Fréttablaðið - 10.03.2023, Blaðsíða 23
Það hefur fátt gengið upp hjá
enska úrvalsdeildarliðinu
Tottenham undanfarið. Ljóst
er að liðið vinnur engan titil á
þessu tímabili og eru stuðn-
ingsmenn margir hverjir
orðnir pirraðir á stöðunni.
Hjálmar Örn Jóhannsson er
einn þekktasti stuðnings-
maður Tottenham á Íslandi
og telur hann breytinga þörf.
helgifannar@frettabladid.is
FÓTBOLTI Það varð ljóst á mið-
vikudag að Tottenham myndi ekki
vinna titil á þessari leiktíð, fimm-
tánda árið í röð. Þá féll liðið úr leik
í 16-liða úrslitum Meistaradeildar
Evrópu eftir leik gegn AC Milan.
Ítalirnir unnu fyrri leikinn 1-0 og
nægði því markalaust jafntef li í
Lundúnum á miðvikudag liðinu til
að komast í 8-liða úrslit.
„Þetta var allt andlaust. Það skipti
engu máli hvar það var. Stuðnings-
menn og leikmenn, ég hef aldrei séð
svona litla stemningu yfir neinu.
Þetta var allt ömurlegt í alla staði
og til skammar,“ segir Hjálmar Örn
Jóhannsson, einn harðasti Totten-
ham-stuðningsmaður landsins, um
frammistöðu sinna manna gegn
Milan.
Komið gott hjá Conte
Antonio Conte er við stjórnvölinn
hjá Tottenham. Liðið situr í fjórða
sæti ensku úrvalsdeildarinnar en er
dottið úr öllum öðrum keppnum.
Undir stjórn Conte þykir það spila
leiðinlegan fótbolta, þrátt fyrir
gæðaleikmenn í mörgum stöðum.
„Eins mikið og maður var bjart-
sýnn fyrst þegar Conte tók við,
þetta væri maður sem gæti snúið
við leikjum sem við værum vanir
að tapa, hefur þetta bara koðnað
niður í einhverja vitleysu. Ég veit
ekki lengur hvað er að,“ segir
Hjálmar.
Í síðustu viku féll Tottenham
úr leik í enska bikarnum með tapi
gegn B-deildarliðinu Sheff ield
United.
„Ég var reiðari yfir tapinu gegn
Sheffield United heldur en eftir
leikinn við Milan. Þá sauð á mér.
Þú átt bara að mæta með sterkasta
liðið þitt og ef menn eru svona
þreyttir er hægt að taka þá út af í
hálf leik.“
Conte tók við sem stjóri Totten-
ham haustið 2021 en samningur
hans rennur út í sumar.
„Ég er einn af þeim sem verja
þessa þjálfara fram í rauðan dauð-
ann. Þeir eru oft að fá leikmenn
sem þeir vilja ekki endilega.
Ég vona alltaf að menn séu fag-
legir í því sem þeir gera og vilji
klára tímabilið með reisn. En því
miður held ég að það eina rétta
í stöðunni sé að láta hann fjúka
strax og ná í nýjan.“
Vill meiri léttleika
Hjálmar telur að Tottenham þurfi
að hverfa aftur til þess tíma þegar
liðið lék skemmtilegan fótbolta, þó
svo að það skili ekki endilega titlum
í massavís.
„Þannig var þetta á níunda og
tíunda áratugnum. Samt voru bik-
arúrslit og alls konar.“
Hann nefnir að hann væri til í
að ráða Michael Carrick sem næsta
knattspyrnustjóra, en hann hefur
vakið athygli með Middlesbrough
á tímabilinu.
„Kannski þurfa stuðningsmenn
Tottenham að fara að átta sig á því
að við erum bara með lið sem er að
berjast um fjórða til sjötta sæti. Að
við séum ekki að fara að berjast um
neina titla.
Michael Carrick spilar fallegan
bolta og ég held að hann sé algjör-
lega málið.“
Myndi skilja Kane vel
Það er ekki til að hugga stuðnings-
menn Tottenham að nágrannarnir
og erkifjendurnir, Arsenal, eru að
gera stórkostlega hluti. Liðið er á
toppi ensku úrvalsdeildarinnar
með fimm stiga forskot.
„Það sýnir mér að það er ljós við
enda ganganna. Ef Arsenal, sem
klúðraði þessu algjörlega í fyrra,
getur snúið þessu svona við á einu
tímabili sýnir það mér að það er allt
hægt.
Ég verð líka að hrósa stjórninni
hjá Arsenal fyrir að hafa stutt við
bakið á Mikel Arteta. Eitthvað sáu
þeir.“
Stjórn Tottenham, með Daniel
Levy í fararbroddi, segir Hjálmar að
hugsi meira um að búa til peninga.
