Fréttablaðið - 11.03.2023, Síða 23
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
LAUGARDAGUR 11. mars 2023
Það leynast ótrúleg verðmæti í skúffum landsmanna, segir Valur Hólm Sigurgeirsson, þjálfunarstjóri ELKO. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Fáðu eitthvað fyrir ekkert
ELKO kaupir gömul raftæki til að gefa þeim nýtt líf og kemur þeim í ábyrga endurvinnslu.
ELKO er í samstarfi við Foxway Group í Eistlandi sem endurvinnur hvern einasta smáhlut í
tækinu þannig að ekkert fer til spillis. 2
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is
Jenny Ortega er þekktust fyrir að
leika Wednesday Addams.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
sandragudrun@frettabladid.is
Frést hefur að leikkonan Jenny
Ortega sé í samningaviðræðum
um að leika í framhaldi af kvik-
mynd Tims Burtons, Beetlejuice,
sem sló í gegn árið 1988. Sagt er að
Jenny eigi í viðræðum um að leika
dóttur Lydiu Deetz, persónunnar
sem Winona Ryder lék í uppruna-
legu kvikmyndinni. Jenny Ortega
er þekktust fyrir hlutverk sitt sem
Wednesday Addams í þáttunum
Wednesday á Netflix.
Bara einn Beetlejuice
Líklegt er að Michael Keaton muni
snúa aftur sem aðalpersónan,
Beetlejuice. Orðrómur um að
gera framhald af Beetlejuice kom
fyrst upp árið 2013 þegar Michael
Keaton staðfesti að hann og Tim
Burton væru í viðræðum um fram-
haldið. Árið 2014 sagði Tim Burton
að það væri bara einn Beetlejuice,
Michael Keaton. Eftir að hafa verið
í vinnslu hjá Warner Bros í nokkur
ár fékk framleiðslufyrirtæki Brads
Pitts, Plan B, verkefnið formlega í
sínar hendur fyrir ári.
Upprunalega myndin fjallar um
Deetz-fjölskylduna. Fjölskyldan
flytur í hús þar sem Maitlands-
hjónin bjuggu áður. Þau létust í
bílslysi en draugar þeirra vilja búa
áfram í húsinu og fá Beetlejuice í
lið með sér til að fæla Deetz-fjöl-
skylduna í burtu. n
Jenny Ortega í
Beetlejuice