Fréttablaðið - 11.03.2023, Qupperneq 4
Lagalegar og pólitískar
afleiðingar neitunar-
valds eða synjunar um
að samþykkja ESB-gerð
eru mjög alvarlegar.
Maria Elvira
Mendez Pinedo,
sérfræðingur í
Evrópurétti
30
prósent
hafa skilað
skattfram-
tali.
133
leituðu
á heilsu-
gæsluna
í fyrra
með
myglusveppasýki.
50
prósent
eru á móti
sjókvía-
eldi.
3
sprengju-
hótanir
hafa borist
lög-
reglunni á
Suðurnesjum á árinu.
11
milljónum
króna
varði
ÁTVR í
málsóknir.
Tölur vikunnar |
Þrjú í fréTTum |
Birgir
Ármannsson
forseti Alþingis
hafnaði því að
Jóhann Páll
Jóhannsson,
þingmaður Sam-
fylkingar, fengi
að bera fram
fyrirspurn um
Lindarhvolsmálið. Var þess í stað
látin fara fram atkvæðagreiðsla
um hvort Jóhann Páll mætti bera
fram fyrirspurnina sem var felld
með atkvæðum stjórnarþing-
manna.
Diljá
Pétursdóttir
söngkona
kom, sá og sigraði
í Söngvakeppni
sjónvarpsins
með laginu
Power. Mun hún
því halda utan
í maí og flytja
lagið í sjálfri Eurovision-söngva-
keppninni. Diljá, sem er 21 árs
sjúkraþjálfaranemi, var nær óþekkt
fyrir keppnina en nafn hennar er
nú á allra vörum. Fyrir fram var
ekki búist við miklu af Íslandi í
veðbönkunum en sígandi lukka er
best.
Ástráður
Haraldsson
settur sáttasemjari
í kjaradeilu Eflingar
og SA
fékk miðlunar-
tillögu sína
samþykkta af
báðum aðilum
með miklum
yfirburðum. Tókst Ástráði það
sem Aðalsteini Leifssyni ríkis-
sáttasemjara mistókst og sem olli
því að hann sagði sig frá deilunni.
Þar sem aðeins voru undirritaðir
kjarasamningar til skamms tíma
á vinnumarkaði líður ekki á löngu
þar til sest verður við samninga-
borðið á ný. n
x
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Alex og William
manual hvíldarstólar
Alex manual með 20% afsl. 195.000 kr.
Alklæddir
Anelín leðri
Litir: svart,
dökkbrúnt og cognac
William manual með 20% afsl. 215.000 kr.
Nú með
20%
afslætti
ser@frettabladid.is
Orkumál Innflutningur á jarðefna-
eldsneyti til landsins á yfirstand-
andi ári verður sá mesti sem sögur
fara af, samkvæmt útreikningum
sérfræðinga á vegum Samtaka
atvinnulífsins.
Sig urður Hannesson, f ram-
kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins,
sagði á nýafstöðnu Iðnþingi í vik-
unni að svona væri málum háttað
á sama tíma og boðuð orkuskipti á
Íslandi væru í hámæli.
„Við færumst fjær þeim mark-
miðum sem stjórnvöld hafa sett sér
í loftslagsmálum,“ segir Sigurður í
samtali við blaðið.
Alvarlegur skortur er að verða á
grænni orku til atvinnurekstrar í
landinu að sögn Sigurðar á sama
tíma og iðnaður og aðrar megin-
stoðir í tekjuöflun þjóðarinnar séu
að dafna og vaxa.
„Atvinnuuppbyggingin í landinu
er enn þá mjög háð olíuinnflutningi
á meðan svona er í pottinn búið,“
segir Sigurður og bendir á viðspyrn-
una í ferðaþjónustu sem dæmi.
„Ferðaþjónustan er að fara á
fullt á nýjan leik og meira f lugi og
aukinni umferð fylgir meiri olíu-
notkun,“ segir Sigurður.
Þar fyrir utan sé af hendingar-
öryggi rafmagns í landinu enn þá
mjög ótryggt.
Fyrir vikið þurfi nýir sem gamlir
atvinnuvegir í landinu að reiða sig
á innflutta olíu og gas á nýrri öld,
svo sem fiskvinnsla fyrir austan og
efnagerð fyrir vestan.
„Við erum enn þá mjög olíudrifið
hagkerfi,“ segir Sigurður Hannes-
son. n
Nýtt met að falla í olíuinnflutningi
Við færumst fjær þeim
markmiðum sem
stjórnvöld hafa sett sér
í loftslagsmálum.