„Honum er skítsama um einhver
úrslit, þannig séð. Hann vill auð-
vitað að liðið sé í Meistaradeildinni
en gerir samt alltaf allt á eins ódýran
hátt og hægt er. Það er ekki alltaf
hægt að skeina sér með eldhús-
þurrku. Stundum þarftu bara að
fara og kaupa lamba-klósettpappír.“
Harry Kane, stjarna Totten-
ham og dáðasti leikmaður liðsins,
verður samningslaus eftir næstu
leiktíð. Hann hefur verið orðaður
við brottför.
„Ég myndi ekki vera neitt fúll út
í hann. Ég held að allir stuðnings-
menn Tottenham myndu skilja
hann 100%. Það gæti líka bara
orðið gott fyrir klúbbinn, alla
aðila. Stundum er það svoleiðis,“
segir skemmtikrafturinn og sam-
félagsmiðlastjarnan Hjálmar Örn
Jóhannsson. n
Tottenham hefur ekki
unnið titil frá því liðið
varð deildabikarmeist-
ari árið 2008.
Kannski þurfa stuðn-
ingsmenn Tottenham
að fara að átta sig á því
að við erum bara með
lið sem er að berjast
um fjórða til sjötta
sæti.
Hjálmar Örn
Jóhannsson,
skemmtikraftur
og samfélags-
miðlastjarna
aron@frettabladid.is
HANDBOLTI Íslenska landsliðið á
mögulega á hættu að missa af topp-
sæti síns riðils í undankeppni EM
eftir skell gegn Tékklandi á útivelli.
Efsta sæti riðilsins er mikilvægt upp
á dráttinn fyrir lokakeppnina.
Íslenska karlalandsliðið í hand-
bolta hefur verið mikið í umræð-
unni síðan liðið féll úr leik í milli-
riðlum HM í janúar. Svarið við
döprum árangri landsliðsins var að
semja um starfslok við þáverandi
landsliðsþjálfara, Guðmund Guð-
mundsson, en hrakfarir landsliðsins
héldu áfram á miðvikudag er liðið
lá í valnum gegn Tékkum í undan-
keppni EM.
Tékkarnir unnu leikinn með
fimm marka mun, sóknarleikur
íslenska landsliðsins komst aldrei á
flug og muna menn vart eftir slakari
frammistöðu landsliðsins.
Liðin mætast öðru sinni á sunnu-
daginn og þá í Laugardalshöll.
Möguleikar Íslands á efsta sæti rið-
ilsins eru enn til staðar. Strákarnir
okkar sitja sem stendur í 2. sæti rið-
ilsins með fjögur stig eftir þrjá leiki,
tveimur stigum á eftir Tékklandi
sem er enn með fullt hús stiga, með
tveimur stigum meira.
Til þess að strákarnir okkar nái
að hrifsa til sín efsta sæti riðilsins á
nýjan leik verður liðið að vinna með
sama mun og Tékkarnir unnu þá
með, eða meiri. Með öðrum orðum
vinna með fimm eða fleiri marka
mun.
Þegar talið verður upp úr pokan-
um og allir leikir riðilsins afstaðnir
verður fyrst litið til fjölda stiga þegar
horft er á stöðuna. Fari svo að liðin
í efstu tveimur sætunum séu jöfn að
stigum verður horft til stigafjölda
þeirra í innbyrðis viðureignum. Séu
liðin með jafnmörg stig í innbyrðis
viðureignum sínum verður horft
til markahlutfalls þeirra liða í inn-
byrðis leikjum þeirra.
Sé enn og aftur allt jafnt á þeim
tölum verður horft til fjölda skor-
aðra marka þeirra í innbyrðis leikj-
unum og að lokum markahlutfalls
liðanna í riðlakeppninni í heild
sinni ef þurfa þykir.
Efsta sæti riðilsins skiptir máli
þegar dregið verður í riðla fyrir EM
sem fram fer í Þýskalandi á næsta ári
þar sem litið verður til fyrri úrslita
þegar skipt verður í styrkleika-
flokka. n
Þurfa að brúa bilið eftir afhroð í fyrri leiknum
Aron Pálmarsson er fyrirliði íslenska landsliðsins MYND/HSÍ
Óska eftir manni
með vinnuvélaréttindi
Looking for a man with a
machine exam
Óska einnig eftir smið
í vinnu eða manni sem hefur
unnið við smíðar.
Upplýsingar í síma 893 5374
nybyggd@gmail.com
Nudd Nudd Nudd
Slökunarnudd í miðbæ
Reykjarvíkur. Lausir tímar.
Sími 694 7881, Janna.
GEFÐU
VATN
gjofsemgefur.is
9O7 2OO3
Enn eitt titlalaust ár og breytinga er
þörf í hvíta hluta Norður-Lundúna
Það er ansi ólíklegt að Antonio Conte verði knattspyrnustjóri Tottenham mikið lengur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FRÉTTABLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR 1510. MARS 2023
FÖSTUDAGUR