Fréttablaðið - 11.03.2023, Qupperneq 16
Kvennalist-
inn kom
þá þremur
konum inn
í 60 þing-
manna-
hópinn
sem áður
taldi
aðeins
þrjár
konur.
Fyrir okkur Íslending-
ana er það auðvitað
mál málanna að hún
Sara Gunnarsdóttir er
tilnefnd fyrir stutt-
teiknimyndina My
year of Dicks.
Í kvöld
verður svo
dragsýning
á Kiki.
bjork@frettabladid.is
Við mælum með |
um helgina |
Það er komið að hinni árlegu
veislu kvikmyndaiðnaðarins,
sjálfum Óskarsverðlaun-
unum. Dröfn Ösp Snorra-
dóttir-Rozas er búsett í Engla-
borginni og lýsir því sem fyrir
augu ber fyrir áhorfendum
Stöðvar 2 aðfaranótt mánu-
dags, ein og aflokuð í kjallara
heimilis síns.
bjork@frettabladid.is
Fjölmargir Íslendingar verða
framlágir á mánudag eftir
að hafa vakað fram eftir
yfir Óskarsverðlaunaat-
höfninni sem hefst á mið-
nætti á sunnudagskvöld að íslensk-
um tíma.
Dröfn Ösp Snorradóttir-Rozas
þekkir þá tilfinningu vel enda hefur
hún fylgst með beinni útsendingu í
áratugi og mætti alltaf ósofin í skóla
eða vinnu þegar hún bjó heima á
Íslandi.
„Það er auðvitað alveg omvendt
núna því ég bý í Los Angeles. En
þegar ég bjó heima var ég meira að
vinna með einfarann um hánótt, að
pukrast með að vekja ekki mömmu
og pabba og horfði ein ýmist hlæj-
andi eða skælandi yfir þakkarræð-
um og dramatískum augnablikum.
En eftir að ég f lutti til Los Angeles
er þetta um miðjan dag, útsending
byrjar um klukkan tvö, þrjú um dag
með upphitunarþáttum um hvað sé
að gerast á rauða og hvaða tilnefn-
ingar eru að fara að taka hvað og alls
skyns spekúlasjónum.“
Þau hörðustu mæta uppáklædd
Dröfn segir algengt að fólk haldi
veislur og fylgist saman með
útsendingunni.
„Við hörðustu mætum uppá-
klædd með kampavín og fólk hendir
í veitingar og bilaðan stemmara. En
í ár sem og í fyrra verð ég í kjallar-
anum heima hjá mér lokuð af að
lýsa honum beint fyrir Stöð 2 frá
upphafi til enda þannig að ég verð
með áhorfendum og það er svo
sannarlega draumur að rætast hjá
mér,“ segir hún kát.
„Kampavín, blíní og kavíar og
ærandi stemming er yfirleitt það
sem ég er að vinna með en í ár bara
sódavatn og hljóðlátt snarl til að
vera ekki smjattandi í eyru áhorf-
enda.“
Búin að sjá allar nema tvær
Aðspurð hvaða kvikmyndum hún
spái velgengni í ár stendur ekki á
svörum.
„Everything Everywhere all at
once er gríðarlega sigurstrangleg
og ef við dæmum út frá velgengni
hennar á undangengnum hátíðum
er nokkuð ljóst að hún sé að fara að
sópa að sér styttum.“
Dröfn hefur verið dugleg að horfa
á þær myndir sem tilnefndar eru.
„Sumar myndirnar eru varla
komnar út og stundum svoldið
snúið að ná að sjá þær þó ég fái svo-
kallaða „screener-a“ eða DVD með
myndunum frá Art directors guild
verkalýðsfélaginu.“
Þegar við náum tali af Dröfn á
hún enn eftir að sjá Women Talking
og Avatar 2 en útilokar þó ekki að ná
því fyrir stóru stundina.
Spennt vegna tilnefningar Söru
„Fyrir okkur Íslendingana er það
auðvitað mál málanna að hún
Sara Gunnarsdóttir er tilnefnd
fyrir stuttteiknimyndina My year
of Dicks sem hún leikstýrði og við
erum auðvitað að rifna úr stolti og
spennu með þennan flokk.
Hin stóra fréttin er að Top Gun:
Maverick er tilnefnd sem besta
kvikmynd en aldrei áður hefur
svona stór Hollywood-mynd sem
hefur verið svona vinsæl og tekjuhá
verið tilnefnd og það yrði þá í fyrsta
sinn sem Tom Cruise fær Óskar.
Rihönnu er líka spáð sigri fyrir besta
lag, Lift me up, úr Black Panther:
Wakanda Forever og ég held að það
verði málið.“
Það er ekki hægt að sleppa sér-
fræðingnum án þess að biðja hana
að spá hvaða leikari og leikkona
hljóti Óskarinn fyrir aðalhlutverk
þetta árið.
