Fréttablaðið - 11.03.2023, Blaðsíða 18
Kannski
útskýrir
það að
einhverju
leyti af
hverju ég
er svona
stórtækur.
Einar hefur
samið fjöl-
mörg lög sem
Íslendingar
þekkja vel. Hann
segir magnaða
tilfinningu
þegar fólk
skemmtir sér
og syngur með
lögum hans.
Fréttablaðið/
Valli
Einar Bárðarson fagnar því
um þessar mundir að 25 ár
eru liðin frá því að hans vin
sælasta lag, Farin, kom út.
Einar ólst upp á Selfossi og
segir skilnað foreldra sinna
hafa haft meiri áhrif á sig en
hann gerði sér grein fyrir. Fyrir
nokkrum árum hætti Einar að
drekka og nýtur nú lífsins.
Ég ólst upp á Selfossi og flutti
í rauninni ekki þaðan fyrr
en ég varð 24 ára,“ segir
þúsundþjalasmiðurinn
Einar Bárðarson.
„Það var mjög næs að alast þar
upp en ég hélt oft að ég væri að
missa af voða miklu af því ég bjó
ekki í borginni eða New York eða á
einhverjum stærri stað,“ segir Einar.
Þegar hann var sextán ára fór
Einar sem skiptinemi til Banda
ríkjanna og komst að því að þar
væru líka smábæir líkt og Selfoss.
„Þá var ég í þorpi sem var rúmlega
helmingi minna en Selfoss og það
kenndi manni ýmislegt.“
Einar kom heim frá Bandaríkjun
um og kláraði framhaldsskóla, hann
var vinmargur og naut sín vel á Sel
fossi. Þegar hann var 24 ára ákvað
hann að fara aftur til Bandaríkjanna
og mennta sig. Hann fór til Arizona
í fjögurra ára nám í markaðsfræði.
Spurður að því hvernig hann hafi
fjármagnað dýrt nám í Bandaríkj
unum segist Einar meðal annars
hafa selt lítið fyrirtæki sem hann
átti. „Þegar ég fór sem skiptinemi
var ég heppinn að fá að fara í gegn
um Rótarýklúbbinn. Mamma mín
og pabbi tóku á móti skiptinema í
staðinn,“ segir hann.
„En svo þegar ég fór út í nám var
ég ungur maður og átti orðið eitt
hvert dótarí, ég seldi bílinn minn
og litla auglýsingastofu sem ég átti
til að geta farið.“
Einar var þarna búinn að stofna
sitt fyrsta fyrirtæki og segist
aðspurður alltaf hafa verið bæði
stórtækur og framtak ssamur.
„Amma mín og afi í móðurætt
voru frumkvöðlar og atvinnurek
endur, allir bræður mömmu voru í
atvinnurekstri og mamma mín og
pabbi líka. Ég leyfi mér að segja að
ég er mun áhættusæknari en þetta
fólk en ég lærði ungur að vinna og
að maður gæti skapað sér tækifæri
sjálfur,“ segir hann.
Einar byrjaði að selja dagblöð
aðeins sjö ára gamall, hann var orð
inn plötusnúður þegar hann var tólf
ára, á unglingsárunum hengdi hann
upp plaköt fyrir hinar ýmsu hljóm
sveitir ásamt því að spila sjálfur í
hljómsveit. Hann samdi tónlist og
fagnar um þessar mundir 25 ára laga
höfundarafmæli sínu en aldarfjórð
ungur er síðan lagið Farin kom út.
Hann hefur starfað hjá Hafnar
fjarðarbæ, Reykjavíkurborg, Kynn
is ferðum og Votlendissjóði. Hann
stofnaði Plokkdaginn, er með sitt
eigið hlaðvarp, var dómari í Idol
og XFactor og hefur starfað sem
umboðsmaður, hann er af mörgum
kallaður umboðsmaður Íslands. Þó
að listinn sé langur er hann ekki
tæmandi.
„Blóðfaðir minn og mamma
skildu áður en ég man eftir mér og
mamma mín eignaðist svo góðan
mann sem gekk mér í föðurstað og
hefur reynst mér vel, þar var ég eins
og svo oft mjög heppinn. En þegar
maður eldist og les meira um skiln
aðarbörn og alls konar sem tengist
þeim þá sér maður að í undirmeð
vitundinni eru þau að leita að viður
kenningu,“ segir Einar.
