Fréttablaðið - 11.03.2023, Page 55
Porsche 911 Turbo S
fær sama tvinnbúnað
og mun koma í 911
Carrera.
Fyrstu tilraunaútgáfur
verða frumsýndar í ár.
Nýr ID.2 gæti jafnvel
fengið Golf-nafnið.
Búast má
við enn
öflugri bíl á
næsta ári.
njall@frettabladid.is
BYD mun á þessu ári frumsýna
nýjan og öflugan jeppa í stíl við G-
línu Mercedes fyrir Kínamarkað.
Von er á bílnum á aðra markaði á
næsta ári en ekki er víst að hann
komi til Evrópu. Um 671 hestafls
tvinnútgáfu er að ræða og verður
bíllinn næstum 5 metrar að lengd
með 2.850 mm hjólhaf.
Hann verður sjálfskiptur með
fjórhjóladrifi og hægt verður að
læsa bæði fram- og afturdrifi ásamt
millikassa. Einnig verður hann
smíðaður á stigagrind sem gerir
hann að alvöru jeppa. BYD setti
einnig á markað fyrir skömmu
Yangwang-lúxusmerkið en U8-raf-
bíl þess er stefnt til samkeppni við
væntanlega rafdrifna útgáfu G-línu
sem kallast einfaldlega EQG. n
BYD á leiðinni með öflugan tvinnjeppa
Von er á fjórðu kynslóð Mini
Cooper-smábílsins á markað
á næsta ári en hann verður
frumsýndur á bílasýningunni
í München á þessu ári. Von
er á rafdrifinni útgáfu ásamt
tveimur gerðum bensínvéla.
njall@frettabladid.is
Rafdrifin útgáfa Mini Cooper verður
framleidd í Kína á undirvagni sem
var hannaður í samstarfi BMW við
kínverska framleiðandann Great
Wall. Bensínútgáfur bílsins verða þó
áfram smíðaðar í Oxford í Bretlandi
en sá undirvagn er algerlega hönnun
BMW. Þrátt fyrir að mismunandi
undirvagn sé undir bílunum er yfir-
bygging þeirra sú sama.
Rafdrifin Cooper E-útgáfa verður
með 40 kWst rafhlöðu en SE-útgáf-
an fær 54 kWst rafhlöðu. Það mun
bæta drægi bílanna en það verður á
bilinu 320 til 400 kílómetrar. Jafnvel
gæti verið von á öflugri JCW-útgáfu
í framhaldinu. Rafdrifnar útgáfur
bílsins koma á markað í apríl á
næsta ári en bensínútgáfurnar í júlí.
Innandyra verður nýr hringlaga
margmiðlunarskjár í miðju mæla-
borðsins. Í stað skjásins á stýris-
túpunni fyrir framan ökumann er
nú kominn framrúðuskjár. n
Ný kynslóð Mini Cooper á næsta ári
njall@frettabladid.is
Búist er við að Volkswagen frum-
sýni jepplingsútgáfu ID.2 strax í
þessum mánuði, nánar tiltekið
þann 15. mars. Fyrst var talið að
um tilraunaútgáfu væri að ræða
en nú bendir allt til þess að fram-
leiðslubíllinn verði frumsýndur.
Mun honum ætlað að fara á mark-
að snemma árs 2025 og byrja í um
22.500 evrum sem eru um 3,4 millj-
ónir á núverandi gengi krónunnar.
Einnig hefur verið haft eftir innan-
búðarmönnum í Wolksburg að nýi
bíllinn fái Golf-nafnið. Nýr ID.2
verður fyrsti bíll Volkswagen á
MEB-Plus-undirvagninum sem er
uppfærð útgáfa MEB-undirvagns-
ins. Sá undirvagn verður með liþí-
um-járnfosfat rafhlöðu og hleðslu-
hraða allt að 200 kW. n
VW ID.2 frumsýndur í mánuðinum
njall@frettabladid.is
Volkswagen mun frumsýna fyrstu
frumgerðir Scout síðar á árinu en
bæði jeppi og pallbíll frá Scout Mot-
ors eru væntanlegir á markað árið
2026. Merkið lét frá sér nýja mynd af
bílunum í vikunni sem sýnir kassa-
laga hönnunina við sólarlag. Þar er
kassalaga útlit bílanna vel sýnilegt
sem og mikil veghæð þeirra.
Báðir bílarnir munu koma á
sama raf bílaundirvagni og fá tals-
verða torfærueiginleika að sögn
VW. Einnig verður lögð áhersla á
burðargetu þeirra en þeir munu
koma í bæði atvinnu- og einstakl-
ingsútgáfum. Bílarnir verða fram-
leiddir fyrir Ameríkumarkað en
ekkert hefur verið gefið upp enn þá
um hvort von sé á þeim til Evrópu í
framhaldinu. n
Ný mynd af Scout-jeppunum
njall@frettabladid.is
Porsche er að gera breytingar á
911-bílnum sem kemur á markað
á næsta ári. Um andlitslyftingu er
að ræða en meiri breytingar verða
á vélbúnaði því bíllinn fær tvinn-
kerfið sem þegar hefur komið fram
í 911 Carrera.
Nýlega náðust fyrstu njósna-
myndir af bílnum án nokkurs felu-
búnaðar. Helstu breytingar verða á
afturenda bílsins en þar koma ný
afturljós í enn þynnri ljósarönd.
Eini felubúnaður bílsins á mynd-
inni var yfir hliðum afturljósanna
svo búast má við breytingum þar.
Einnig má sjá breytingar á fjögurra
stúta pústkerfinu sem er innfellt í
stuðarann.
Eins og tilkynnt hefur verið um
tvinnbúnað í Carrera 911 verður
sams konar tvinnbúnaður í 911
Turbo. Ekki er um tengiltvinnbúnað
að ræða en öllu heldur rafmótor sem
kemur aftan við átta þrepa sjálf-
skiptinguna. Rafmótorinn mun fá
orku frá lítilli rafhlöðu og aðallega
auka við upptak bílsins en hjálpa þó
örlítið upp á eyðslutölur. Núverandi
vélbúnaður Turbo S er 641 hestafls
sex strokka boxer-vél með tveimur
forþjöppum en búast má við að talan
hækki eitthvað með tvinnbúnaði. n
Njósnamynd af Porsche 911 Turbo S
BYD-tvinnjeppinn er byggður á grind og með driflæsingum svo að um öfl-
ugan jeppa er að ræða. MYND/BYD
Útlitið er nýtt með kunnuglegum framenda en meira afturhallandi framrúðu og að aftan koma trapísulaga afturljós. MYND/MINI
Búast má við að bíllinn fái rúnnaðra
útlit en VW ID.Life tilraunabíllinn.
MYND/VW GROUP
Myndin sýnir vel að hátt er undir nýja Scout-jeppann og -pallbílinn.
MYND/SCOUT MOTORS
Helstu breyt-
ingar á næsta ári
eru nýtt tvinn-
kerfi ásamt
breytingum
á afturenda
bílsins.
MYND/AUTO
EXPRESS
FréTTaBlaðIð bílar 3511. MarS 2023
laUGarDaGUr