Sigurður
Hannesson,
framkvæmda-
stjóri SI
Gríðarleg harka er hlaupin í
flugdeiluna milli Íslands og
ESB. Sérfræðingur í Evrópu-
rétti segir miklar afleiðingar
blasa við ef Íslendingar beita
neitunarvaldi í EES-nefnd-
inni.
bth@frettabladid.is
ragnarjon@frettabladid.is
lOfTslagsmál „Það hefur aldrei
gerst að Ísland hafi beitt „neitunar-
valdi“ til að vera á móti löggjöf ESB,“
segir Maria Elvira Mendez Pinedo,
sérfræðingur í Evrópurétti.
Hún segir að alla jafna vinni
samningsaðilar hörðum höndum
að því að ná góðri lausn með þjóðar-
hagsmuni í huga.
„Það er fordæmi fyrir spennu
og erfiðri innleiðingu evrópskrar
tilskipunar um frjálsa för fólks og
ríkisborgararétt,“ segir Maria.
Varðandi deilu Íslands sem
sprettur af óskum Íslendinga um
fyrirgreiðslu vegna losunarskatta
af flugi segir Maria Elvira að niður-
staðan gæti orðið svokölluð „stöðv-
un EES-réttar“.
„Ég geri ráð fyrir að nú séu að eiga
sér stað mikilvægar pólitískar og
diplómatískar samningaviðræður
til að leysa málið,“ segir hún. „Vegna
þess að lagalegar og pólitískar
afleiðingar neitunarvalds eða synj-
unar um að samþykkja ESB-gerð eru
mjög alvarlegar.“
Hún segir að ef allt fer úrskeiðis að
loknum fresti til innleiðingar geti
það haft áhrif á kafla EES-samnings-
ins og að lokum haft áhrif á önnur
svið innri markaðar ESB og EES um
fjórskipt grundvallarfrelsi.
Þórdís K. R. Gylfadóttir utanríkis-
ráðherra segir að mikil vinna standi
yfir af hálfu Íslands til að reyna til
þrautar að ná fram breytingum á
fyrirhugaðri reglugerð.
„Það er ekki lengur deilt um að
áhrifin á okkur verði mjög mikil og
neikvæð,“ sagði Þórdís Kolbrún að
loknum ríkisstjórnarfundi í gær.
Forstjórar Icelandair og Play hafa
dregið upp mjög dökka sviðsmynd
ef skatturinn leggst af fullum þunga
á rekstur félaganna.
„Það er ekki tímabært að gefa
út stórar yfirlýsingar,“ segir utan-
ríkisráðherra, aðspurð hvort Ísland
muni beita neitunarvaldi í sam-
eiginlegu EES-nefndinni.
Hins vegar segir Þórdís að Ísland
muni ekki innleiða regluverk sem
stórskaðar hag Íslands.
„Þetta eru raunverulegt áhyggju-
efni,“ segir hún.
Þegar ESB-gerð er samþykkt þarf
að vera samstaða í Noregi, Íslandi
og Liechtenstein um að fella hana
inn og laga ef nauðsyn krefur að
EFTA-EES-ríkjunum og EES-samn-
ingnum.
Malta og Kýpur fengu undanþág-
ur árið 2012 þegar fyrst var komið á
skattheimtu vegna losunar á grunni
sérstöðu landanna sem eyríkja.
Það er talið vinna gegn málstað
Íslendinga nú að íslenskir ráðamenn
gerðu ekki kröfu um sömu fyrir-
greiðslu og Malta og Kýpur fengu
fyrir rúmum áratug.
Lilja Alfreðsdóttir, viðskipta- og
menningarmálaráðherra, segir að
Ísland muni aldrei undirgangast
skilyrði Evrópusambandsins í mál-
inu óbreytt.
„Þetta skiptir öllu fyrir okkur sem
ferðaþjónustuland vegna tenging-
anna og landfræðilegrar legu,“ segir
Lilja. „Það kemur ekki til greina að
þessi tilskipun nái fram að ganga án
þess að á henni verði gerðar breyt-
ingar.“
Framkvæmdastjóri Landverndar
hefur sagt í Fréttablaðinu að tengi-
f lugsmódelið um Keflavíkurflug-
völl sé mengandi og ekki í anda
umhverfismála. Samþykkt tilskip-
unarinnar sé tækifæri fyrir Ísland
til að fækka ferðamönnum til lands-
ins og reyna fremur að fá fólk til að
dvelja lengur. n
Afleiðingar sagðar alvarlegar beiti
Ísland neitunarvaldi vegna flugdeilu
Tengiflugið um
Keflavík er sér-
lega viðkvæmt
fyrir aukinni
skattheimtu
vegna losunar
frá flugi.
fréttablaðið/
Ernir
4 fréttir FRÉTTABLAÐIÐ 11. mARs 2023
LAUGArDAGUr