir Söfu vinnur
kryddin og þurrkar í sólinni í
Túnis.
„Ég skammast mín smá fyrir það
í dag en Safa var búin reyna að ná
á mig símleiðis og ég hafði ekki
gefið mér tíma til að tala við hana
varðandi kryddin. Hún gafst þó
ekki upp, kom við einn daginn og
þá gat ég ekki annað en gefið henni
tíma minn. Ég heillaðist algerlega
af fallegri sögunni um kryddin og
fannst magnað að vita til þess að
ferlið frá bónda til mín er bein leið.
Mamma Söfu vinnur kryddin og
þurrkar í sólinni og svo er þeim
pakkað og þau send beint hingað
þar sem við fáum þau í hendurnar.
Vá, bragðið af þessum kryddum,
til að mynda er svarti piparinn
sá besti sem þið hafið nokkurn
tímann smakkað. Ég byrjaði strax
að taka kryddin inn hjá okkur.
Sítrónublandan og svarti piparinn
eru enn í mestu uppáhaldi og túr
merik. Við Safa héldum svo saman
nýsköpunarviðburð hér á Duck
& Rose. Frá okkar fyrstu kynnum
urðum við strax góðar vinkonur og
í dag þykir mér mjög vænt um Söfu
og kryddin hennar frá Mabrúka og
það sem fyrirtækið hennar stendur
fyrir,“ segir Magga.
Saknaði kryddanna í Túnis
Vinkonurnar eru báðar miklir
matgæðingar og haldnar matar
ástríðu.
„Matarástríða mín byrjaði í
bernsku. Foreldrar mínir eru mikl
ir sælkerar og það var mikið um
góðan mat og veisluhöld á mínu
heimili. Ég byrjaði svo ung að læra
kokkinn, eða 16 ára, kláraði námið
2010 og síðan meistarann 2015. Ég
starfa við það sem ég elska mest og
hef ástríðu fyrir mínu starfi,“ segir
Magga sem í dag er yfirkokkur og
einn eigenda Duck & Rose og eldar
þar sinn uppáhaldsmat alla daga.
„Mest blómstrar ástríðan við
að elda heima í ró og næði fyrir
góða vini. Matur er auðvitað það
sem gefur okkur orku inn í lífið og
því er um að gera að hafa hann úr
besta mögulega hráefni sem völ
er á og bera hann fram fallegan og
bragðgóðan,“ segir Magga.
Safa segir matarástríðu sína
hafa blómstrað í eldhúsinu hjá
móður sinni í Túnis og sérstaklega
áhugann á kryddunum sem móðir
hennar gerði.
„Þegar ég kom til Íslands og
kynntist íslensku hráefni og
matargerð fann ég að stundum
vantaði aðeins meira bragð. Þá var
raunin sú að ég saknaði krydd
anna frá mömmu, svo í stuttu máli
ákvað ég að flytja þau hingað,
stofnaði fyrirtækið Mabrúka og
vá, hvað það var góð tilfinning
að geta látið drauminn rætast og
koma með kryddin til Íslands,“
segir Safa með bros á vör.
Vinkonurnar hefur lengi
langað til að elda saman og bjóða
nokkrum vel völdum konum að
njóta með sér og létu verða af því á
dögunum.
„Okkur hefur lengi langað til
prófa að elda saman, nota kryddin
og bjóða fleirum að njóta. Við
buðum báðar nokkrum góðum
konum sem tengjast sumar á ein
hvern hátt og aðrar ekkert. Ég var
til dæmis að hitta tvær dásam
legar konur í fyrsta skipti þetta
kvöldið en matarboð eins og þetta
er kjörið tækifæri til þess að tengja
saman flottar konur,“ segir Magga.
Þema matarboðsins var afrískir
réttir.
„Þetta voru norðurafrískir
réttir sem ég er vön að fá á mínu
heimili í Túnis og hef eldað með
fjölskyldu minni,“ segir Safa.
Uppskriftir frá mömmu Söfu
Flesta réttina var Magga að elda
fyrsta skipti.
„Ég hafði einungis eldað einn
af réttunum sem við buðum upp
á áður en það var grillaða salatið
sem við vorum með útgáfu af
þegar við Safa vorum með popup
viðburð á Duck & Rose í tengslum
við Nýsköpunarvikuna. Fyrir
mér var þetta stór áskorun en
við fengum góðar uppskriftir frá
móður Söfu og ég góða leiðsögn
frá henni í því sem við vorum að
gera,“ segir Magga.