„Ég ætla að skjóta á að Michelle
Yeoh taki Óskarinn fyrir Every-
thing, Everywhere all at once. Svo
held ég að ég taki bara smá áhættu
og segi að Austin Butler sé að taka
styttuna fyrir Elvis þó að bæði Bill
Nighy og Colin Farrell eigi hug minn
allan fyrir sinn leik.“ n
Horfði alltaf ein á Óskarinn
skælandi eða hlæjandi
Dröfn hér með raunverulega Óskarsstyttu sem Marketa Irglova hlaut fyrir
lagið Falling slowly úr myndinni Once frá árinu 2007. Mynd/aðsend
Draumaþjófnum
Í Þjóðleikhúsinu var um liðna helgi
frumsýndur glænýr fjölskyldusöng-
leikur byggður á bók Gunnars Helga-
sonar, Draumaþjófurinn. Um er að
ræða hugljúfa en harðneskjulega
sögu um lífsbaráttu rotta. Já, sögu-
hetjur söngleiksins eru rottur: hafn-
arrottur, bátarottur, borgarrottur og
tilraunarottur. Leikurinn, tónlistin
og ekki síst búningarnir og sviðs-
myndin halda ungum sem öldnum
helteknum í tveggja klukkustunda
ævintýri.
Stúdentakjallaranum
Þar sem fátækir námsmenn eta og
drekka er þér sannarlega óhætt á
verðbólgutímum. Þar má gæða sér á
köldum á krana frá 1.100 krónum og
borgara með öllu frá 1.650 krónum.
Það er ódýrara en á Aktu taktu og
þú færð borð, stól og alvöru borð-
búnað. Ekki má gleyma að Kjallarinn
er einn fárra staða sem bjóða upp á
úrval vegan- og grænmetisborgara
og steik með bearnaise undir þrjú
þúsund kallinum. n
Árið 1983 var ég níu ára grunnskólakrakki
sem algjörlega grunlaus um misrétti
kynjanna kom dag hvern heim eftir skóla
þar sem móðir mín beið mín og bræðra
minna. Reyndar fannst mér ákveðið órétt-
læti í því að hún væri alltaf heima, þrábað hana um
að finna sér vinnu svo ég gæti verið ein heima eins og
sumar vinkonur mínar sem höfðu húsið út af fyrir sig
eftir hádegi og lykil um hálsinn sem frelsistákn. En
það er önnur saga …
Níu ára gamla ég hafði ekki hugmynd um það sem
var að gerast á einmitt þessum árstíma, en nú á mánu-
daginn eru 40 ár frá stofnfundi Kvennalistans. Ég
hafði ekki hugmynd um að þó móðir mín glöð hefði
viljað, hefði verið erfitt fyrir hana að sækja á vinnu-
markaðinn með þrjú börn, enda fengu aðeins átta pró-
sent barna í Reykjavík þess tíma heilsdagsvistun.
Ég vissi ekki þá, sem ég veit í dag, að hugdjarfar
konur sem fengið höfðu nóg, lögðu dag við nótt í
nokkrar vikur til að koma saman framboðslista og
bjóða fram til Alþingis þetta ár. Kvennalistinn kom þá
þremur konum inn í 60 þingmanna hópinn sem áður
taldi aðeins þrjár konur.
Takk fyrir djörfung ykkar og hug Kvennalista-
konur! n
Áfram stelpur
birnadrofn@frettabladid.is
Landsþing hinsegin fólks er haldið
um helgina og hófst með aðalfundi
Samtakanna ‘78 í Iðnó í gær. Dag-
skrá þingsins er afar fjölbreytt og
ættu öll að geta fundið eitthvað við
sitt hæfi.
Ólöf Bjarki, formaður Trans
Íslands, og Vilhjálmur Ósk, sam-
skiptastjóri Samtakanna ‘78, fara
til að mynda yfir stöðu trans fólks
í heilbrigðiskerfinu, hvaða úrbætur
eru á leiðinni og hverjar nýjustu
fréttir eru klukkan eitt í dag.
Klukkan þrjú er svo erindi um
lyfið PrEP en lyfið er forvarnalyf
gegn HIV. Fyrst þegar lyfið var
tekið í notkun var áætlað að um 60
manns myndu nýta sér það. Sú tala
Öll velkomin á landsþing hinsegin fólks
Landsþingið
hófst með aðal-
fundi Samtak-
anna ‘78 í gær.
fréttablaðið/
ernir
hefur margfaldast en farið verður
yfir það hver staðan er núna.
Í kvöld verður svo dragsýning á
Kiki þar sem fram koma Lola Von
Heart, Chardonnay Bublée, Milo
de Mix og Úlla la Delish ásamt fleiri
góðum gestum.
Á sunnudaginn standa Samtökin
‘78 í samstarfi við Bíó Paradís fyrir
sýningu heimildarmyndinni Wel-
come to Chechnya. Myndin fjallar
um sjálfboðaliða sem leggja líf sitt
í hættu við að koma hinsegin fólki í
Tsjetsjeníu undan ofsóknum stjórn-
valda í þessu afturhaldssama og
lokaða ríki fyrrum Sovétríkjanna.
Að myndinni lokinni verður
boðið upp á fyrirspurnir til tveggja
einstaklinga sem koma fram í
henni. n
16 helgin FRÉTTABLAÐIÐ 11. mARs 2023
lAUgARDAgUR