„Kannski útskýrir það að ein
hverju leyti af hverju ég er svona
stórtækur og sæki í að gleðja og
bæta samfélagið í gegnum umhverf
ismál og skemmtun. Stundum spyr
ég mig: Af hverju fór ég ekki bara í
að græða peninga bara fyrir sjálfan
mig og nota hæfileikana mína bara
í það?“ segir hann.
„En þó að ég hafi oft lent í alls
konar ævintýrum og vandræðum
þá get ég ekki sagt að ég sjái eftir
neinu sem ég hef tekið þátt í í gegn
Réttur maður
á réttum stað
um tíðina og ég er ekkert endilega
viss um að ég væri hamingjusamari
ef ég hefði farið einhverja aðra leið
í þessu.“
Byrjaði snemma í tónlist
Einar hefur alltaf haft mikinn áhuga
á tónlist og byrjaði snemma að spila.
Sitt fyrsta lagin, Farin, samdi hann
fyrir hljómsveitina Skítamóral en
bróðir hans spilaði á gítar í hljóm
sveitinni. Þá var Einar 25 ára. Síðan
þá hefur hann samið fjölda annarra
laga fyrir Skítamóral, Á móti sól,
Nylon og Björgvin Halldórsson, svo
dæmi séu tekin.
„Mér fannst ekkert mál að gera
þetta fyrir Skítamóral. Þar var ég
einhvern veginn réttur maður á
réttum stað. Svo gerði ég eitthvað
fyrir Á móti sól og þá hugsaði ég:
Ókei, ég get gert þetta fyrir aðra,“
segir Einar.
„En svo þegar Björgvin Halldórs
son tók lag eftir mig, það var eitt
hvað allt annað. Þá var ég allt í einu
orðinn alvöru lagahöfundur og í
hópi með Jóhanni G. Jóhannssyni
og Gunnari Þórðar, það er „Alist“
dæmi,“ segir hann.
Spurður að því hvernig það hafi
komið til að Björgvin Halldórsson
söng lag eftir hann segir Einar þá
hafa verið saman í veiðiferð. „Við
vorum frammi í stofu að drekka
vískí langt fram eftir og hlusta á
einhver demó, svo nokkrum dögum
seinna hringir hann í mig og vildi
skoða betur lag sem heitir Ég sé
þig, en það er eitt af mínum betri
lögum,“ segir hann.
„Svo var mjög fyndið þegar hann
sagði mér að þetta yrði á plötu sem
kæmi út um haustið, safnplötu með
hans bestu ballöðum. Ég minnti
hann á að þetta lag væri ekki einu
sinni komið út. Hann sagði bara:
Ég veit það að þetta er þannig lag,“
bætir Einar hlæjandi við.
Nylon og Luxor
Fyrir nítján árum stofnaði Einar
Nylonf lokkinn. Um var að ræða
stúlknaband sem naut mikilla vin
sælda hér á Íslandi en túraði einn
ig um Bretland. Klara Elíasdóttir,
Alma Guðmundsdóttir, Emilía
Óskarsdóttir og Steinunn Camilla
Sigurðardóttir skipuðu bandið og
ber Einar þeim vel söguna.
„Ég var auðvitað að róa í blindni
þegar þetta band var sett saman en
það var ótrúleg gæfa yfir þessu, þær
voru svo duglegar. Það var svo mikill
hraði í þessu, þær voru í útlöndum
að syngja með Westlife og Girls
Aloud og það hefði verið svo ótrú
lega auðvelt að fara út af sporinu en
engin þeirra gerði það,“ segir Einar.
Hann segist afar stoltur af þeim
öllum, hann sé í mestu sambandi
við Klöru og Steinunni. „Mér þykir
ótrúlega vænt um þær allar en við
Klara náðum einhvern veginn
saman. Einhverjir Nylonaðdáend
ur héldu meira að segja að ég hefði
skírt dóttur mína í höfuðið á henni
en það var nú í höfuðið á mömmu
Birna Dröfn
Jónasdóttir
birnadrofn
@frettabladid.is
18 helgin FRÉTTABLAÐIÐ 11. mARs 2023
lAUgARDAgUR