Mabrúka fagnar eins árs afmæli
í mars og þá ætlar Safa að kynna til
leiks nýja vöru en stelpurnar fengu
að njóta þess að vera fyrstar til
þess að prófa í boðinu.
„Ég er alvarlega að íhuga hvort
sakshuka þurfi ekki að komast á
brönsseðilinn á Duck & Rose þar
sem hann orðinn einn af mínum
uppáhalds og sló í gegn í matarboð
inu. Ég er viss um að þessi réttur eigi
eftir að gleðja marga,“ segir Magga.
Safa og Magga deila með les
endum uppskriftum að nokkrum
réttum sem þær buðu upp á í
boðinu en alls voru níu réttir í
heildina.
Shaksukha
fyrir 4
2-4 stk. tómatar, gróft skornir
2 stk. rauð paprika, gróft skorin
1 stk. laukur, gróft skorinn
2 stk. chili, fínt skorið
4 hvítlauksgeirar, smátt skornir
1 dós tómatar
Salt og svartur pipar frá Mabrúka
eftir smekk
1 tsk. chili-flögur
1 tsk. harissa
Smá steinselja/kóríander til þess
að skreyta
6-8 stk. egg
Byrjið á að hita stóra pönnu með
góðri ólífuolíu á. Setjið allt græn
metið á pönnuna og steikið við
miðlungshita. Þegar grænmetið er
farið að mýkjast bætið við tóm
ötum í dós og kryddið svo til. Þegar
þið eruð sátt við bragðið brjótið þá
eggin yfir. Gott er að setja lok yfir
pönnuna, þá hjálpar gufan til við að
elda eggin hraðar. Þegar eggin eru
klár er gott að setja smá steinselju
og eða kóríander yfir.
Flatbrauð með zatar
fyrir 4
500 g semolina-hveiti
250 g hveiti
½ tsk. ger
1 tsk. salt
500 ml vatn
Þegar verið að steikja flatbrauðið:
Ólífuolía
Salt
Zatar frá Mabrúka
Blandið saman þurrefnum í
hræri vélar skál. Blandið saman og
bætið svo vatninu varlega saman
við þar til deigið er frekar klístrað.
Leyfið skálinni með deiginu að
standa örlítið svo deigið geti tekið
sig, um það bil 30 mínútur. Byrjið
svo að hnoða og skipta deiginu í
jafnar kúlur. Deigið er svo flatt út
og steikt jafnóðum á miðlungshita
upp úr ólífuolíu og kryddað til
með salti og zatar.
Grillað salat með túnfisk
og ólífum
1 stk. rauð paprika
1 stk. græn paprika
1 stk. laukur
1 stk. hvítlaukur eða
6 hvítlauksgeirar
3 stk. tómatar
Salt og pipar frá
Mabrúka
Cumin
Túnfisksteik, má líka
nota eldaðan úr búð,
mælum þá með tún-
fiskinum frá Olifia
Ólífur
Töfruðu fram afríska rétti í vinkonuboði
Margrét og Safa
töfruðu fram
afríska rétti í
vinkonuboðið
sem slógu í
gegn. Þema
kvöldsins voru
kryddin frá
Túnis – Mabrúka
fyrirtækinu
hennar Söfu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Shaksukha rétturinn er hinn girnilegasti og sló í gegn á afríska hlaðborðinu.
Flatbrauðin eru
toppuð með
zatar kryddi
sem kitlar
bragðlaukana
og passar ein-
staklega vel
með afrískum
réttum.
Undursamlegt
grillaða salatið
með túnfisksteikinni
og ólífunum.
Grænmetið er sett í ofnskúffu
með ólífuolíu og bakað á 180°C
í um það bil 2030 mínútur eða
þar til húðin er farin að dekkjast
og skinnið farið að losna frá/líka
hægt að grilla á háum hita. Þegar
grænmetið er klárt er því leyft að
kólna aðeins. Svo er húðin tekin
af og grænmetið allt skorið í smá
bita. Gott er að skera það í sigti til
þess að leyfa vökvanum að leka af.
Þegar allt grænmetið er klárt er það
kryddað til með salti, pipar, cumin
og smá ólífuolíu.
Salatið er sett á fallegt fat eða í
skál. Túnfiskurinn er steiktur við
meðal hita þar til hann er eldaður
í gegn. Svo má brjóta hann yfir sal
atið eða brjóta eldaða túnfiskinn
yfir salatið. n
8 kynningarblað A L LT 10. mars 2023 FÖSTUDAGUR